Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Rúmenía

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Rúmenía
România
Fáni RúmeníuSkjaldarmerki Rúmeníu
FániSkjaldarmerki
Þjóðsöngur:
Desteapta-te, Romane!
Staðsetning Rúmeníu
HöfuðborgBúkarest
Opinbert tungumálrúmenska
StjórnarfarLýðveldi
ForsetiNicușor Dan
ForsætisráðherraIlie Bolojan
SjálfstæðifráTyrkjaveldi
  Sjálfstæði9. maí1877 
Flatarmál
  Samtals
  Vatn (%)
81. sæti
238.397 km²
3
Mannfjöldi
  Samtals (2020)
  Þéttleiki byggðar
61. sæti
19.317.984[1]
84,4/km²
VLF (KMJ)áætl.2021
  Samtals636,481 millj.dala (36. sæti)
  Á mann32.950 dalir (44. sæti)
VÞL (2019)Hækkun 0.828 (49. sæti)
GjaldmiðillLeu
TímabeltiUTC+2 (UTC+3á sumrin)
Þjóðarlén.ro
Landsnúmer+40
Kort af Rúmeníu.

Rúmenía (rúmenska:România) er land íSuðaustur-Evrópu vestur afSvartahafi. Rúmenía á landamæri aðÚkraínu ogMoldóvu í norðaustri,Ungverjalandi ogSerbíu í vestri ogBúlgaríu í suðri. Í miðju landinu erTransilvaníusléttan, sem er afar frjósöm og fjallend. Rúmeníu er skipt upp í 41 sýslu eðajudeţe.

Rúmenía er 238.391 ferkílómetrar og þar með tólfta stærsta land Evrópu. Í Rúmeníu búa tæpar 20 milljónir[1] (2011) (90% rúmenskumælandi, 7% ungverskumælandi og 3% erusígaunar eða koma annars staðar frá). Tvær milljónir búa í höfuðborginni Búkarest, sem er fjölmennasta borgin, en helstu stórborgir Rúmeníu eru með svipaðan íbúafjölda og á öllu Íslandi:Galati (249 þúsund),Iasi (290 þúsund),Cluj-Napoca (324 þúsund),Timisoara (319 þúsund),Craiova (269 þúsund),Constanta (283 þúsund) ogBrasov (253 þúsund) (2011).

Opinbert tungumál landsins er rúmenska. Vergþjóðarframleiðsla ársins2004 var rúmir 73 milljarðar Bandaríkjadala og hafði þá vaxið að raungildi um 8,3% frá árinu áður. Helstu áskoranir efnahagslífsins árið2005 litu þannig út að verðbólgan var 8,6% og atvinnuleysið 5,9%.

Veðurfar

[breyta |breyta frumkóða]

Veðurfar í Rúmeníu er í stíl við legu landsins á miðju meginlandinu. Kaldasti mánuðurinn erjanúar þar sem meðalhiti er milli mínus sjö og mínus einnar gráðu ácelsíus enjúlí er heitastur og er sjaldgæft að hitinn fari niður fyrir sextán gráður í þeim mánuði heldur en hann frekar nær 34 gráðunum.

Saga

[breyta |breyta frumkóða]

Saga Rúmeníu er löng og ná heimildir því sem næst aftur tilfyrstu aldar e.Kr. Árið106 náðu Rómverjar yfirráðum yfirDakíu og ríktu þar allt fram til271 þegarGermanar náðu þar völdum. Næstu stóru breytingar verða svo ekki fyrr en árið900 þegarTransylvanía varð yfirráðasvæðiUngverja og aftur á15. öld þegar furstadæminMoldavía ogVallakía beygðu sig undirtyrknesk yfirráð og greiddu þeim skatta. En það eru einmitt þessi tvö furstadæmi sem sameinuðust um1860 undir nafninu Rúmenía og fengu alþjóðlega viðurkenningu sem sjálfsstætt ríki áBerlínarfundinum1878.

Saga nútímaríkisins Rúmeníu nær semsagt aftur til fyrrnefndrar sameiningar. Þremur árum eftir að Rúmenía fékk sjálfstæði varð hún aðkonungsríki. Hið nýja konungsríki náði þó ekki til allra svæða þar sem Rúmenar bjuggu. Þannig bjuggu þrjár milljónir rúmenskumælandi fólks í Transylvaníu sem var undir ungverskri stjórn, tvær milljónir bjuggu íBessarabíu sem var undir stjórnRússa og lítill hópur bjó íDobrúdja íBúlgaríu. Markmið hins nýja konungsríkis var að sameina alla Rúmena í eitt ríki (Stór-Rúmenía). Þetta markmið náðist við lokheimsstyrjaldarinnar fyrri þegarbandamenn skilgreindu Rúmeníu ásamt hluta Transylvaníu, Bessarabíu,Norður-Búkóvínu og suðurhluta Dobrúdja sem andsovéskt svæði. Við þetta tvöfaldaðist Rúmenía að stærð en náði hvorki að aðlaga nýju íbúana að ríkinu né byggja upp efnahag nýju svæðanna í samræmi við efnahag landsins.

Þetta breyttist aftur1940 þegarSovétríkin yfirtóku stærstan hluta þessa svæðis ogÞýskaland tók til sín Transylvaníu. Friðarsamningurinn1947 þýddi fyrir Rúmeníu að norðurhluti Transylvaníu varð aftur hluti ríkisins en Bessarabía og Norður-Búkóvína voru undir sovéskum yfirráðum (í dag eru þessi héruð hlutar annars vegarMoldóvu og hins vegarÚkraínu).

Þekktastur leiðtoga Rúmeníu eftir síðari heimsstyrjöldina er vafalaustNicolae Ceausescu enda stjórnaði hann landinu harðri hendi frá1965 til1989. Það var semsagt ekki fyrr en viðfall kommúnismans í Austur-Evrópu sem hann missti völdin. Í framhaldi af blóðugriuppreisn var hann tekinn af lífi ásamt konu sinni25. desember sama ár.

Rúmenía varð aðili aðESB þann1. janúar2007 en þó voru sett ákveðin höft og skilyrði varðandi inngöngu landsins.

Í lok ársins2006 tóku nýtrúarbragðalög gildi í Rúmeníu sem leystu af hólmi lög frá1948. Þar semVottar Jehóva hafa nú einnig fengið viðurkenningu sem trúfélag hefur viðurkenndum trúfélögum nú fjölgað í átján í Rúmeníu. Í nýju lögunum kemur fram að engin ein trúarbrögð í landinu séuríkistrúarbrögð og að öll viðurkennd trúfélög séu jöfn frammi fyrir lögum landsins.

Landafræði

[breyta |breyta frumkóða]

Rúmenía er stærsta landið í Suðaustur-Evrópu. Stór hluti af landamærum landsins við Serbíu og Búlgaríu er myndaður afDóná. Áin mætir ánniPrut, sem myndar landamæri viðMoldóvu og rennur svo út íSvartahaf viðDónárósa sem eru best varðveittu stóru árósarnir íEvrópu og mikilvægur viðkomustaður margra tegundafarfugla á leið til og fráNorður-Evrópu.

Í miðju landinu eruKarpatafjöll sem skilja Transylvaníu frá Vallakíu og Moldavíu. Hæsta fjall Rúmeníu erMoldoveanu-tindur (2544 m) í suðurhluta landsins.

Stjórnmál

[breyta |breyta frumkóða]

Stjórnarskrá Rúmeníu byggist á stjórnarskráfimmta franska lýðveldisins og var samþykkt með þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1991. Stjórnarfar í Rúmeníu byggist á fjölflokkakerfi og aðskilnaðiþriggja greina ríkisvaldsins. Forseti og forsætisráðherra deila með sérframkvæmdavaldinu. Forsetinn er kosinn íalmennum kosningum og getur mest setið tvö fimm ára kjörtímabil.

Þingið skiptist í fulltrúadeild með 346 þingsætum og öldungadeild með 140 sætum. Allir þingmenn eru kjörnir til fjögurra ára samkvæmthlutfallskosningu. Rúmenska dómskerfið er undir miklum áhrifum frá franska dómskerfinu. Æðsti dómstóllinn erstjórnlagadómstóll sem kveður upp úr um samræmi laga við stjórnarskrána.

Í tengslum við inngönguna í ESB hefur landið ráðist í ýmsar umbætur, þar á meðal réttarfarsumbætur, og reynt að koma böndum áspillingu. Engu að síður er Rúmeníu og Búlgaríu lýst sem tveimur spilltustu löndum sambandsins.

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. 12„Populaţia rezidentă la 1 Ianuarie 2020“(PDF).Insse.ro (rúmenska).Hagstofa Rúmeníu. Sótt 28. ágúst 2021.

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]


AðildarríkiEvrópusambandsins (27)
Evrópufáninn
Evrópufáninn
Lönd íEvrópu
Norður-Evrópa
Austur-Evrópa
Mið-Evrópa
Vestur-Evrópa
Suðaustur-Evrópa
Suður-Evrópa
Undir yfirráðum annarra ríkja:Álandseyjar ·Færeyjar ·Gíbraltar ·Guernsey ·Jersey ·Mön ·Svalbarði
1 Oft talin landfræðilega til Asíu en skilgreind sem Evrópulönd af menningarlegum ástæðum.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Rúmenía&oldid=1921696
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp