Kort af legu Qinghai héraðs í norðvesturhluta Kína.
Qinghai (eðaTsinghai)(kínverska: 青海;rómönskun: Qīnghǎi) er landlukthérað í norðvesturhlutaAlþýðulýðveldisins Kína. Það er eitt stærsta stjórnsýsluhérað Kína að flatarmáli en með 5.6 milljónir íbúa telst það fámennt. Héraðið sem er að miklu staðsett á Tíbet-hásléttunni hefur fjölda þjóðarbrota, þar á meðal Han, Hui, Tu, og Mongóla. Qinghai, sem hefur í aldir verið heimili hirðingja, er þekkt fyrir hrossarækt og hefur nýlegra orðið mikilvæg uppspretta jarðolíu og kola. Höfuðborgin erXining.
Qinghai hérað er að miklu staðsett á Tíbet-hásléttunni í norðvestur Kína. Nafnið „Qinghai“ er dregið afQinghai vatni („Bláa vatni“) í norðausturhluta héraðsins. Það er stærsta vatn Kína.
Landsvæði héraðsins spannar um 721.000 ferkílómetrar og er það í umfangi fjórða stærsta héraðið í Kína.
HöfuðborginXining í austurhluta Qinghai er um 220 kílómetra vestur afLanzhou borg íGansu.
Hið miklaGulafljót næstlengsta fljót Kína, á upptök sín í Bayan Har-fjöllum á Tíbet-hásléttunni í Qinghai. Það rennur í gegnum níu héruð og loks út íBóhaíhaf.
Ræktanlegt land nálægtQinghai vatni hefur byggst alt frá forsögulegum tíma og gæti hafa verið upphaflegt heimili ættbálkanna sem síðar settust að í Tíbet. Svæðið, sem kallast Amdo á Tíbet, var lengi talið hluti af Tíbet. Á tímumHanveldisins var vísaði til íbúa svæðisins sem Qiang og reynt var að halda þeim frá Hanveldinu með því að koma byggja herstöðvar við vatninu árið fjórðu öld e.Kr. Þær voru fljótt yfirgefnar en undir lok Hanveldisins, var sett upp stjórnsýsla austur af vatninu.
Svæðið í Qinghai var fært undir stjórnTjingveldisins árið 1724. Eftir að því var steypt af stóli árið 1911 komst svæðið undir stjórn kínverska stríðsherrans og múslimans Ma Qi, unsLýðveldið Kína treysti miðstýringu árið 1928 og stofnaði til Qinghai héraðs.
Árið 1932 réðst Tíbet inn í héraðið og reyndi að ná yfirráðum yfir suðurhluta þess. Kínverskir herjir höfðu betur.
Héraðið hefur lengi verið deigla fyrir fjölda þjóðarbrota, þar á meðal Han, Tíbeta, Hui, Tu, Mongóla og Sala. Han kínverjar eru ríflega helmingur íbúanna en Tíbetar um fimmtungur. Yfir 37 viðurkenndir þjóðernishópar eru meðal íbúa Qinghai, 5,6 milljónir, en innlendir minnihlutahópar eru alls 45,5% íbúanna.
Ríkjandi trúarbrögð í Qinghai eru kínversk trúarbrögð (þar með talindaoismi ogkonfúsíusismi) og kínverskurbúddismi meðal Han-Kínverja. Hinn fjölmenni hluti Tíbeta stunda tíbetskanbúddisma eða tíbetsku trúarbrögðin Bön. Flestir Hui-Kínverjar héraðsins iðkaíslam trú. Tæpt prósent íbúa héraðsins erukristin.
Qinghai, sem hefur í aldir verið heimilihirðingja með kvikfé milli bithaga án fastrar búsetu. Það er þekkt fyrirhrossarækt og hefur nýlegra orðið mikilvæg uppsprettajarðolíu ogkola.
Stóriðja héraðsins nær til framleiðslu á járni og stáli, staðsett nálægt höfuðborginni Xining. Olía ogjarðgas frá vatnasvæðiQinghai hafa einnig verið mikilvægur þáttur í efnahagslífinu. Salt er einnig nýtt við fjölmörg saltvötn héraðsins.
En fyrir utan höfuðborgarsvæðið, er stærstur hluti Qinghai enn vanþróaður. Á kínverskan mælikvarða er hagkerfi héraðsins lítið og landsframleiðsla á mann er með því lægsta í Kína.
Verulegur skortur á innviðum kemur í veg fyrir efnahagslega möguleika á nýtingu ríkra náttúruauðlinda héraðsins.