Python erforritunarmál þróað með það að leiðarljósi að einfalda forritaranum vinnuna sína (t.d. með því að notaruslasöfnun) frekar en að gera tölvunni auðvelt fyrir. Python, þrátt fyrir að vera oft talið einfalt mál, býr yfir flestum þeim möguleikum sem vinsælustu forritunarmál í dag búa yfir (og er sjálft orðið eitt allra vinsælasta forritunarmálið), þ.m.t.hlutbundna forritun.
Python kóði er yfirleitt vistaður í skjöl með endingunni.py sem eru svo keyrðar meðpython3 skipuninni. Einnig er hægt að keyrapython3 skipunina án skráarnafns og fæst þá einskonar Python skel. Í henni má meðal annars prófa sig áfram sem og keyra einföld forrit.
Nýjustu útgáfur af Python eru Python 3.x, sem eru að miklu leiti, en ekki öllu leyti, samhæfðar við eldra Python 2, sem er ekki lengur stutt. Nú orðið fær aðeins Python 3.13.x uppfærslur sem laga galla (og líka öruggisuppfærslur; nokkrar eldri útgáfur fá eingöngu öryggisuppfærslur). Hver nýleg útgáfa til og með Python 3.13 hefur bætt við setningarfræði (e. syntax), t.d. fyrir möguleika varðandi tög (e. type) í 3.13 og áður. Útgáfa 3.13 (og nýlegar) hefur líka bætt fleiri möguleikum við (þ.e. ekki eingöngu setningarfræðilegum) t.d. betri ruslasafnara (e. incremental útgáfu af); 3.13 gerir líka smávægilegar breyting á málinu (flestir forritarar eiga ekki að verða fyrir slæmum áhrifum, aðeins breytingum til hins betra, breytingarnar eru mun minni en frá 2.x yfir í 3.x).
Python 2.0 kom út þann 16. október 2000 með mörgum nýjum eiginleikum, s.s. ruslasöfnun (e. „garbage collection“; en líka að hluta útfært með „reference counting“ leið í CPython), ogUnicode stuðningi.
print('Halló heimur!')# Í eldra Python 2 gengur: print 'Halló heimur!'
og úttak þegar keyrð er skipuninpython3 prufa.py:
Hallóheimur!
Enn fremur má keyra upp python3 skelina og prófa sig áfram:
Python3.12.3(main,Apr212024,17:40:47)[GCC11.4.0]onlinuxType"help","copyright","credits"or"license"formoreinformation.>>>print('Halló heimur!')Hallóheimur!>>>str='Halló heimur'>>>list=str.split(' ')>>>list['Halló','heimur']>>>list[0]'Halló'>>>dict={'lykill 1':'gildi 1','lykill 2':'gildi 2'}>>>ifdict['lykill 1']=='gildi 1':...print(list[1])...heimur>>>importtime>>>time.time()1651175781.5171032>>>foriinlist:...print(i)...Hallóheimur>>>list2=['a','b','c','d','e']>>>len(list2)5>>>list2[2:]['c','d','e']>>>" ".join(list2)'a b c d e'
Það sem fólk rekur sig kannski fyrst á er að{ } er ekki notað utan umblokkir eins og íJava,C og mörgum málum. Blokkir í Python eru einfaldlega táknaðar með inndrætti, samanber hvernigprint(i) er dregin inn hér að ofan. Þetta getur valdið villum þegar fólk er að rokka milli þess að nota tab eða bil fyrir inndrátt, en ekki má blanda þessu í einni og sömu skránni.