Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Priapos

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Freska af Priapos,Hús tveggja Vettiusa,Pompeii.

Priapos eðaPriapus var völsastórt goð frjósemdar og einnig garða ígrískri goðafræði. Hann var allra mest tignaður í héruðunum viðHellusund.

Hann réð fyrir frjóvgun akra og kvikfénaðar og var talinn sonurDíonýsosar ogAfródítu. Sumar heimildir nefnaHermes eðaAdonis sem föður hans. Líkneski hans voru reist í görðum og vínbrekkum til heilla.

Rómversk útgáfa Priaposar nefndist:Mutinus Mutunus.

Ein frægasta mynd af honum er úrHúsi tveggja Vettiusa í Pompei. Á henni vigtar Priapos völsa sinn með reislu á móti sekk sem er fullur af peningum, og svo virðist sem völsinn vegi þyngra.

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]
  • Jón Gíslason,Goðafræði Grikkja og Rómverja
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Priapos&oldid=1378669
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp