Poul Huitfeldt (um1520 –1592) eðaPáll Hvítfeldur var danskur aðalsmaður sem varhöfuðsmaður á Íslandi og síðarríkisstjóri íNoregi.
Hann var yngri bróðirChristoffers Huitfeldt, sem varhirðstjóri á Íslandi1541 –1542 og handtókÖgmund biskup. Poul var í þjónustu bróður síns í Noregi og var sendur til Íslands sem 1552 til að ganga frá ýmsum málum tengdumsiðaskiptunum. Meðal annars var honum falið að koma á skólum áHólum og íSkálholti, sem hann og gerði og gaf út reglugerð um starfsemi skólanna sama ár. Hann kom svo aftur til Íslands tvö næstu ár og var hér að minnsta kosti einn vetur.
Heimkominn til Danmerkur fékk hann góð lén að launum fyrir vel unnin störf. ÍSjö ára stríðinu stýrði hann vörnumHalmstad og lenti þar í erfiðu umsátri Svía um bæinn.Eiríkur 14. Svíakonungur bauð honum 2200dúkata fyrir að gefast upp en Huitfeldt sagðist ekki selja eiða og æru en gæti látið hann fá púður og blý. Bæjarbúar vörðust af hörku og Svíana þraut örendið, þeir hættu umsátrinu skömmu áður enFriðrik 2. Danakonungur kom á vettvang með her sinn. Huitfeldt varð frægur fyrir vörnina og naut mikillar hylli og1572 var hann gerður að ríkisstjóra í Noregi. Þar lét hann mjög til sín taka, bætti stjórnarhætti mjög og lét meðal annars gerajarðabók. Hann sagði af sér embætti1577 vegna heilsubrests.
Fyrirrennari: Eggert Hannesson |
| Eftirmaður: Knud Stensen |