Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Patríarki

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Patríarki, er titillbiskupa (sem gegna embætti við ákveðinna biskupsstóla) írómversk-kaþólsku kirkjunni,rétttrúnaðarkirkjunni ogaustrænu rétttrúnaðarkirkjunum.

Uppruni orðsinspatríarki ergríska orðið πατριάρχης, sem er samsett úr πατήρ (pater, það er „faðir“) og αρχων (arkon, það er „leiðtogi“, „höfðingi“, „konungur“). Patríarki var og er ættarhöfðingi (pater familias) yfir ætt eða fjölskildu.

Saga

[breyta |breyta frumkóða]
Íkon með Jóhannesi frá Antiokíu og Gregor frá Nanzianz, sem báðir voru patríarkar í Konstantínópel á 4. öld og dýrlingar í kaþólsku kirkjunni og rétttrúnaðarkirkjunni

Þegar á4. öld er farið að nota titillinnpatríarki sem heiðurstitil á einstaka biskupa.

Hugtakið fékk þó fljótlega afmarkaða þýðingu. Kirkjuþingið íKalkedon451 veitti biskupunum íRóm,Konstantínópel,Alexandríu,Antiokkíu ogJerúsalem sérstöðu gagnvart öðrum biskupum. Patríarkanum í Konstantínópel var gefin sérstaða gagnvart hinum fjórum enda var þar höfuðborg ríkisins og aðsetur keisarans.

Þessir fimm fóru að titla sig patríarka (nema í Róm þar sempapa var notað í staðin). Það var þó ekki fyrr en á stjórnartímaJustinianus I (483 - 565) sem þeir fengu lögsögu og formlega stjórn á hver sínum hluta kirkjunnar. Eftir að klofnaði á milli kaþólsku kirkjunnar og rétttrúnaðarkirkjunnar fengu partíarkar ólík hlutverk í hinum tveimur megin kirkjudeildum.

Rómversk-kaþólska kirkjan

[breyta |breyta frumkóða]

Rómversk-kaþólska kirkjan hefur biskup yfir latneska söfnuðinum í Jerúsalem, og ber hann titilinn patríarki. Þar að auki eru nokkrir biskupsstólar á vesturlöndum sem bera heiðurstitilinn patríarki, sá elsti biskupinn íFeneyjum sem var veitt þessi virðing 1451. Kaþólskir patríarkar eru einnig íVesturindíum (1517),Lissabon (1711) ogIndlandi (1886). Þessir patríarkar hafa ekki á neinn hátt neina sjálfstæða stöðu gagnvart páfanum í Róm. Yfirmenn annarra kirkjudeilda en þeirra latnesku sem lúta páfa bera einnig titilinn patríarki (eða katholikos) og hafa í mörgu sjálfstæða stöðu í ýmsum trúaratriðum og helgiathöfnum.

Rétttrúnaðarkirkjur

[breyta |breyta frumkóða]

Innan rétttrúnaðarkirkjunnar er að finna fjögur af elstu patríarkaembættunum, í Konstantinópel, Antiokkíu, Alexandríu og Jerúsalem, og berpatríarkinn í Konstantinópel titilinn ökumeníski-patríarkinn. En andstætt páfaveldinu eru hinir patríarkarnir ekki undirmenn þess ökumeníska heldur er hann nefndur fremstur meðal jafningja. Yfirmenn margra þjóðkirknanna innan rétttrúarkirkjunnar bera einnig titlinn og vald patríarka. Elsta embættið er íBúlgaríu sem tilkom 927. Síðan komaGeorgía (1010, en þar er titilinnkatholikos-patriark),Serbía (1379),Rússland (1589) ogRúmenía (1885).

Austrænu rétttrúnaðarkirkjurnar hafa einnig patríarka:

Nestoríönsku kirkjurnar hafa patríarka í Jerúsalem og Katholikos Patríark í Babýlon (Bagdad).

Tengt efni

[breyta |breyta frumkóða]

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Patríarki&oldid=1916731
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp