Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Palaú

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lýðveldið Palaú
Beluu er a Belau
Fáni PalaúSkjaldarmerki Palaú
FániSkjaldarmerki
Þjóðsöngur:
Belau rekid
Staðsetning Palaú
HöfuðborgNgerulmud
Opinbert tungumálenska,palaúíska
StjórnarfarLýðveldi
ForsetiSurangel Whipps Jr.
Sjálfstæði
  Stofnun lýðveldis1. janúar 1981 
  Samningur um frjálst samband við Bandaríkin1. október,1994 
Flatarmál
  Samtals
  Vatn (%)
179. sæti
459 km²
~0
Mannfjöldi
  Samtals (2018)
  Þéttleiki byggðar
224. sæti
17.907
46,7/km²
VLF (KMJ)áætl.2018
  Samtals0,3 millj.dala (192. sæti)
  Á mann16.296 dalir (81. sæti)
VÞL (2019)Hækkun 0.826 (50. sæti)
Gjaldmiðillbandaríkjadalur
TímabeltiUTC+9
Þjóðarlén.pw
Landsnúmer+680

Palaú (palaúíska:Beluu er a Belau) ereyríki íKyrrahafi, um 500 km austan viðFilippseyjar. Palaú er hluti afMíkrónesíu og nær yfir um 250 eyjar sem mynda vesturhlutaKarlseyja. Fjölmennasta eyjan erKoror en höfuðborgin,Ngerulmud, er á eyjunniBabeldaob.Landhelgi eyjanna liggur að landhelgiIndónesíu, Filippseyja ogMíkrónesíu.

Fólk frá Filippseyjum tók að setjast að á eyjunum fyrir um 3000 árum.Evrópumenn komu þangað fyrst á18. öld. Eyjarnar voru hluti afSpænsku Austur-Indíum til1885. Eftir ósigurSpánar ístríði Spánar og Bandaríkjanna1898 seldu Spánverjar þær tilÞýskalands þar sem þær urðu hluti afÞýsku Nýju-Gíneu.Japanir lögðu eyjarnar undir sig ífyrri heimsstyrjöld. Ísíðari heimsstyrjöld lögðu Bandaríkjamenn þær undir sig. Eyjarnar voru síðan í umsjáBandaríkjanna til ársins1994 þegar þær fengu sjálfstæði í frjálsu sambandi við Bandaríkin.

Efnahagur Palaú byggist aðallega áferðaþjónustu,sjálfsþurftarbúskap ogfiskveiðum. Ríkið er mjög háð fjárhagsaðstoð frá Bandaríkjunum.Bandaríkjadalur er opinber gjaldmiðill eyjanna. Flestir íbúa eruMíkrónesar,Melanesar eðaÁstrónesar, en stórir hópar af filippeyskum og japönskum uppruna búa einnig á eyjunum.Enska ogpalaúíska (sunda-súlavesímál) eru opinber tungumál enjapanska,sonsorolíska ogtobíska eru opinberlega viðurkennd sem staðbundin tungumál.

Stjórnmál

[breyta |breyta frumkóða]

Palaú erlýðveldi þar semforseti Palaú er bæðiþjóðhöfðingi ogstjórnarleiðtogi. Ríkisstjórnin fer með framkvæmdavald, en löggjafarvaldið skiptist milli ríkisstjórnarinnar ogþjóðþings Palaú. Dómsvaldið er aðskilið frá framkvæmda- og löggjafarvaldi.Stjórnarskrá Palaú er frá 1981.

Ríkisstjórnir Bandaríkjanna og Palaú gerðu með sér samkomulag um frjálsa aðild árið 1986, svipað þeim sem Bandaríkin gerðu viðMíkrónesíu ogMarshall-eyjar. Samkomulagið gekk í gildi árið 1994 og við það hætti Palaú að vera verndarríki og varð að fullu sjálfstætt, síðast landa innanVerndarsvæðis í Kyrrahafi í kjölfarÁlyktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 956.

Samkomulagið kveður á um frjáls samskipti ríkjanna með áherslu á stjórnarfar, efnahagslíf, öryggis- og varnarmál. Palaú er ekki með eigin her ogBandaríkjaher sér um varnir landsins. Samkvæmt samkomulaginu hefur Bandaríkjaher leyfi til dvalar á Palaú í 50 ár. Þar er lítil verkfræðingasveit á vegumBandaríkjaflota og strandgæslan er á vegumBandarísku strandgæslunnar.

Stjórnsýslueiningar

[breyta |breyta frumkóða]
Sextán fylki Palaú.

Palaú skiptist í sextánfylki (sveitarfélög til 1984):

FylkiStærð (km2)Íbúar skv. áætlun 2012Manntal 13. apríl 2015Athugasemdir
Kayangel

HöfuðborgKayangel

1,77654Eyjarnar sem mynda Kayangel-hringrifið.
Ngarchelong

HöfuðborgMengellang

11,2281316Norðan megin á Babeldaob.
Ngaraard

HöfuðborgUlimang

34453413Norðan megin á Babeldaob, sunnan við Ngarchelong.
Ngardmau

HöfuðborgUrdmang

34195185Vestan megin á Babeldaob.
Ngaremlengui

HöfuðborgImeong

68310350Vestan megin á Babeldaob.
Ngatpang

HöfuðborgNgatpang Village

33257282Vestan megin á Babeldaob.
Ngiwal

HöfuðborgNgercheluuk

17226282Austan megin á Babeldaob.
Melekeok

HöfuðborgMelekeok

26300277Austan megin á Babeldaob.
Ngchesar

HöfuðborgNgchesar Hamlet

43287291Austan megin á Babeldaob.
Aimeliik

HöfuðborgMongami

44281334Suðvestan megin á Babeldaob.
Airai

HöfuðborgAirai

592.5372.455Suðaustan megin á Babeldaob.
Koror

HöfuðborgKoror

60,5211.67011.444Koror,Ngerekebesang ogMalakal, aukChelbacheb ogEil Malk í suðvestri.
Peleliu

HöfuðborgKloulklubed

22,3510484Nær yfir Peleliu og nokkrar smáeyjar norðan við hana, þar á meðal Ngercheu.
Angaur

HöfuðborgNgaramasch

8,06130119Angaur, 12 km sunnan við Peleliu.
Sonsorol

HöfuðborgDongosaru

3,14240Nær yfir Sonsorol,Fanna, Pulo Anna ogMerir.
Hatohobei

HöfuðborgHatohobei

0.91025Nær yfirTobi og Helenurif (óbyggt).
  Þessilandafræðigrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Palaú&oldid=1931645
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp