Ritháttur PHP er að mestu kominn úrforritunarmálunumC,Perl ogJava.
Dæmi um kóða:
<?php// Þetta er athugasemd, kóðinn að neðan sýnir „Halló heimur!“echo'Halló heimur!';phpinfo();# Þetta sýnir ýmsar upplýsingar um stillingar á vefþjóninum og PHP þýðandanum?>
Þó að ritháttur PHP sé fengin úr ofangreindum forritunarmálum, eiga málin fátt sameiginlegt. PHP kóði er skrifaður í bland meðHTML í skilgreiningunum áheimasíðum. Þegar vefsíðan er skoðuð með vafra er PHP kóðanum breytt í HTML sem vafrarinn getur skoðað.
Helsti kostir PHP:
- Gerir mögulegt að gera nánast hvað sem er á vefsíðum.
- Styður gagnagrunnstengingar.
- Það er ókeypis.
- Almennt talið hraðvirkt.
Helstu keppinautar PHP eruASP/ASP.NET,Cold Fusion,JSP/Java,Python ogRuby.
PHP er í dag eitt vinsælasta vefforritunarmál í heiminum og hafa vinsældir þess aukist gríðarlega eftir útkomu útgáfu 4 sem keyrir á Zend-vélinni. SamkvæmtTiobe-vísitölunni yfir vinsældir forritunarmála var PHP í sjötta sæti yfir vinsælustu forritunarmálin árið 2016, á eftirJava,C,C++,C# ogPython. PHP er notað á milljónum vefþjóna um allan heim.
Einungis nýlega, og líklega að hluta til vegna vinsælda PHP sem forritunarmáls, hefur það rutt sér til rúms sem fjölnota forritunarmál. Þannig er t.d. mögulegt að forritamyndrænt notendaviðmót í PHP meðGTK+-viðfangasafninu,ncurses ognewt.