Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Opinbert tungumál

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Opinbert tungumál ertungumál sem sett er á sérstakan stall innanríkja, fylkja eða sjálfsstjórnarsvæða. Það er yfirleitt málið sem notað er ílöggjafarþingum viðkomandi svæðis en lög margra ríkja fara þó fram á það að opinber gögn séu þýdd á önnur mál einnig.

Um helmingur ríkja í heiminum hafa opinbert tungumál. Sum hafa aðeins eitt opinbert tungumál (t.d.Litáen,Þýskaland ogAlbanía) og sum hafa fleiri en eitt eins ogHvíta-Rússland,Belgía,Kanada,Finnland ogSuður-Afríka.

Ílöndum, eins ogÍrak,Ítalíu ogSpáni, eru opinber tungumál en í sumum héruðum þessara landa eru leyfð önnur tungumál. Önnur lönd, eins ogBandaríkin hafa ekkert opinbert tungumál en nokkur ríki Bandaríkjanna hafa opinbert tungumál. Að lokum má nefna lönd eins ogÁstralíu,Lúxemborg ogSvíþjóð sem hafa ekkert opinbert tungumál, ekki er heldur getið um opinbert tungumál í stjórnarskráÍslands.

Afleiðingnýlendustefnu íAfríku og áFilippseyjum er sú að opinbert tungumál (franska eðaenska) er ekki það sama og talað er af fólkinu í landinu. Á móti má nefnaÍrland þar semírska hefur verið skilgreind sem opinbert tungumál sökumþjóðernishyggju en flest allir talaensku sem er að vísu annað opinbert tungumál Írlands.

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]

Um tungumál á Norðurlöndunum

Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Opinbert_tungumál&oldid=1910566
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp