New York-borg (enska:New York City, gjarnan skammstafaðNYC; einstaka sinnum kölluð „Nýja-Jórvík“ á íslensku) er fjölmennasta borgNew York-fylkis, og jafnframtBandaríkjanna, með ríflega 8,8 milljónir íbúa (2020) af ýmsum þjóðernum á tæplega 780 km2 svæði. New York-borg er líka þéttbýlasta borg Bandaríkjanna. Hún er staðsett á suðuroddaNew York-fylkis. Á stórborgarsvæðinu, sem er stærstastórborgarsvæði heims,[6] búa rúmar 20 milljónir manna, og borgin er því ein fjölmennastarisaborg heims. Borgin hefur hlotið viðurnefnið „stóra eplið“ (enska:The Big Apple). New York-borg er miðstöð viðskipta, stjórnmála, fjölmiðlunar, tónlistar, tísku og menningar á heimsvísu, og hún er mest ljósmyndaða borg heims.[7]Höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna eru í New York-borg og þar er mikilvæg miðstöð alþjóðasamskipta.[8][9] Borgin hefur stundum verið kölluð „höfuðborg heimsins“.[10][11]
Borgin byggðist upp í kringum eina stærstunáttúruhöfn heims. Hún skiptist í fimm borgarhluta sem hver nær yfir einasýslu fylkisins. Borgarhlutarnir eruBrooklyn (Kings County),Bronx (Bronx County),Manhattan (New York County),Queens (Queens County) ogStaten Island (Richmond County). Borgarhlutarnir voru stofnaðir formlega þegar borgin var sameinuð í eitt sveitarfélag árið 1898.[12] Borgin er miðstöð fyrir löglega fólksflutninga til Bandaríkjanna. Allt að 800 tungumál eru töluð í New York-borg[13] sem gerir hana að einni fjölmenningarlegustu borg heims. Þar búa 3,2 milljónir manna sem fæddar eru utan Bandaríkjanna, sem var stærsta útlendingasamfélag í nokkurri borg heims árið 2016.[14][15] Talið er aðverg landsframleiðsla í New York-borg hafi verið 2 billjónir dala. Ef borgin væri ríki væri það með 8. stærsta hagkerfi heims. Þar búa flestir milljarðamæringar.[16]
Uppruna New York-borgar má rekja til verslunarstaðar semhollenskir sjómenn stofnuðu á suðurodda eyjunnar Manhattan í kringum árið 1624. Árið 1626 nefndu þeir staðinnNýju-Amsterdam (Nieuw-Amsterdam). Nýja-Amsterdam fékk borgarréttindi árið 1653. Árið 1664 náðu Englendingar þar völdum og nefndu bæinnNýju-Jórvík, þegarKarl 2. Englandskonungur gaf bróður sínum,Jakobi Jórvíkurhertoga, hann.[17][18] Hollendingar náðu bænum aftur á sitt vald 1673 og nefndu hann þá Nýju-Óraníu, sem stóð í eitt ár og þrjá mánuði. Borgin hefur heitið New York-borg samfellt frá 1674. Borgin varhöfuðborg Bandaríkjanna frá 1785 til 1790[19] og hefur verið stærsta borg landsins frá 1790. Frá því seint á 19. öld og fram á 20. öld tókFrelsisstyttan, sem gnæfir yfir New York-höfn, á móti milljónum innflytjenda til Bandaríkjanna og Kanada, sem tákn um Bandaríkin og hugsjónina um frið og frelsi.[20] Á 21. öld hefur New York-borg verið í forystu á heimsvísu varðandi listsköpun, nýsköpun,[21] sjálfbærni,[22][23] og sem tákn fyrir frelsi og menningarlega fjölbreytni.[24] Árið 2019 var New York kosin besta borg heims í könnun sem gerð var meðal 30.000 þátttakenda í 48 borgum um allan heim, þar sem helsta ástæðan var menningarleg fjölbreytni.[25]
Áður enEvrópubúar settust að á svæðinu bjugguLenape-indíánar þar. Fyrsti Evrópumaðurinn sem kom til New York varÍtalinnGiovanni da Verrazzano en hann kom þangað árið1525. Hins vegar yfirgaf hann staðinn. Það var ekki fyrr en árið1609 aðHollendingar senduEnglendinginnHenry Hudson, semHudsonfljótið er nefnt eftir, og byggð Evrópumanna var stofnuð þar árið1613. Á meðan Hollendingar réðu yfir borginni kallaðist húnNýja-Amsterdam en1664 náðuBretar borginni á sitt vald og endurnefndu hanaNew York (sem stundum hefur verið þýttNýja-Jórvík áíslensku) til heiðursHertoganum af Jórvík. Jórvík eða York á Englandi er aftur leitt af keltneska staðarheitinu Caer Ebroc.1673 náðu Hollendingar aftur stjórn yfir borginni og kölluðu hanaNieuw-Oranje („Nýju-Óraníu“) en gáfu hana endanlega frá sér árið1674.
New York óx sem verslunarstaður undir stjórn Breta snemma á 18. öld og einnig sem miðstöð þrælasölu en árið 1730 höfðu 42% heimila þræl.
ÍFrelsisstríði Bandaríkjanna var mesti bardaginn árið 1776,orrustan um Long Island, í nútíma Brooklyn þar sem Bandaríkjamenn töpuðu fyrir Bretum. Árið 1790 varð borgin stærri enPhiladelphia. Á 19. öld var stórfelldur innflutningur á fólki frá Evrópu til New York. Hungursneyðar á Írlandi höfðu til að mynda áhrif og árið 1860 voru 200.000 Írar í borginni. Þjóðverjar voru líka fjölmennir og komu úr héruðum þar sem átök höfðu verið.
New York sameinaðistBrooklyn árið 1898 en áður hafði það verið sérstök borg. Árið 1904 opnaði neðanjarðarlestarkerfið (subway). Ameríkanar af afrískum uppruna fluttu í auknum mæli til borgarinnar í byrjun 20. aldar frá Suðurríkjunum. Efnahagurinn gekk vel og hafið var að byggja skýjakljúfa. Á 8. og 9. áratugnum fjölgaði glæpum en fór fækkandi eftir miðjan 10. áratuginn.
Árásin á Tvíburaturnana 2001 leiddi til dauða tæpra 2200 manna og hernaðarafskipta Bandaríkjanna í málefnum Miðausturlanda og Asíu.
Frelsisstyttan er líklega frægasta kennileiti New York-borgar. Frelsisstyttan er 93 metra há koparstytta staðsett á Liberty Island (Frelsiseyju)
Times Square er torg á miðri Manhattan. Torgið er staðsett þar sem Broadway og 7. breiðgata mætast. Á Times Square fagna fjöldamargir nýja árinu, koma saman og sjá áramótakúluna falla á kl. 00:00 1. janúar.
Miðgarður (Central Park) er stór almenningsgarður í hjarta Manhattan.
Empire State-byggingin er næsthæsta mannvirki New York-borgar. Byggingin er 381 metra hár með 103 hæðum. Hún var hæsta bygging heims frá 1931 til 1970, þegar Tvíburaturnarnir opnuðu.
Tvíburaturnarnir voru gríðarstórir turnar sem féllu til grunna 11. september árið 2001.One World Trade Center var byggður í stað þeirra. Hann er hæsti turn Bandaríkjanna og sjötti stærsti turn heims.
Neðanjarðarlestarkerfi New York-borgar hefur verið starfandi frá 1904. Auk þess eru strætóar og ferjur.MTA Regional Bus Operations höndla almenningsvagna og 325 leiðir ogNYC Ferry starfrækja 5 ferjuleiðir.
↑„DDC New York“. Digital Diplomacy Coalition, New York. Afrit afupprunalegu geymt þann 27 júlí 2018. Sótt 11 ágúst 2018. „Established in 2014, DDC New York has partnered with the United Nations, major tech and social media companies, multiple governments, and NGOs to bring unique programs to the area community.“
↑Gleason, Will (11. mars 2019).„Citing its diversity and culture, NYC was voted best city in the world in new global survey“.Time Out. Sótt 19 maí 2019. „After compiling the thoughts of over 30,000 people, both from our NYC readership and half-a-world away, New York was voted the greatest city on the planet for 2019. In a hint as to why this happened, and why now, it also lead[sic] the categories of most diverse metropolis and best culture.“