Nayib Armando Bukele Ortez (f. 24. júlí 1981) ersalvadorskur stjórnmálamaður og núverandiforseti El Salvador. Hann tók við embætti árið 2019 en hafði áður verið borgarstjóriSan Salvador frá 2015 til 2018.
Sem borgarstjóri og sem forseti hefur Bukele náð miklum vinsældum með árangri sínum við að draga úr gengjaofbeldi og lækka morðtíðni í landinu. Aftur á móti hefur hann verið sakaður um einræðiskennda stjórnarhætti og um ofríki gegn gagnrýnendum og stjórnarandstæðingum. Bukele er kunnur talsmaðurrafmynta og á forsetatíð hans varð El Salvador fyrsta land í heimi sem gerðibitcoin að lögmiðli.
Bukele var kjörinn forseti El Salvador árið 2019 með loforðum um að upprætaspillingu í landinu. Hann er fyrsti forseti landsins í þrjátíu ár sem ekki er úr öðrum af stærstu stjórnmálaflokkum landsins,FMLN ogARENA, sem höfðu farið með öll völd í landinu frá lokumborgarastyrjaldarinnar í El Salvador.[1]
Nayib Bukele varð fljótt gríðarlega vinsæll forseti. Í skoðanakönnunum hafa gjarnan meira en níutíu prósent landsmanna sagt hann standa sig vel eða mjög vel í starfi. Meðal annars hafa þeir hrósað Bukele fyrir árangur hans við að lækka morðtíðni í El Salvador, sem hefur lengst af verið ein sú hæsta í heimi. Jafnframt hefur hann hlotið lof fyrir viðbrögð stjórnar hans viðkórónuveirufaraldrinum og fyrir gagnrýni sína á spillingu í stjórnum forvera sinna.[1]
Bukele hefur verið sakaður um valdboðs- og einræðiskennda stjórnarhætti. Í febrúar árið 2020 sendi Bukele hóp þungvopnaðra lögreglu- og hermanna til að ryðjast inn í þinghús El Salvador á meðan hann hélt þar ræðu. Bukele hafði gefið þinginu sjö daga til að samþykkja lántöku upp á hundrað milljónir Bandaríkjadala til þess að kaupa betri vopn og búnað fyrir lögregluna. Þingmenn sögðu þennan gjörning beina hótun í þeirra garð.[2] Bukele hefur talað um gagnrýnendur og andstæðinga sína sem „svikara“ og hefur vegið að sjálfstæðum fjölmiðlum í landinu. Þegar hæstiréttur El Salvador ógilti hluta af sóttvarnaaðgerðum stjórnarinnar hunsaði Bukele niðurstöðuna.[1] Bukele hefur hert tökin á dómstólum enn frekar með því að reka alla dómara sem eru eldri en sextíu ára og með því að skipta út fimm dómurum í hæstarétti landsins.[3]
Þegar Bukele kom til valda hafði hann lítinn stuðning á þingi, þar sem gömlu valdaflokkarnir höfðu enn flest sætin. Í þingkosningum árið 2021 vann flokkur Bukele,Nýjar hugmyndir, hins vegar afgerandi sigur og færði Bukele þannig enn fastari tök á stjórn landsins.[1]
Í baráttu sinni gegn ofbeldisglæpum og hárri morðtíðni í El Salvador hefur Bukele beitt harkalegum aðferðum, meðal annars víðtækari heimild lögreglu til að skjóta glæpamenn til bana. Hann hefur jafnframt látið setja fanga í salvadorskum fangelsum í myrkvaða einangrun og látið innsigla klefa þeirra til þess að koma í veg fyrir samskipti þeirra á milli. Mikla athygli vakti í apríl 2020 þegar Bukele lét mynda hundruðir fanga sem höfðu verið strípaðir niður að nærbuxum og þeir látnir sitja þétt uppi hver við annan.[4]
Þrátt fyrir lækkandi morð- og glæpatíðni á stjórnartíð Bukele færðist gengjaofbeldi í aukana snemma árið 2022. Í lok mars voru tugir manns drepnir í átökum milli glæpagengja, þar á meðal 62 manns á einum degi þann 27. mars. Bukele brást við ofbeldishrinunni með því að lýsa yfirneyðarástandi í einn mánuð.[5] Neyðarástandið felur í sér víðtækari heimildir lögreglu og skerðingu á borgaralegum réttindum.[6] Á tveimur mánuðum eftir upphaf neyðarástandsins höfðu um 36 þúsund manns verið handteknir í aðgerðum lögreglu, eða um tvö prósent allra fullorðinna íbúa El Salvador.[7] Rúmlega 3.000 manns sem höfðu verið handteknir voru hreinsaðir af sök og þeim sleppt í janúar 2023.[8]
Bukele bauð sig fram til endurkjörs árið 2024 þrátt fyrir að stjórnarskrá El Salvador heimili forsetanum aðeins að sitja eitt kjörtímabil. Hann vann afgerandi sigur í kosningunum með um 85 prósentum atkvæða.[9]
Bukele er mikill aðdáandirafmynta og hefur beitt auknum völdum sínum til að stuðla að aukinni notkun þeirra í El Salvador. Í júní árið 2021 samþykkti Bukele frumvarp um að gera rafmyntinabitcoin að lögeyri í landinu. Með lögunum varð verslunum kleift að birta verð í bitcoin og heimilað var að greiða skatta með myntinni. Fjármagnstekjuskattur er hins vegar ekki lagður á myntbreytingar með bitcoin. Stuðningsfólk frumvarpsins sagði að innleiðing bitcoin sem lögmiðils myndi gefa fleiri Salvadorum kost á að nýta sér hefðbundna bankaþjónustu.[10] Í nóvember sama ár kynnti Bukele áætlanir um að láta reisa sérstaka „Bitcoin-borg“ nálægt eldfjallinuConchagua. Hugmyndir Bukele ganga út á að borgin verði laus við alla tekju- og eignarskatta og að eldfjallið verði orkugjafi fyrir borgina. Áætlað var að bygging borgarinnar yrði fjármögnuð með útboði ríkisskuldabréfa að andvirði eins milljarðs Bandaríkjadollara.[3]
Þegar bitcoin-lögin voru samþykkt var andvirði rafmyntarinnar þegar á niðurleið og virði hennar hafði lækkað um 56% síðasta mánuðinn.[11][12] Árið 2022 varð frekara hrun í andvirði bitcoin til þess að ríkisskuldabréf El Salvador féllu í verði og alþjóðleg matsfyrirtæki lækkuðu lánshæfiseinkunn landsins. Hrun í gengi rafmyntanna olli áhyggjum af því að El Salvador gæti ekki greitt ríkisskuldir sínar við næstu skuldardaga í janúar 2023.[13]