Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Nas

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Nas (Nasir Jones, f.14. september1973 íQueens,New York), einnig þekktur semNasty Nas,Nas Escobar ogNastradamus, er bandarískur tónlistarmaður ograppari.

Ævisaga

[breyta |breyta frumkóða]

Nas, sem heitir fullu nafniNasir bin Olu Dara Jones, fæddist14. september1973 íQueens íNew York. Hann er sonur Ann Jones og jazztónlistarmannsinsOlu Dara, og á einn yngri bróður, Jabari (oft kallaður "Jungle").

Fjölskyldan bjó í skamman tíma íBrooklyn, en flutti svo tilQueensbridge í Queens. Eftir nokkur ár skildu foreldrar Nas og hann ólst upp hjá móður sinni, ásamt bróður sínum.

Nas hætti í skóla eftir áttunda bekk og fór að seljafíkniefni á götum New York borgar, ásamt því að mennta sjálfan sig með lestri á afrískri sögu og menningu,Kóraninum,Biblíunni ogFive Percent Nation.

Árið1991 kom Nas fram á hljómplötu í fyrsta sinn. Það var í laginu "Live at the Barbeque" á plötuMain Source. Rapphæfileikar hans vöktu mikla athygli í rappheiminum og skömmu síðar bauðMC Serch honum að koma fram í lagi á plötu sem MC Serch var að vinna að.

Nas gerði MC Serch að umboðsmanni sínum og árið1992 skrifaði Nas undirplötusamning viðhljómplötuútgefandannColumbia Records. Margir óttuðust að þetta stóra útgáfufyrirtæki myndi spilla hinum hreina New York stíl sem Nas hafði tileinkað sér, en sá ótti reyndist ástæðulaus.

Fyrsta plata Nas,Illmatic, kom út árið1994 við góðar undirtektir. Platan fékk afbragðsdóma og var sögð hreint meistaraverk. Hún er enn í dag talin ein allra besta plata í sögurapptónlistar.

Þrátt fyrir góðar undirtektir seldist platan þó ekki eins vel og vonast hafði verið til. Nas skipti um umboðsmann og réðSteve Stoute í stað MC Serch.

Önnur plata Nas,It Was Written, kom út sumarið1996. Hún var mun poppvænni en fyrri platan. Mörgum líkaði ekki hin nýja stefna sem Nas hafði tekið og átöldu hann fyrir að hafa vikið frá hinum hráa stíl sem hann hafði áður í von um að bæta söluna. Tvö lög af plötunni, "If I Ruled the World" (sem söngkonanLauryn Hill úrThe Fugees kemur fram í) og "Street Dreams", náðu þó miklum vinsældum og vöktu athygli fleiri tónlistarunnenda á Nas. Önnur athyglisverð lög á plötunni eru "The Message" og "I Gave You Power", sem segir sögu út frá sjónarhorni byssu.

Nas gekk í hljómsveitinaThe Firm, ásamtAZ,Foxy Brown ogCormega. Hljómsveitin gerði samning við útgáfufyrirtæki rapparansDr. Dre,Aftermath Entertainment, og hóf upptökur á plötu hljómsveitarinnar. Cormega var síðar rekinn úr hljómsveitinni eftir að hafa neitað að gera samning við umboðsfyrirtæki Steve Stoute. Í stað hans kom rapparinnNature.

Cormega varð eftir þetta bitur andstæðingur Nas og gagnrýndi hann, Steve Stoute og Nature margoft í lögum sínum.

Árið1997 kom svo út plata The Firm,Nas, AZ, and Foxy Brown Present The Firm: The Album. Platan seldist vel, þrátt fyrir að hafa enga vinsæla smáskífu, en hlaut ekki góða dóma og sneru meðlimir hljómsveitarinnar sér að sólóferlum sínum.

Árið1998 fór Nas að vinna að sinni þriðju sólóplötu, sem átti að heitaI Am... The Autobiography og vera tvöföld plata. Nas reyndi að finna milliveg hinnar hráuIllmatic plötu og hinnar poppvænuIt Was Written. Vinnslu plötunnar lauk í ársbyrjun1999 ogtónlistarmyndband fyrir lagið "Nas Is Like" var tekið upp. En seinni disk plötunnar var lekið áinternetið og Nas neyddist til að minnka plötuna í einfalda plötu, sem hlaut nafniðI Am og var gefin út í apríl 1999.

Gert var tónlistarmyndband fyrir lagið "Hate Me Now", semSean Combs (einnig þekktur semPuff Daddy og P. Diddy) kom fram á. Í myndbandinu voru Nas og Sean krossfestir á svipaðan hátt ogJesús, sem átti að vera táknrænt fyrir hvernig gagnrýnendur krossfestu Nas fyrir að verða of poppvænn. Eftir tökur á myndbandinu snerist Sean (sem erkaþólskur) hugur um krossfestingu sína og bað um að hún yrði fjarlægð úr myndbandinu. Upphaflega útgáfa myndbandsins var þó afhentMTV tónlistarsjónvarpsstöðinni og sýnd á stöðinni. Sean réðst í bræði sinni inn á skrifstofu Steve Stoute og er sagður hafa ráðist á hann og barið hann í höfuðið með flösku. Steve kærði atvikið en féll frá málinu eftir að hann og Sean sömdu um málið.

Columbia Records áætlaði að gefa seinni disk hinnar leknu plötu út í árslok 1999 undir nafninuNastradamus, en á síðustu stundu ákváðu forsvarsmenn fyrirtækisins að Nas ætti að semja algerlega nýja plötu, sem kom svo út í nóvember. Platan fékk frekar slæma dóma, en þó náði lagið "You Owe Me" (sem söngvarinnGinuwine kemur fram í) nokkrum vinsældum. Á plötunni er aðeins eitt af lögum upphaflegu plötunnar, "Project Windows" (semRonald Isley kemur fram í).

Síðar voru leknu lögin notuð ásamt nokkrum öðrum til að gera plötunaThe Lost Tapes, sem kom út árið2002.

Eftir útgáfu Nastradamus skiptust Nas og nokkrir aðrir þekktir rappara á "disslögum", þar sem þeir gagnrýndu og gerðu grín hver að öðrum. Þetta hófst með því að í laginu "Nastradamus" var lína ("If you wanna ball till you fall/I can help you with that") sem rapparinnMemphis Bleek tók sem móðgun þar sem hún virtist gera grín að honum, því í einu lagi hans segir hann"I'm'a ball till I fall". Memphis Bleek gerði gagnárás á Nas í laginu "My Mind Right".

Árið2000 gaf Nas, ásamt nokkrum öðrum röppurum frá Queensbridge, út plötunaNas and Ill Will Records Present QB's Finest. Á plötunni koma meðal annarra framMobb Deep, Nature, Littles,The Bravehearts og Cormega, sem hafði náð tímabundnum sáttum við Nas.

Á plötunni var gagnárás Nas á Memphis Bleek, þar sem hann nefndi flesta tónlistarmenn hljómplötuútgefandansRoc-a-Fella Records, þar á meðalJay-Z. Jay-Z svaraði fyrir sig í lagi sínu "Takeover", þar sem hann sagðiIllmatic einu góðu plötu Nas. Nas gerði gagnárás með laginu "Ether", þar sem hann sakar Jay-Z um að stela texta af plötum hins heitins rapparaNotorious B.I.G., ásamt því að vera öfundsjúkur út í sér frægari rappara.

Lagið "Ether" var eitt af aðallögum næstu plötu hans,Stillmatic. Stillmatic var af mörgum talin marka endurkomu Nas, þar sem hún þótti líkari fyrstu plötu hans en hinum. Platan seldist vel og nokkur lög af henni komust á vinsældarlista. Athyglisvert lag á plötunni er "Rewind", sem segir sögu afturábak.

Jay-Z reyndi að svara fyrir "Ether" með laginu "Supa Ugly". Flestum þótti hann þó ganga of langt, m.a. með því sem jaðraði við hótunum við dóttur Nas. Að lokum sættust þó rappararnir tveir.

Á sama tíma lést móðir Nas úr krabbameini, sem tók mikið á hann og fékk hann nánast til að hætta í tónlistarbransanum. Árið2002 gaf hann þó út plötunaGod's Son, sem hlaut góðar undirtektir og afbragðsdóma og seldist vel. Lagið "I Can", sem inniheldur hluta úr "Fur Elise" eftirBeethoven, náði miklum vinsældum.

Sjöunda sólóplata Nas kom svo út í nóvember2004. Það var tvöfalda platanStreet's Disciple. Á plötunni koma meðal annarra fram faðir Nas, Olu Dara, og eiginkona hans, söngkonanKelis, sem hann giftist í janúar2005.

Nas á eina dóttur, Destiny, úr fyrra sambandi.

Hann rekur sitt eigin hljómplötufyrirtæki,Ill Will Records, sem er nefnt eftir góðum vini hans sem var myrtur.

Hljómplötur

[breyta |breyta frumkóða]

Sólóplötur

[breyta |breyta frumkóða]

Aðrar plötur

[breyta |breyta frumkóða]

Smáskífur

[breyta |breyta frumkóða]
  • "Halftime" (1992)
  • "The World is Yours" (1994)
  • "It Ain't Hard to Tell" (1994)
  • "If I Ruled the World (Imagine That)", ásamtLauryn Hill úrThe Fugees (1996)
  • "Street Dreams" (1996)
  • "Street Dreams [Remix]", ásamtR. Kelly (1996)
  • "Firm Biz", The Firm (Nas,AZ,Foxy Brown ogNature, ásamtDawn Robinson) (1997)
  • "Nas is Like" (1999)
  • "Hate Me Now", ásamtPuff Daddy (1999)
  • "Nastradamus" (1999)
  • "U Owe Me", ásamtGinuwine (2000)
  • "Da Bridge 2001", ásamtMobb Deep,MC Shan,Marley Marl,Cormega og Nature (2000)
  • "Oochie Wally [Remix]", The Bravehearts (2001)
  • "Got Ur Self a Gun" (2001)
  • "One Mic" (2002)
  • "Made You Look" (2003)
  • "Made You Look [Remix]", ásamtJadakiss ogLudacris (2003)
  • "I Can" (2003)
  • "Bridging the Gap", ásamtOlu Dara (2004)
  • "Thief's Theme" (2004)
  • "Just A Moment", ásamtQuan (2005)
  • "Hip-Hop Is Dead" (2006)
  • "Can't Forget About You", ásamtChrisette Michele (2007)

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Nas&oldid=1775133
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp