| Stjörnufræði 20. og 21. öld | |
|---|---|
| Nafn: | Nancy Roman |
| Fædd: | 16. maí1925 Nashville,Tennessee,Bandaríkjunum |
| Látin | 25. desember2018 (93 ára) Germantown,Maryland, Bandaríkjunum |
| Svið: | Stjarnfræði |
| Helstu vinnustaðir: | Yerkes-stjörnuskoðunarstöðin,Chicago-háskóli,Geimferðastofnun Bandaríkjanna |
Nancy Grace Roman (16. maí 1925 – 25. desember 2018) varbandarískurstjörnufræðingur og með fyrstu kvenkyns stjórnendunum hjáGeimferðastofnun Bandaríkjanna. Roman lék lykilhlutverk í gerðHubble-geimsjónaukans og er því oft kölluð „móðir Hubble“.
Nancy G. Roman fæddist íNashville,Tennessee. Móðir hennar var tónlistarkennarinn Georgia Smith Roman og faðir hennar jarðeðlisfræðingurinn Irwin Roman. Vegna vinnu föður hennar flutti fjölskyldan oft: Fyrst tilOklahoma fljótlega eftir fæðingu Nancy, síðan tilHouston, Texas,New Jersey,Michigan og loks tilNevada. Eftir 1955 bjó hún íWashington, DC.[1] Roman sagði að áhugi hennar á vísindum hefði að miklu leyti komið frá foreldrum hennar.[2] Utan vinnu hennar naut Roman þess að fara á fyrirlestra, tónleika og var virk íSamtökum bandarískra háskólakvenna.[1] Hún lést 25. desember 2018 eftir löng veikindi.[3]
Þegar Roman var ellefu ára sýndi hún áhuga ástjörnufræði með því að stofna stjörnufræðiklúbb með bekkjarfélögum sínum í Nevada. Hún og bekkjarfélagarnir hennar hittust einu sinni í viku og lærðu umstjörnumerkin úr bókum. Þrátt fyrir mótlæti frá þeim í kringum sig vissi Roman þegar hún var í menntaskóla að hún vildi fylgja ástríðu sinni og nema stjörnufræði.[4] Hún sótti Vesturháskólann íBaltimore þar sem hún tók hraðbraut og var útskrifuð eftir þrjú ár.[2]
Roman fór íSwarthmore-háskóla árið 1946 þar sem hún hlaut BS-gráðu í stjörnufræði. Á meðan hún lærði þar starfaði hún hjá Sproul-stjörnuathugunarstöðinni. Eftir það náði hún sér í doktorsgráðuna sína í stjörnufræði viðháskólann í Chicago árið 1949. Hún hélt áfram að vera í háskólanum í sex ár í vinnu hjá Yerkes-stjörnustöðinni og ferðaðist stundum til McDonald-stjörnustöðvarinnar íTexas til að starfa þar sem rannsóknarfélagiWilliams Wilson Morgan.[5] Rannsóknarstaðan var ekki varanleg og því gerðist Roman kennari og síðar aðstoðarprófessor.[2] Roman hætti að lokum störfum hjá háskólanum vegna þess hversu lítið það var um langvarandi rannsóknarstöður fyrir konur á þeim tíma.[4] Roman hélt hins vegar áfram störfum hjá gamla skólanum sínum og starfaði hjá Swarthmore sem stjórnarmaður frá 1980 til 1988.[6]

Á meðan hún starfaði hjá Yerkes-stjörnuathugunarstöðinni við Háskólann í Chicago rannsakaði Roman stjörnunaAG Draconis og komst fyrir tilviljun að því að útgeislunarrof hennar hafði algjörlega breyst frá fyrri athugunum.[7] Hún sagði síðar að þessi uppgötvun hennar, sem gerði hana nafntogaða innan stjörnufræðisamfélagsins, hefði verið fyrir heppni.[8]

Er hún sótti fyrirlesturHarolds Urey og náði vísindamaðurinnJack Clark tali af Roman og spurði hana hvort hún þekkti einhvern sem var áhugasamanur um að búa til stjörnufræðiáætlun hjáGeimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA). Hún túlkaði það sem boð og sótti sjálf um starfið,[8] og umsóknin hennar var samþykkt.[2] Roman varð höfuðstjarnfræðingur á geimvísindastofu NASA og sat í því embætti við útgefningu á fyrstu sjörnufræðiáætluninni. Hún var fyrsta konan sem gegndi opinberu embætti hjá geimrannsóknarstofnuninni.[9] Hluti af starfi hennar var að ferðast um landið og flytja fyrirlestra á stjörnufræðideildum, þar sem hún ræddi um áætlunina sem var í þróun. Roman reyndi einnig til að komast að því hvað aðrir stjörnufræðingar vildu læra og kynna þeim kosti geimrannsókna.[2][5][8] Hún var forstöðumaður stjörnufræði- og sólareðlisfræði hjá Geimferðastofnuninni frá 1961 til 1963. Hún gegndi ýmsum öðrum störfum í NASA, þar á meðal stöðu höfuðstjarnfræðings og forstöðumannsafstæðis.[6]