Nu-metal sameinar hljóð úr mörgum tónlistarstefnum og undirstefnum. Einkenniraftónlistar,pönks,hipp hopps,djass,rokks og flestra undirstefna þungarokks finnast í nu-metali. Helstu einkenni nu-metals eru gítar riff, hrynjandi og lækkaður rafbassi. Þetta veldur þungu hljóði sem segja má að sé helsta einkenni nu-metals. Það er ekki jafn mikið af gítarsólóum í nu-metali eins og í öðrum þungarokksstefnum.
Söngurinn í nu-metali er gífurlega fjölbreyttur. Melódískur söngur,rapp og öskur finnast í nu-metal lögum og jafnvel fleiri en einn stíll í einu lagi. Flestar sveitir einkennast af eigin stíl.[1][2]Þar sem stefnan sameinar tvo virkilega ólíka tónlistarheima (þungarokk og hipp hopp) ertískan sem fylgirstefnunni fjölbreytt. Tískan fór samt frekar í áttina að hipp hoppinu þar sem víð föt svo sem bolir, íþróttatreyjur og buxur, hettupeysur og derhúfur voru mest áberandi.[7]
Búningar og grímur eru áberandi í vinsælum nu-metal hljómsveitum. HljómsveitameðlimirSlipknot oggítarleikari sveitarinnar Limp Bizkit,Wes Borland, eru þekktir fyrir að koma fram í búningum.[8]
Uppruni vinsælda þessarar stefnu má rekja til upptökustjóransRoss Robinson. Hann framleiddi fyrstu plöturnar sem kom stóru stjörnum stefnunnar á kortið. Þar á meðal fyrstu plötuKorn,Slipknot ogLimp Bizkit.[9] Það má segja að fyrsta plata Korn marki byrjun senunnar sem fylgi nu-metali. Fyrsta vinsæla lag Korn,Blind, sem kom út árið 1994 fékk spilun áMTV. Tónlistin náði þá til fleiri áhorfenda.[1][5][10]
Það var samt ekki fyrr en árið 1998 sem nu-metal náði almennum vinsældum með plötunniFollow the Leader, sem var önnur plata Korn. Eftir þetta birtust fleiri hljómsveitir með svipaðan stíl. Viðurkenndar þungarokkshljómsveitir eins ogSepultura,Fear Factory,Machine Head ogSlayer fylgdu straumnum og gáfu út plötur sem voru undir áhrifum frá þessari nýju og vinsælu stefnu. Tilraunin heppnaðist betur hjáSepultura en platanRoots náði gífurlegum vinsældum.[11][12] Ekki var hægt að segja það sama um tilraun Slayer en plata þeirraDiabolus in Musica fékk ekki jafn góðar viðtökur.[13]
Senan hélt áfram að vaxa og önnur plata Limp BizkitSignificant Other sem kom út árið 1999 komst á toppinn áBillboard 200. Platan seldist í 643.874 eintökum eftir eina viku í sölu. Árið 2000 náði nu-metal líklega sem hæstum hæðum þegar þriðja plataLimp Bizkit,Chocolate Starfish and the Hot Dog Flavored Water sló sölumet fyrir rokkplötu með yfir milljón eintök seld fyrstu viku eftir útgáfu.[14][15] Seinna á árinu kom svo út mest selda nu-metal plata allra tíma. Það var frumraun hljómsveitarinnarLinkin Park,Hybrid Theory[1][16]. Nu-metal hélt sínum vinsældum áfram þangað til um miðjan fyrsta áratug tuttugustu aldar en ein af síðastu nu-metal sveitum til þess að ná áberandi árangri var hljómsveitinEvanescence. Fyrsta plata þeirraFallen var fjórða söluhæsta plata ársins 2003.[17] Eftir þetta fóru vinsældir stefnunnar dvínandi en sumar af stærstu hljómsveitum stefnunnar starfa enn.[1]