Teiknimyndasögur eru listform sem felst í því að listamaðurinn segir sögu í myndum sem raðað er upp í ákveðna röð. Sögurnar geta verið annað hvort með texta eða án en algengast er að einhver texti fylgi. Algengt er að stuttar teiknimyndasögur (1-5 rammar) birtist í dagblöðum en lengri teiknimyndasögur eru gjarnan gefnar út í blöðum og jafnvel í stærri brotum sem er þá kallað „graphic novels“ á ensku.Teiknimyndasögur eru kallaðarcomics áensku,manga ájapönsku ogbande dessinée eða B.D. áfrönsku.ÍBretlandi er gjarnan talað umcomics sem innlendar teiknimyndasögur encomic books sem teiknimyndasögur fráBandaríkjunum.
Trérista frá um 1470 sem síðan var handmáluð í nokkrum litum og líkist teiknimyndasöguTalblöðrur notaðar í skopteikningu Jame Gillray, parið sem kyssist táknar tvær stríðandi þjóðir og friðarsamning
Í Evrópu er SvisslendingurinnRodolphe Töpffer þekktur fyrir teiknimyndaraðir sínar frá upp úr 1830 en í Bandaríkjunum er guli krakkinn sem teiknaður var afRichard F. Outcault í dagblað í kringum 1890. Í Japan er löng hefð fyrir stjórnmálaskopmyndum en hinar japönskumanga urðu fyrst vinsælar með list listamannsins Hokasai seinna á 20. öld. Fyrirrennarar nútíma teiknimyndasagna eru hellamyndir í Frakklandi sem margar hverjar eru í tímaröð,egypskarhíeróglýfur, Colonna Traiana íRóm,Bayeux-refillinn, myndMichelangelo af síðustu kvöldmáltíðinni íSixtínsku kapellunni og tímamyndirWilliam Hogarth.