Mons liggur milli tveggja lítilla hæðardraga sunnarlega í Belgíu, aðeins 10 km fyrir norðan frönsku landamærin. Áin Haine rennur við norðurjaðar borgarinnar. Næstu stærri borgir eruTournai til vesturs (45 km),Charleroi til austurs (50 km),Brussel til norðausturs (65 km) ogCambrai íFrakklandi (70 km).
Mons hét áður fyrr Castri Locus, sem merkir vinakastali. Ámiðöldum var hins vegar talað umMont du lieu du château, þ.e.fjallið við vinakastalann. Yfirleitt sögðu menn þó aðeins Mont, sem merkir fjall. Síðar breyttist rithátturinn í Mons við áhrif frálatínu. Á hollensku hefur heitið einfaldlega verið þýtt í Bergen, sem merkirfjöll (fleirtala).
Mons varð til á tímumCaesars, en hann lét reisa þar virki og herstöð gegn göllum. Virkið stóð þar sem klukkuturninn er nú. Eftir brotthvarfRómverja lá staðurinn í eyði, nema hvað klaustur var reist þar snemma á miðöldum. Í kringum það myndaðist byggðin. Á12. öld lét Baldvin greifi af Hainaut reisa nýtt virki og varnargarð í kringum bæinn.1295 tók Mons við sem höfuðstaður Hainaut greifadæmisins í stað Valenciennes. Íbúar voru þá orðnir 8.900 talsins.
Borgin erfðist til Búrgúnds og síðar til austurrísku og spænsku línu Habsborgar.1515 létKarl V keisari greifann af Hainaut sverja sér trúnaðareið í borginni Mons. Í sjálfstæðisstríði Niðurlendinga seinna á öldinni var borgin á valdiSpánverja.1572 tókst Lúðvík af Nassau að hertaka borgina og hrekja Spánverja burt. Tilgangurinn var að greiða leið Gaspard de Coligny frá Frakklandi tilNiðurlanda. Sú von brást hins vegar er Coligny var drepinn íBartólómeusarvígunum. Því náðu Spánverjar að hertaka borgina á ný íseptember á sama ári. Frá1580 -1584 var Mons höfuðborgspænsku Niðurlanda. Meðan9 ára stríðið geysaði íEvrópu lagðiLoðvík XIV Frakklandskonungur umsátur um Mons. Hún féll8. apríl1691 eftir níu mánuði. Borgin var á valdi Frakka allt til1697, en við friðarsamninga stríðsins í Rijswijk skiluðu þeir Spánverjum borgina. Íspænska erfðastríðinu hertóku Hollendingar borgina eftir ósigur Frakka í orrustunni við Malplaquet (hjáLille)11. september1709. Í friðarsamningum stríðsins íUtrecht1713 fengu Hollendingar yfirráð yfir Mons, sem nokkurs konar útborg fyrir ágangi Frakka. Að öðru leyti var Belgía undir yfirráðumAusturríkis.
10. júlí1746 hertóku Frakkar borgina enn á ný, en viðvera þeirra stóð stutt yfir. Þeir voru aftur komnir til Niðurlanda1792. Franskur byltingarher og herir Austurríkis börðust í orrustunni við Jemappes (sem í dag er borgarhluti Mons), en þar voru Austurríkismenn gerðir afturreka og hurfu úr landi. Mons var innlimuð Frakklandi og varð að franskri borg. Eftir fyrra fallNapoleons1814 yfirgáfu Frakkar borgina á ný og var hún þá tekinn af Vilhjálmi af Hollandi, sem varð fyrsti konungur Niðurlanda ári síðar. Í belgísku uppreisninni1839 slitu Belgar sig lausa frá Hollandi. Mons tók þátt í uppreisninni og varð í kjölfarið að belgískri borg. Nýja stjórnin í Brussel ákvað að rífa niður öll varnarvirki í borgunum Mons,Charleroi ogNamur. Þeirri vinnu var ekki lokið fyrr en á sjöunda áratug19. aldar. Þetta skapaði mikið byggingapláss fyririðnað og íbúðahverfi. Mikill þungaiðnaður var starfræktur í Mons íiðnbyltingunni og var hann einn mesti efnahagsbakhjarl Vallóníu.
Íapríl1893 hófst allsherjarverkfall í Belgíu, eitt það fyrsta í sögunni í iðnríki, eftir að stjórnin hafnaði almennumkosningarétti. Miklir bardagar blossuðu upp, sérstaklega í og við Mons. Margir létust í átökum við hermenn og lögreglu og hundruðir særðust áður en ástandið komst í eðlilegt horf aftur. Ífyrri heimstyrjöldinni réðustÞjóðverjar inn í Belgíu.23. og24. ágúst1914 átti sér stað mikil orrusta í Mons. Breskur her var staðsettur þar og tók hann á móti þýska hernum. Þetta var fyrsta orrustaBreta í styrjöldinni. Orrustan stóð yfir í tvo daga og hörfuðu Bretar loks undan ofureflinu. Þjóðverjar héldu Mons allt til1918, en þá frelsað kanadískur her borgina. Íheimstyrjöldinni síðari hertóku Þjóðverjar borgina á nýjan leik. Hún varð fyrir talsverðum loftárásum bandamanna sökum iðnaðarins þar. Í septemberlok frelsuðuBandaríkjamenn undir stjórnPattons borgina, eftir nokkra bardaga við hörfandi Þjóðverja. Eftir stríð minnkaði þungaiðnaðurinn talsvert.1967 flutti herdeild NATO til Mons, en hafði áður verið í Fontainebleau í Frakklandi. Ástæða þess að herstöðin flutti til Mons var sú að glæða átti atvinnulíf borgarinnar. Mons hefur verið valin sem menningarhöfuðborg Evrópu fyrir árið2015, ásamt tékknesku borginniPilsen.
Ducasse de Mons eða baraDoudou er árleg hátíð sem haldin er heila viku eftirHvítasunnu í borginni. Hún samanstendur af nokkrum hlutum. Í fyrsta lagi er helgiskrín heilagrar Valþrúðar fengið í hendur borgarstjóra. Daginn eftir er haldið í skrúðgöngu. Helgiskrínið er þá á gullvagni og er gengið til heiðurs heilagrar þrenningar. Göngufólk er prúðbúið skrúðklæðum. Hápunktur hátíðarinnar er helgileikur sem kallast Lumeçon. Leikurinn fer fram utandyra og sýna leikarar, sem allir eru áhugamenn, bardagaheilags Georgs við drekann. Leikur þessi á uppruna sinn á14. öld eftir að borgin lá í lamasessi vegnasvarta dauða. Leikþátturinn var settur á lista munnlegs og óáþreifanlegs menningararfs mannkyns árið2005, en það erUNESCO sem gefur út þann lista.
Íágúst er haldin stríðsminningahátíðinTanks in town til að halda uppá frelsun borgarinnar1944.Skriðdrekar frá heimstyrjöldinni keyra síðari inn í borgina og er það stærsta samansafn heims með skriðdreka frá stríðinu.
Valþrúðarkirkjan er bæði ókláruð og turnlaus í dag
Klukkuturninn (Beffroi) var reistur1661-72 íbarokkstíl. Hann tengist ekki neinni kirkju, heldur ráðhúsinu. Turninn er einkennisbygging borgarinnar og var settur áheimsminjaskrá UNESCO árið2000.
Valþrúðarkirkjan (Collégial Sainte-Waudru) er aðalkirkjan í borginni og er helguð heilagri Valþrúði. Byrjað var að reisa kirkjuna1450 og átti hún að hljóta hæsta kirkjuturn heims er væri 190 metra hár. Öllum framkvæmdum var hins vegar hætt1691 er Loðvík XIV Frakklandskonungur hertók borgina. Kirkjan er því bæði ókláruð og turnlaus í dag. Nokkrar gersemar eru í kirkjunni. Má þar helst nefna helgiskrín með líkamsleifum heilagrar Valþrúðar og gullvagninn sem ber skrínið á helgigöngunni Doudou ár hvert.
Gamla ráðhúsið stendur við aðaltorgið og var reist1440-43. Fyrir framan ráðhúsið er stytta afapa og segir þjóðsagan að sá sem strýkur höfuð hans mun hljóta auðnu.