Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Mið-Evrópa

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mið-Evrópa skilgreind sem Alpalöndin ogVisegrád-löndin.
Mið-Evrópa

Mið-Evrópa er hlutiEvrópu sem liggur á milliAustur-Evrópu ogVestur-Evrópu. Hugtakið hefur verið skilgreint á ýmsan hátt í gegnum tíðina þar sem það er ekki skýrtlandfræðilega afmarkað. Almennt telst þetta svæði telja löndinPólland,Tékkland,Slóvakíu,Ungverjaland,Rúmeníu ogSlóveníu. Eftir fallJárntjaldsins hefur færst í vöxt að teljaAlpalöndin,Þýskaland,Sviss,Austurríki ogLiechtenstein, til Mið-Evrópu, fremur en Vestur-Evrópu. Stundum eruBalkanlöndinKróatía,Bosnía-Hersegóvína,Svartfjallaland,Serbía ,Búlgaría,Albanía ogNorður-Makedónía talin til Mið-Evrópu en það er þó sjaldgæft.

Hugmyndin um Mið-Evrópu byggir einkum á sameiginlegri sögu svæðisins, í andstöðu viðaustrið:Tyrkjaveldi ogRússneska keisaradæmið. Allt tilFyrri heimsstyrjaldarinnar voru þessi lönd einnig í andstöðu viðvestrið vegna íhaldssemi og andstöðu viðfrjálslyndishugmyndir ístjórnmálum. Fyrst eftirSeinni heimsstyrjöld náðulýðræðishugmyndir yfirhöndinni íÞýskalandi ogAusturríki, en á þeim sama tíma féll hugmyndin um Mið-Evrópu algerlega í skuggann af skiptingunni í Austur- og Vestur-Evrópu, eftir því hvort löndin voru á áhrifasvæðiSovétríkjanna eða ekki.

Stundum er sagt að Mið-Evrópa sé það sem Austur-Evrópubúar líti á sem Vestur-Evrópu, og Vestur-Evrópubúar líti á sem Austur-Evrópu.

Afríka
Ameríka
Asía
Evrópa
Eyjaálfa
Úthöf
Aðrir heimshlutar
Sjá einnigheimsálfur
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Mið-Evrópa&oldid=1768511
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp