Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Metalcore

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Metalcore (eðametallic hardcore á ensku) er undirgreinþungarokks sem sameinarharðkjarnapönk og öfgamálm eins ogþrass,dauðarokk ogsvartmálm. Það er þekkt fyrir uppbyggingu ogbreakdown í tónsmíðum þar sem tónlistin brýst út í því miði að fólk hristi hausinn eðaheadbangi við tónlistina. Söngur er vanalega í öskrandi stíl en sveitir hafa í ríkari mæli blandað hreinum söng við hann.

Rætur metalcores eru frá 9. áratug 20. aldar þar sem hljómsveitir eins og Agnostic Front, Cro-Mags, Killing Time, Exploited og Discharge brutust á sjónarsviðið. Á 10. áratugnum komu fram sveitir eins og Integrity, Earth Crisis, Hatebreed, Converge, Shai Hulud og Vision of Disorder.

Í byrjun 20. aldar varð stefnan ein af vinsælustu undirtegundum þungarokks með sveitum eins og Bleeding Through, Avenged Sevenfold, Killswitch Engage, Hatebreed, Atreyu, Shadows Fall, As I Lay Dying, Unearth, Trivium, Bullet for My Valentine og All That Remains. Þær voru sumar undir áhrifum frámelódísku dauðarokki, sér í lagi frá sænsku sveitinniAt the Gates.

Undirgreinar metalcores

[breyta |breyta frumkóða]
  • Melódískt metalcore
  • Mathcore
  • Deathcore
  • Electronicore
  • Progressive metalcore
  • Nu metalcore
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Metalcore&oldid=1759693
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp