Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Manikeismi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Manikeaprestar við skrifborð. Handrit fráGaochang í Kína.

Manikeismi (persneska: آیین مانیĀyin-e Māni;kínverska: 摩尼教;pinyin: Móní Jiào;xiao'erjing: موْنِ كِيَوْ) erutrúarbrögð sem íranski spámaðurinnMani stofnaði á3. öld í ríkiSassanída. Manikeismi gengur út á flóknatvíhyggju þar sem veruleikinn er afsprengi átaka millihinnar góðu, andlegu veraldarljóssins oghinnar illu, efnislegu veraldarmyrkursins.Saga mannsins gengur út á það að ljósið hverfur smám saman úr efnisheiminum og snýr aftur til veraldar ljóssins þaðan sem það kom. Manikeismi á sér rætur ímesópótamískumgnostisisma.

Manikeismi varð fljótt vinsæll meðalarameískumælandi og átti sitt blómaskeið frá 3. til6. aldar. Um stutt skeið var manikeismi aðalkeppinauturkristni sem arftakihefðbundinna rómverskra trúarbragða. Sassanídar bönnuðu manikeisma snemma og manikear voru ofsóttir af bæði kristnum og rómverskum yfirvöldum svo trúarbrögðin hurfu í kjölfarið í vesturhlutaRómaveldis. Síðar voru þeir einnig ofsóttir íKína og í kalífaveldiAbbasída. Trúarbrögðin héldu lengst út í Kína þar sem þau voru stunduð fram á 14. öld. HofiðCao'an íFujian í Kína er talið vera eina manikeahofið sem varðveist hefur.

Sumirvillutrúarhópar íEvrópu ámiðöldum voru sakaðir um manikeisma. Þetta á við umkatara í Vestur-Evrópu,pálista í Armeníu ogbogómíla í Búlgaríu.

  Þessi grein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Manikeismi&oldid=1538954
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp