Manga (漫画 eðaまんが) er japanska og er haft um teiknimyndabækur og prentaðarmyndasögur. UtanJapan eru þær einnig kallaðar Manga eða japanskar teiknimyndabækur. Manga-sögur (möngur) þróuðust við blöndunukiyo-e og hinum vestræna teiknistíl (að miklu leyti fráDisney) og tóku þær á sig núverandi mynd stuttu eftirseinni heimsstyrjöldina. Þær eru oftast prentaðar í svarthvítu, en stundum er kápan og nokkrar af fyrstu síðunum í bókinni í lit.
Þær manga-sögur sem njóta vinsælda er oft breytt íanime og er það gert til að þær höfði til stærri markhóps. Þótt það sé ekki eins algengt er anime seríum stundum breytt í manga (og má þar helst nefnaNeon Genesis Evangelion).
Bókstaflega mætti þýðamanga sem „handahófskenndar myndir“. Orðið komst fyrst í almenna notkun seint um 18. öld þegar verk eins og myndabókin „Shiji no yukikai“ eftir Santo Kyoden (1798) og „Myndir hundrað kvenna“ eftir Aikawa Minwa, sem hafði að geyma fjölda mynda úr teiknibókinni fræguukiyo-e eftir listamanninnHokusai. Hinsvegar vargiga (sem þýðir bókstaflega „fyndnar myndir“) teiknuð af ýmsum listamönnum um 12. öld, og voru líkar manga að því leyti að mikil áhersla var lögð á að segja sögu og notast við einfaldar og listrænar línur.