Manchester er borg í norðvesturhlutaEnglands. Íbúafjöldi er 503 þúsund en yfir tvær milljónir búa ástórborgarsvæðinu. Bærinn myndaðist á tímumRómverja, en hann breyttist fyrst í stórborg meðiðnbyltingunni þegar svæðið varð miðstöð baðmullarvinnslu og vefnaðariðnaðar. Bridgewater-skurðurinn, sem er fyrsti eiginlegi skipaskurðurinn íBretlandi, var opnaður1761 til að flytjakol úr kolanámum við Worsley til Manchester. Fyrstajárnbrautin fyrir farþegalestir í heiminum var lögð frá Manchester tilLiverpool og opnaði1830.
Manchester liggur á sléttlendi rétt vestan viðPennínafjöll og um 50 km fyrir austan ströndina aðÍrlandshafi. Næstu stærri borgir eruBolton fyrir norðvestan (20 km),Liverpool til vesturs (50 km),Stoke til suðurs (60 km) ogLeeds til norðausturs (60 km). FljótiðMersey rennur til vesturs í gegnum borgina uns það mundar í Merseyside. Í borginni sjálfri búa rúmlega hálf milljón, en á stórborgarsvæðinu búa 2,2 milljónir manna. Þannig er Manchestersvæðið þriðja stærsta stórborgarsvæðið í Englandi (á eftirLondon ogBirmingham). Í Manchester er höfn sem liggur við skipaskurðinn Manchester Ship Canal.
Rómverjar nefndu staðinn Mamucium. Það er líklega fengið að láni úr keltnesku, en mamm merkirbrjóst (þ.e.lítil hæð). Aðrir vilja meina að mamm merkimóðir, sem vísar í gyðju í ánni Medlock. Chester er dregið af latneska orðinu castra, sem merkirbúðir (rómverska herstöðin). Þegar engilsaxar settust að á staðnum gáfu þeir honum heitið Memeceaster, sem þróaðist í Manchester. Íbúar Manchester eru kallaðir Mancunians.
Skjaldarmerki borgarinnar er tvískipt. Fyrir neðan er rauður flötur með þremur gulum skáhöltum línum. Fyrir ofan er seglskip á hafi en það vísar til þess að Manchester var og er miðstöð verslunar. Skjaldarberarnir eruantílópa til vinstri ogljón til hægri. Antílópan merkir iðni en ljónið yfirráð. Bæði dýrin eru með rauðu rós Lancashire, sem er konungsmerki. Efst er hnattlíkan með býflugum. Hnötturinn er tákn um heimsverslun borgarinnar. Býflugurnar eru tákn um iðni en Manchester er upphafsstaður iðnbyltingarinnar. Neðst er borði með áletruninniConcilio et Labore, sem merkirMeð visku og iðni. Skjaldarmerkið var veitt1842, ellefu árum áður en bærinn fékk borgarréttindi.
Það voru Rómverjar undir stjórnGnaeusar Iuliusar Agricola sem reistu virki á staðnum 79 e.Kr. meðan þeir herjuðu á keltneska þjóðflokkinn Briganta. Virki þetta var gert úr torfi og viði. Það var endurgert árið 160 og aftur árið 200. Í kjölfarið myndaðist byggð í grennd við virkið er verslunarmenn og iðnaðarmenn settust þar að. Virkið var yfirgefið á miðri 3. öld, þó að fámennur hópur rómverskra hermanna hafi verið á staðnum allt fram til þess tíma er Rómverjar yfirgáfu landið árið 407.
Gamlar byggingar við Shambles Square frá miðri 16. öld
Eftir brotthvarf Rómverja var svæðið meira eða minna autt.Engilsaxar settust að á staðnum á 7. öld, en vísbendingar eru um að keltar ogDanir hafi búið í og við staðnum. Nokkur konungsríki mynduðust. Í stríði milli þeirra er líklegt að bænum Manchester hafi verið eytt 620 af Edwin frá Norðymbralandi og aftur 870 af Dönum. Manchester sjálft var hluti af konungsríki Mersíu (Mercia). Eftir daga Mersíu, þegarnormannar hertóku England1066, varð Manchester hluti af Salford-sýslu í Lancashire. Þar réði Gesle-ættin ríkjum í tvær aldir, sem aftur var undir konung Englands sett. Snemma á13. öld fékk Manchester markaðsréttindi. Á14. öld settust iðnaðarmenn fráFlæmingjalandi að í Manchester og hófu vefnað. Þetta var upphafið að miklum iðnaði í bænum og varð hann brátt að leiðandi miðstöð iðnaðar í Lancashire.
Í borgarastyrjöldinni á17. öld gekk Manchester til liðs við þingið (Cromwell) og því sátu konungsmenn um borgina. Manchester var ekki með varnarmúra en náði samt að verjast. Þegar konungdómurinn var endurreistur í Englandi1660 missti Manchester því öll þingsæti sín fyrir næstu tvær aldir. Þrátt fyrir það varð mikill efnahagslegur uppgangur í borginni, fyrst og fremst með vefnaði og verslun. Til að mynda betri verslunarleiðir voru árnar Irwell og Mersey gerðar skipgengar1736. Árið1761 var Bridgewater-skurðurinn tekinn í notkun en hann er elsti skipaskurður Bretlands. Með tilkomu hans varð bylting í samgöngum á svæðinu. Skip fluttu aðallega kol til Manchester. Þá varð borgin orðin leiðandi í framleiðslu og sölu á vefnaðarvörum.
Baðmullarverksmiðjur í Manchester í kringum 1820Fyrsta járnbraut heims fyrir farþega var tekin í notkun 1830 og gekk hún milli Manchester og Liverpool
Þegar aldamótin1800 gengu í garð átti sér stað mikil bylting í vefnaðarmálum borgarinnar. Með tilkomugufuvélarinnar jukust afköst vefnaðar til muna. Allar aðstæður fyrir uppgang iðnaðar voru til staðar í Manchester. Kol, skipaaðgengi, mannafl og vefnaður. Á fyrstu áratugum19. aldar varð Manchester fyrsta og fremsta iðnborg í heimi. Hún hlaut viðurnefnið Cottonpolis og Warehouse City sökum mikils vefnaðar og verslunar. Annars konar iðnaður þreifst einnig og má þar nefna vélaiðnað og efnaiðnað. Samgöngur voru bættar í takt við vöxt borgarinnar. Skipaskurðirnir voru betrumbættir og fyrsta járnbrautarlest heims með farþega tók til starfa 1830. Hún gekk milli Manchester og Liverpool. Auk farþega flutti lestin einnig vörur til hafnarinnar í Liverpool. Íbúatala borgarinnar margfaldaðist.1801 voru íbúar stórborgarsvæðisins 328 þúsund,1821 voru þeir 526 þúsund og1851 voru þeir orðnir rúmlega milljón. Þeir voru komnir í rúmar tvær milljónir áður en öldin var á enda. Árið1900 var borgin orðin níunda stærsta borg heims. Manchester var einnig fyrsta borg heims þar sem símakerfi tók til starfa.1894 var enn einn skipaskurður grafinn sem gerði úthafsskipum kleift að sigla til hafnar í Manchester. Fyrsta tilbúna iðnaðarhverfi heims reis1896-1910 í Trafford Park þar sem m.a. Ford og Westinghouse ráku verksmiðjur. Samfara iðnbyltingunni og kapítalismanum komu upp kröfur um bætt skilyrði verkalýðsins.Friedrich Engels dvaldi lengi í Manchester og notaði hann aðstæður þar í verk sittThe Condition of the Working Class in England in 1844.Karl Marx sótti Engels heim í Manchester og sá aðstæðurnar með eigin augum. Fyrstu verkalýðsþingin voru haldin í Manchester1868. Borgin var einnig höfuðvígiverkamannaflokksins í Englandi, sem og kvenréttindahreyfingin. Þegar komið var fram á20. öldina höfðu nágrannaborgir eins ogBolton ogOldham farið fram úr Manchester hvað fjölda vefmyllna varðaði. En Manchester var áfram leiðandi í framleiðslu baðmullarvara, enda voru 65% af heimsafurðum unnin á stórborgarsvæðinu. Borgin átti mjög undir högg að sækja íheimstyrjöldinni fyrri og sérstaklega íkreppunni miklu á fjórða áratugnum.
Manchester breyttist mikið íheimstyrjöldinni síðari. Gamli vefnaðurinn minnkaði til muna, en við tók hervæðing. Til að mynda voru herflugvélar framleiddar þar (Avro-vélar ogRolls Royce-mótorar). Því varð borgin fyrir loftárásum þýska flughersins. Þær verstu áttu sér stað 22.-24.desember1940 (Christmas Blitz) er 467 þungum sprengjum og 37 þús eldsprengjum var varpað á borgina. Stór hluti miðborgarinnar eyðilagðist, þar á meðal 165 vöruhús, 200 fyrirtæki og fjölda annarra húsa. 30 þúsund önnur hús skemmdust, þar á meðal dómkirkjan. Þó biðu aðeins 376 manns bana. Eftir stríð breyttist atvinnulíf borgarinnar aftur. Sökum skemmda í miðborginni var hún endurbyggð en nútíma byggingar voru hafðar í fyrirrúmi. Baðmullarmarkaðurinn hrundi en verslun jókst. Höfnin stækkaði og var þriðja stærsta höfn Englands1963. Þegar gámaskipin komu til sögunnar minnkaði vægi hafnarinnar, því að skipin stækkuðu og komust ekki lengur um skipaskurðina. Höfninni var að mestu lokað1982. Þungaiðnaður minnkaði sömuleiðis talsvert, en við tók upplýsingatæknin, fjármagnsfyrirtæki, fjölmiðlar og samskiptatækni. Í borginni eru til dæmis 60 bankar og í fjármagnsgeiranum starfa fimmtán þúsund manns. Í gegnum tíðina hefur írski lýðveldisherinn (IRA) framið hryðjuverk í Manchester. Tvær sprengjur sprungu1992. Þann15. júní1996 sprengdi IRA stóra sprengju (1,5 tonn) við verslunarmiðstöð í miðborginni. Skemmdir voru gríðarmiklar. Mörg hús urðu illa úti og rúður brotnuðu í nær kílómeters fjarlægð. 200 manns slösuðust. Þetta var mesta sprenging sem orðið hefur í Bretlandi fyrr eða síðar.2006 reisBeetham Tower, hæsta bygging Bretlands utan London og hæsta íbúðahúsEvrópu á sínum tíma. Turninn er 169 m hár.
Íbúar í Manchester fylgjast með knattspyrnuleik á skermi í miðborginni
Manchester hefur ávallt verið mikið íþróttaborg. Tvisvar hefur borgin sótt umÓlympíuleikana (sumarleikana1996 og2000), en fékk ekki. Hins vegar voru samveldisleikarnir haldnir þar2002.
Manchester United er eitt sigursælasta knattspyrnulið Englands. Félagið hefur 20 sinnum orðið enskur meistari (síðast2013), 12 sinnum bikarmeisari (FA), 6 sinnum deildarbikarmeistari og hefur unnið góðgerðarskjöldinn 19 sinnum. Á alþjóðavettvangi hefur félagið þrisvar unniðEvrópukeppni meistaraliða/Meistaradeildina (1968,1999 og2008), einu sinni orðiðEvrópumeistari bikarhafa (1991) og einu sinni unnið heimsbikarinn (1999).
Manchester City hefur rokkað nokkuð um deildir síðustu áratugi en á þó nokkra bikara í skápnum sínum, sérlega eftir 2012. Félagið hefur tíu sinnum orðið enskur meistari, 7 sinnum bikarmeistari, 5 deildarbikarmeistari og unnið góðgerðarskjöldinn 7 sinnum. Auk þess hefur félagið unnið Evrópukeppni bikarhafa, Evrópukeppni félagsliða ogMeistaradeild Evrópu.
Manchester er einnig ein helsta rúgbýborgin í Englandi. Þar eru tvö stór lið og nokkur smærri. Eitt elsta rúgbýfélag heims er Mancunians RL en það var stofnað1860.
Krikket er einnig mikið stundað í borginni. VöllurinnOld Trafford Cricket Ground er einn sá þekktasti í Englandi. Meistarakeppnin milli Englands ogÁstralíu (kölluðThe Ashes) hefur verið haldin í Manchester síðan1882.
Manchester Velodrome er fyrsta hjólreiðakapphöll í Englandi. Hún var reist fyrir samveldisleikana2002 en hefur síðan þá verið mikil lyftistöng fyrir hjólreiðaíþróttina í borginni. Höllin hefur haldið HM í íþróttinni nokkrum sinnum.
Ráðhúsið í ManchesterBeetham-turninn er hæsta byggingin og sést víða að.
Ráðhúsið í Manchester er ægifögur bygging við Albertstorgið í miðborginni. Það var reist í nýgotneskum stíl og vígð1877. Turninn er 87 m hár og í honum er klukknaverk með 23 bjöllum. Sú stærsta kallast Great Abel og vegur rúmlega átta tonn. Helsti salur ráðhússins er Stóri salur (Great Hall) og er 30x15 m stór. Hann er skreyttur með tólf stórum veggmálverkum sem sýna atriði úr sögu borgarinnar. Eftir viðbætur1934-38 fékk byggingin tvær göngubrýr í nærliggjandi hús.
Dómkirkjan í Manchester er ein elsta nústandandi bygging borgarinnar. Hún var reist1421-1506 í síðgotneskum stíl og helguðMaríu mey, heilögum Díónýsíusi ogheilögum Georgi. Kirkjan var í upphafi kaþólsk en var breytt í anglíska kirkju skömmu eftir vígsluna.1847 varð hún að dómkirkju.1864 var turninn rifinn og nýr reistur. Hann var ferhyrndur eins og sá gamli en hærri. Kirkjan skemmdist talsvert í loftárásum1940. Viðgerðir stóðu allt til1960. Árið2007 baðst stórfyrirtækiðSony afsökunar á því að hafa notað 3D mynd af dómkirkjunni í Manchester í bardagatölvuleiknumResistance: Fall of Man.
Beetham-turninn (Beetham Tower) er hæsta bygging borgarinnar og er 168 m há. Hér er um íbúðahús að ræða og sem slík hæsta íbúðahúsEvrópu. Byggingin er að sama skapi hæsta hús Englands utan London. Það var vígt2004-2006 og átti að vera þremur hæðum hærra. En sökum þess hve mjótt húsið er, svignar það of mikið í vindi. Mörgum finnst byggingin ófögur.
Járnbrautarstöðin í Liverpool Road er elsta járnbrautarstöð heims. Hún var vígð15. september1830 og notuð fyrir farþegaflutninga til og fráLiverpool, elstu járnbrautarlínu heims. Stöðin er lítil og gerð úr tígulsteinum. Henni var lokað fyrir farþegaflutningum þegar árið1844, er ný lína var opnuð, en notuð áfram fyrir vöruflutninga allt til1975. Þá keypti sjónvarpsfyrirtækiðGranada Television húsið og framleiddi þar sjónvarpsþættinaCoronation Street. Í dag er vísindasafn í byggingunni.
Old Trafford er knattspyrnuvöllur í borginni og heimavöllur Manchester United. Völlurinn rúmar 76 þúsund manns í sæti og er því næststærsti knattspyrnuvöllur Englands (á eftirWembley í London).
Etihad-leikvangurinn er heimavöllur Manchester City. Hann var vígður 2003 og tekur 55 þúsund manns í sæti.