Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Magdeburg

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Magdeburg
Skjaldarmerki Magdeburg
Skjaldarmerki
Staðsetning Magdeburg
SambandslandSaxland-Anhalt
Flatarmál
 • Samtals201 km2
Hæð yfir sjávarmáli
55 m
Mannfjöldi
 (2019)
 • Samtals238.000
 • Þéttleiki1.149/km2
Vefsíðawww.magdeburg.de

Magdeburg er höfuðborg þýska sambandslandsinsSaxlands-Anhalt,hún er þó næststærsta borgin í sambandslandinu (238 þús. íbúar, 2019). Borgin var áður fyrr aðsetur Ottos I keisara og ber viðurnefnið Ottostadt síðan2010.

Lega

[breyta |breyta frumkóða]
Magdeburg.

Magdeburg liggur við ánaSaxelfi fyrir miðju Saxland-Anhalt. Næstu borgir eruBraunschweig til vesturs (60 km),Berlín til norðausturs (70 km) ogHalle til suðurs (60 km).

Skjaldarmerki

[breyta |breyta frumkóða]

Skjaldarmerki Magdeburg er rautt borgarvirki með opnum hurðum. Milli turnanna er grænklædd ungfrú sem heldur á grænum kransi. Ungfrúin á að vera nafngefandi fyrir heiti borgarinnar (ungfrú erMagd á þýsku). Bæði virkið og ungfrúin komu fram sem merki þegar á13. öld. Kransinn merkir hreinleika en það merki kom miklu seinna fram.

Orðsifjar

[breyta |breyta frumkóða]

Upphaflega hét borgin Magadeburg og Magathaburg. Tvær tilgátur eru um uppruna heitins. Sú fyrri er að heitið sé dregið af Magd, sem merkirungfrú, til dæmis skógardís. Sú síðari er að það sé dregið að orðinu Macht (en ekki Magd), sem merkirmáttugur.[1]

Söguágrip

[breyta |breyta frumkóða]
Otto I og Edith frá Englandi koma til Magdeburg (Hugo Vogel 1898, Ständehaus Merseburg)

Upphaf

[breyta |breyta frumkóða]

805 kemur borgin fyrst við skjöl hjáKarlamagnús, sem hafði setið þar á ferðum sínum. Það var þó ekki fyrr en meðOtto I konungi að Magdeburg verður að borg. Á hans tíma voruUngverjar mikil ógn í ríkinu og fékk borgin þá viðeigandi varnarvirki. Árið929 kvæntist Otto I í borginni að ráðiHinriks I föður sínum og fékk hann Edith, dóttur Játvarðs konungs af Wessex íEnglandi. Í brúðargjöf fékk Edith Magdeburg. Otto varð síðar keisariþýska ríkisins. Bæði hvíla þau í dómkirkju borgarinnar. Seinni kona Ottos var Aðalheiður fráÍtalíu og kom hún með ítölsk áhrif á byggingarstíl borgarinnar. Eftir þeirra daga varð Magdeburg mikil verslunarborg. Þannig fannst 11. aldar silfurpeningur frá Magdeburg íSandi áFæreyjum. Borgin var á tímabili meðlimurHansasambandsins.1126 varð Magdeburg að biskupsdæmi. Fyrsti biskupinn var Norbert frá Xanten, sem seinna var lýstur heilagur. Þaðan í frá var borgin stjórnuð af biskupum, allt til1503, en þá fluttu biskuparnir til Halle.

Siðaskipti og stríð

[breyta |breyta frumkóða]
Magdeburg um 1572. Mynd eftir Franz Hogenberg.
Þýskt frímerki frá 1969 um tilraun Guerickes með lofttæmdum hálfkúlum.

Íjúní1524 komMarteinn Lúther til Magdeburg og hóf að predika nýja trú. Borgarbúar meðtóku hana strax, ekki eingöngu trúarinnar vegna, heldur einnig til að minnka áhrifkaþólsku kirkjunnar á stjórnkerfi borgarinnar.17. júlí 1524 fórusiðaskiptin formlega fram í öllum kirkjum borgarinnar, nema í dómkirkjunni, sem enn var stjórnuð af fulltrúa biskupanna. Í kjölfarið fór Georg frá Mecklenborg í herferð gegn Magdeburg og settist um borgina. Umsátrið varaði frá22. september1550 til5. nóvember1551 og héldu borgarbúar út við mikinn skort. Umsátrinu var létt eftir mikið samningsþóf.30 ára stríðið var hörmulegt fyrir Magdeburg.20. maí1631 réðistTilly með keisaraherinn á borgina. Hann brenndi hana niður og drap flesta íbúa hennar. Þar dóu allt að 30 þúsund manns en fjöldamorð þetta er mesta mannfall óbreyttra borgara í stríðinu öllu. Í stríðslok var kveðið á í friðarsamningum að borgin skyldi tilheyraSaxlandi þar til fulltrúi þess lands dæi. Þá ætti borgin að ganga íBrandenborg. Fulltrúi Saxlands hét Otto von Guericke og var hann borgarstjóri Magdeburg til1680. Hann var jafnframt eðlisfræðingur og uppfinningamaður. Sérgrein hans varlofttæmi en hann gerði frægar tilraunir með tveimur hálfkúlum sem aðeins lofttæmið innan í þeim hélt saman. Nokkrir hestar voru fengnir til að toga hálfkúlurnar í sundur en tókst ekki. Með láti Guerickes 1680 varð Magdeburg eign Brandenborgar.

Nýrri tímar

[breyta |breyta frumkóða]
Stórblokkir í stalínískum stíl.

1806 hertókuFrakkar borgina. Ári síðar gafNapoleon hana konungsríkinu Vestfalíu. Við fyrra fall Napoleons1814 varð borgin hins vegar prússnesk og var til skamms tíma höfuðborg héraðsins Saxlands. Borgin kom lítið við sögu næstu áratugi. Eftir valdatökunasista var stofnað til útrýmingarbúðanna KZ Magda í norðurhluta borgarinnar. Auk þess var í borginni (í Liebknechtstrasse) settar upp aukabúðir fyrir Buchenwald. Í búðum þessum létust þúsundirgyðinga og andstæðinga nasista. Fyrstu loftárásir á Magdeburg hófust22. ágúst1940 og var þeim viðhaldið næstu árin. Markmiðið var að eyðileggjaiðnaðinn, sem að hluta var notaður í hergagnaframleiðslu. Verstu loftárásirnar voru gerðar16. janúar1945. Í henni lagðist borgin nánast í rúst. Um 90% miðborgarinnar eyðilagðist. Miðað við mannfall var Magdeburg í fimmta sæti yfir mest eyðilagðar borgir í Þýskalandi.Bandaríkjamenn komu að borginni11. apríl. Þegar nasistar neituðu að gefast upp, var skotið látlaust á borgina í heilan dag. Eftir mikla bardaga náðu Bandaríkjamenn loks að hertaka borgina19. apríl. Íjúní leystuBretar Bandaríkjamenn af en1. júlí var borginni skilað tilSovétmanna, enda á þeirra hernámssvæði. Árið1947 var Saxland-Anhalt stofnað sem sambandslandAustur-Þýskalands. Höfuðborgin var þá Halle. Uppbygging Magdeburg var erfið. Margar byggingar voru ónýtar. Í miðborginni voru sjö kirkjur í rústum og voru allar fjarlægðar. Aðeins dómkirkjan var endurreist. Þess í stað fékk borgin nýja ásýnd með blokkahverfum og breiðgötum í stalínískum stíl.1990 sameinaðist Þýskaland á ný og varð Saxland-Anhalt að nýju sambandslandi. Á þinginu var ákveðið með naumum meirihluta að gera Magdeburg að höfuðborg sambandslandsins í stað Halle. Á móti komu miklir erfiðleikar í atvinnulífinu. Atvinnuleysið olli miklu brotthvarfi íbúa og fækkaði íbúum um 60 þús á aðeins 15 árum. Íbúar voru um 290 þúsund við sameiningu en voru um 230 þúsund árið2005.

Viðburðir

[breyta |breyta frumkóða]
Magdeburger Stadtfest er þjóðhátíð borgarinnar
  • Meile der Demokratie er menningargjörningur í janúar í tengslum við heimstyrjöldina síðari. Hugmyndin var sú að stemma stigu við uppþot nýnasista og minnast látinna í loftárásum stríðsins.
  • Elbauennacht er ljósanótt borgarinnar. Hér er um ljósasjón að ræða með laser-listaverkum, flugeldum og tónlist.
  • Þjóðhátíð borgarinnar kallast Magdeburger Stadtfest og er haldið í maí.
  • Miðaldahátíðin Spectaculum Magdeburgense er haldin í maí og ein stærsta slíka í Þýskalandi.
  • Hinsegindagar eru haldnir í ágúst, en hápunktur þeirra er skrúðganga samkynhneigðra.
  • Rock im Stadtpark er tveggja daga rokkhátíð, en á henni troða aðallega þýskar rokkhljómsveitir upp.

Íþróttir

[breyta |breyta frumkóða]

Handboltaliðið SC Magdeburg er með bestu félagsliðum Þýskalands. Það hefur tólf sinnum orðið þýskur meistari (síðast2001), sex sinnum bikarmeistari (síðast1996) og þrisvar Evrópumeistari (síðast2002). Nokkrir Íslendingar hafa sett mark sitt á félagið. Þar má nefnaÓlaf Stefánsson, sem lék með félaginu1998-2003 ogBjörgvin Pál Gústavsson, sem hóf leik með félaginu2011.Alfreð Gíslason var þjálfari liðsins1999-2006.

Maraþon er hlaupið í borginni íoktóber ár hvert.

Aðalknattspyrnufélag borgarinnar er1. FC Magdeburg, sem þrisvar varð austurþýskur meistari. Liðið varðEvrópumeistari bikarhafa1974, eina austurþýska liðið sem það afrekaði (sigraði þáAC Milan).

Vinabæir

[breyta |breyta frumkóða]

Magdeburg viðheldur vinabæjatengslum við eftirfarandi borgir:

Frægustu börn borgarinnar

[breyta |breyta frumkóða]

Byggingar og kennileiti

[breyta |breyta frumkóða]
Dómkirkjan í Magdeburg
Frúarklaustrið
Þúsaldarturninn
  • Dómkirkjan er einkennisbygging Magdeburg og er jafnframt meðal elstu gotnesku bygginga Þýskalands. Fyrirrennarinn var reistur frá og með árinu962 af Otto I. konungi (síðar keisara) þýska ríkisins. En byggingin nær gjöreyðilagðist í borgarbruna1207. Núverandi bygging var reist1209-1520 eða í rúmlega 300 ár. Kirkjan var byggð í frönskum gotneskum stíl, sem þá var nánast ókunnur í Þýskalandi. Smiðirnir urðu því að læra með smíðinni.1363 var skipið vígt og helgað heilögum Márítíusi og heilagri Katarínu fráAlexandríu. Síðast voru turnarnir reistir. Þeir eru 99 og 100 metra háir.1567 varð dómkirkjan lútersk þrátt fyrir að siðaskiptin urðu rúmlega 4 áratugum fyrr í borginni. Hún er enn lútersk í dag. 1631 eyddi Tilly borginni og drap borgarbúa í 30 ára stríðinu. Einungis 4.000 íbúar sem höfðu lokað sig inni í dómkirkjunni lifðu af. Þegar herdeildir Napoleons náðu til borgarinnar í upphafi19. aldar, notuðu þeir dómkirkjuna sem lager og hesthús. Byggingin skemmdist mikið í loftárásum seinna stríðsins. Gert var við skemmdir strax eftir stríðslok og var dómkirkjan opnuð á ný1955. Í kirkjunni hvíla Otto I keisari og fyrri eiginkona hans Edith frá Englandi.
  • Frúarklaustrið í miðborginni telst með merkustu rómönskum klaustrum Þýskalands. Klaustrið var stofnað1015 en núverandi bygging var reist 1063/4. Þegar borgin brann 1207, eyðilagðist meðal annars dómkirkjan. Þar sem klaustrið slapp, var Maríukirkjan innan þess notuð sem dómkirkja meðan ný kirkja var reist. Þegar siðaskiptin urðu, var klaustrið eina kirkjustofnunin til að viðhalda kaþólskri trú. Það var hins vegar rænt og ruplað í trúarstríðinu1546-47 (Schmalkaldischer Krieg).1597 dó síðasti prófasturinn og upp úr því ákváðu munkarnir að yfirgefa klaustrið, þar sem erfitt var orðið að vera kaþólskur í lúterskri borg. Þegar Tilly eyddi borginni í 30 ára stríðinu 1631, slapp klaustrið við nær allar skemmdir, enda kaþólskt eins og keisareherinn. Eftir það var klaustrið notað í ýmsum tilgangi, til dæmis að hýsahúgenotta þegar borgin var hluti af Brandenborg. Skóli var opnaður þar1698. Þegar Frakkar hertóku borgina í Napoleonsstríðunum, notuðu þeir klaustrið sem riddarabækistöð og herspítala. Maríukirkjan var notuð sem hesthús. Eftir það var klaustrið lagt niður. Það skemmdist töluvert í loftárásum seinna stríðsins. Kór Maríukirkjunnar var endurreistur1947-49 en er notaður af mótmælendum. Með tímanum voru rústirnar endurreistar líka, en þær eru safn í dag.
Græna virkið er skondnasta byggingin í Magdeburg
  • Græna virkið (Grüne Zitadelle) er heiti á nútíma blokk í borginni. Hún er eflaust skondnasta bygging borgarinnar. Blokkin var reist2005 af austurríska listamanninumHundertwasser skömmu áður en hann lést. Neðst eru verslanir og leikhús. Ofar eru hótel og íbúðir. Formið er einstakt og nútímalegt. Á þakinu er gras og jafnvel tré. Hugmyndin var sú að ekki sé gert neitt að ytri veggjunum. Veðrun og gróðurinn muni breyta litnum smátt og smátt. Íbúarnir hafa rétt til að lita og mála eigin ytri veggi svo langt sem hendur og penslar ná út fyrir gluggana. Engin hefur þó enn nýtt sér þennan rétt.
  • Tugaldarturninn (Jahrtausendturm) er 60 metra hár sýningarturn. Hann var reistur 1999 í tilefni af garðasýningunni miklu (Bundesgartenschau) og er úr viði. Hann er hæsti viðarturn Þýskalands og var viljandi reistur eins og hann væri hallandi. Að innan er gengið upp tröppur í spíralformi. Þar er vísindasafn til húsa á 5 hæðum en á 6. hæð er útsýnispallur.

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. Geographische Namen in Deutschland. Duden. 1993. Bls. 176.

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengistMagdeburg.
Fáni ÞýskalandsBorgir í Þýskalandi eftir mannfjölda
1,000,000+
500,000+
200,000+
100,000+
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Magdeburg&oldid=1906404
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp