Maccabi Tel Aviv Football Club erÍsraelsktknattspyrnufélag frá borginniTel Avív, og hluti af Maccabi-samtökunum. Mörg íþróttafélög og lið íTel Aviv eru í tengslum við Maccabi og keppa í ýmsum íþróttagreinum, svo semknattspyrnukörfubolta,júdó,sund,Handbolta og fleiri greinum.Félagið var stofnað árið 1906 (sem HaRishon Le Zion-Yafo), en eftir að félagið flutti sig tilTel Avív breyttu þeir nafni félgsins í Maccabi Tel Aviv. Merking nafnsins Maccabi er – 'Það er engin eins og þú meðal guða' – , í merki félagsins er stjarna Davíðs sem tákn umGyðinglegan uppruna félagsins. Maccabi Tel Aviv hafa unnið langflesta titla allra ísraelskra félaga eða 23 talsins.Maccabi Tel Aviv er eina félagið íÍsrael sem hefur aldrei fallið niður um deild og eitt af þremur Ísraelskum félögum sem tekist hefur komist í riðlakeppniMeistaradeildar Evrópu. EinnÍslendingur hefur leikið fyrir félagið,Viðar Örn Kjartansson,sem lék 62 leiki fyrir þá gulu og skoraði í þeim 32 mörk.