S. aureus er gram-jákvæð kúlulaga baktería sem finnst í klösum sem líkjast mjög vínberjaklösum.S. aureus er mjög algeng bakteríutegund sem finnst á húð manna og í nefi.[2]
MÓSA eru bakteríur sem eru ónæmar fyrir venjulegum sýklalyfjum (methicillin, dicloxacillin, nafcillin, oxacillin o.fl) og cephalosporínum. MÓSA-sýkingar eru sérstakt vandamál í spítölum, fangelsum og dvalarheimilum þar sem sem sjúklingar með opin sár, tæki sem tengt eru líkama og bælt ónæmiskerfi er hættara við smiti en almenningi.