Luzern er stærsta borgin í kantónunniLuzern íSviss 80 þús íbúar (2013) og er jafnframt höfuðborg kantónunnar. Hún er að sama skapi áttunda stærsta borgin í Sviss.
Luzern stendur við vesturenda stöðuvatnsinsVierwaldstättersee, nokkuð miðsvæðis í Sviss og nemur við norðurræturAlpafjalla. FjalliðPílatus gnæfir yfir borgina. Áin Reuss rennur úr vatninu og í gegnum miðborgina. Til borgarinnar heyrir lítið landsvæði við suðurströnd Vierwaldstättersee, sem er að öðru leyti umlukið kantónunniNidwalden. Næstu borgir eruOlten til norðvesturs (50 km),Zürich til norðausturs (60 km) ogBern til vesturs (95 km). Luzern er miðstöð menninga og ferðamennsku í miðhluta Sviss. Flestir eru þýskumælandi.
Eftir aðRómverjar hurfu af svæðinu, settust alemannar þar að. Árið 710 var klaustrið St. Leodegar stofnað á núverandi borgarstæði Luzern, en svæðið kallaðist um þessar mundir Luciaria. Habsborgarar voru eigendur héraðsins á12. öld. Borgin Luzern var formlega stofnuð af bræðrunum frá Eschenbach í lok þeirrar aldar. Stofnárið er ekki þekkt, en það mun hafa verið á bilinu1180-1200. Luzern óx hratt í upphafi, en1250 náði hún þeirri stærð sem hún var allt fram á19. öld. Hún var hliðið að Gotthardleiðinni tilÍtalíu. Þegar Habsborgarar ásældust meiri og meiri völd yfir staðnum, leituðu íbúar í æ ríkara mæli til svissneska sambandsins, sem stofnað var1291.1332 gerði borgin fyrsta samning við sambandið og fékk inngöngu í það á sama ári. Luzern var þar með fyrsta héraðið sem gekk í svissneska sambandið eftir stofnun þess og varð að fimmtu kantónunni. Næstu tvær aldir einkenndust af útþennslu á borgríkinu, enda var Luzern leiðandi aðili í svissneska sambandinu.
Elsta myndin af Luzern er frá 1507. Kapellbrúin er greinileg á miðri mynd.
Árið1520 fórusiðaskiptin fram í nokkrum borgum, en Luzern hafnaði nýju trúnni og hélstkaþólsk. Þetta olli klofningi í sambandinu. Luzern barðist í trúarorrustunni við Kappel1531, þar sem kaþólikkar sigruðu heri siðaskiptaborganna. Trúartogstreitan stóð þó enn í hartnær tvær aldir. En siðaskiptin fóru aldrei fram í Luzern og er hún kaþólsk enn í dag. Það var ekki fyrr en1712 að reformeruðu borgirnar sigruðu í seinna Villmerger-stríðinu.
1798 hertókuFrakkar Luzern, sem og allt svissneska sambandið. Stofnað var helvetíska lýðveldið. Höfuðborg þess var borginAarau til að byrja með. En hún þótti of lítil og var því leitað að heppilegri borg. Þá varð Luzern fyrir valinu og var Luzern því höfuðborg Sviss þar til Bern var kosin sem höfuðborg1848. Þegar þingið flutti frá Luzern variðnbyltingin ekki hafin þar í borg. Árið1860 störfuðu t.d. aðeins 1,7% íbúanna við iðnað, en það var margfalt minna en í öðrum svissneskum borgum. Borgin var enn landbúnaðarborg. Þetta breyttist síðla á19. öld eriðnaður varð æ víðtækari. Frá miðri 19. öld til1913 fjórfaldaðist íbúafjöldinn. Á20. öld stækkaði borgin enn og fór íbúafjöldinn upp í 75 þús þegar mest var í upphafi8. áratugarins. En síðan fækkaði í borginni aftur talsvert. Árið2010 var samþykkt í atkvæðagreiðslu að sameina sveitarfélagið Littau við borgina Luzern. Nú búa þar 75 þús manns á ný, en markmið borgarinnar er að mynda borg með 150 þús manns. Þar með yrði Luzern að fjórðu stærstu borg í Sviss.
Luzerner Fasnacht er stærsta hátíð borgarinnar, sem og Mið-Sviss. Um er að ræða skrautgöngur um götur miðborgarinnar. Oftar en ekki er fólkið skreytt í ýmsum skrýtnum búningum, stundum með skrautvagna.
Fumetto er árleg teiknimyndahátíð (Comic-Festival) í borginni. Hún stendur yfir í níu daga í miðborginni. Sýndar eru nýjustuteiknimyndasögurnar, myndir, listaverk, grafík, sýningar, hreyfimyndir og margt annað. Á hátíðinni hittast margir helstu teiknimyndateiknarar í heimi, sem og margir ungir listamenn og byrjendur.
Rose d'Or (Gullna rósin) er heiti á sjónvarpshátíð sem stofnuð var íMontreux1961. Hér er um sjónvarpsefni að ræða, en eftir sýningar á útvöldu efni eru verðlaunin Gullna rósin veit fyrir besta sjónvarpsefnið. Verðlaunahafar eru oft frá öðrum löndum og meðal verðlaunahafa má nefna Barbra Streisand and other Musical Instruments, The Muppet-Show, The Benny Hill Show, Spitting Image, Mr. Bean,Monty Python og marga fleiri. Hátíðin hefur verið haldin árlega í Montreux frá 1961 til2004, er hún var flutt til Luzern.
Maraþonhlaupið í Luzern er þriðja fjölmennasta Maraþonhlaupið í Sviss. Það hefur verið haldið árlega síðan2007 og eru þátttakendur hátt í 10 þús.
Kapellbrúin er elsta yfirbyggða brú EvrópuLjónastyttan er eftir Bertel Thorvaldsen
Kapellbrücke kallast gamla göngubrúin yfir ána Reuss og er hún einkennnismerki borgarinnar. Hún var smíðuð1365 og tengdi þá gamla bæinn og nýja bæinn. Brúin er elsta yfirbyggða brúEvrópu og næstlengsta yfirbyggða viðarbrú í Evrópu með 204 m. Upphaflega var brúin lengri, en með landfyllingu voru 75 m rifnir niður árið1835. Á gafli brúarinnar eru 111 þríhyrningslaga málverk sem sýna mikilvæga atburði í sögu Sviss. Slíkt er einstakt í Evrópu. Á miðri brúnni er gamall vatnsturn sem reistur var um1300 og er því töluvert eldri en brúin sjálf. Hann var ekki bara notaður fyrir vatn, heldur einnig sem dýflissa, skjalageymsla og pyntingarhús. Í dag er minjagripaverslun í honum.1993 kom upp eldur í brúnni og skemmdi hana talsvert. 78 af 111 málverkum skemmdust, 47 björguðust. 30 myndir var þó hægt að laga. Brúin sjálf bjargaðist og samfara viðgerðum fékk hún ærlega andlitslyftingu.
Ljónastyttan er minnisvarði um fallna hermenn frá Sviss.Loðvík XVI Frakklandskonungur óttaðist um líf sitt um það leyti semfranska byltingin hófst og réði til sín 1.100 svissneska lífverði. ÞegarParísarbúar gerðu atlögu að Tuilerien-kastalanum, vörðust svissnesku verðirnir af mikilli hreysti. Loðvík komst undan í það skiptið, en 760 Svisslendingar létu lífið. Frummyndin er gerð afBertel Thorvaldsen, en Lukas Ahorn fráKonstanz meitlaði ljónið í klettinum. Innskrift nefnir alla fallna svissneska hermenn, sem og þá sem komust lífs af. Bandaríski rithöfundurinnMark Twain sagði, eftir að hafa skoðað ljónið, að þetta væri dapurlegasta og áhrifamesta grjót sem hann hefði séð um ævina.
Jesúítakirkja heilags Franz Xaver er kaþólsk kirkja í miðborginni. Hún var reist1666-77 og er elsta kirkjan í barokkstíl í Sviss. Jesúítakirkjan er þekkt fyrir hinn mikla íburð að innan.
Borgarkirkja heilags Leodegar er mikilvægasta kirkjan í borginni og eitt helsta kennileiti hennar. Hún var reist1633-39 á grunni basilíku sem brann niður 1633 og var hluti af St. Leodegar klaustrinu. Kirkjan er ein af fáum kirkjum sem reist var norðan Alpa í 30 ára stríðinu. Að innan eru ýmsir gamlir munir og listaverk, s.s. hið geysimikla Maríualtari.
Verkehrshaus er heiti á stærsta samgöngu- og samskiptasafni í Evrópu. Þar má sjálestir,bíla,flugvélar,gervitungl, ýmislegt í sambandi viðsjónvarp,útvarp og önnur fjarskipti. Auk þess er þar geimbíó (Planetarium), kvikmyndahús fyrir sérsýningar, listasafn og Swissarena, en hið síðastnefnda er salur með stórri loftmynd af Sviss sem gólfteppi. Safnið var opnað1979 og er á 22.500 m2 svæði.