London (eðaLundúnir á íslensku) erhöfuðborgEnglands ogBretlands. London er þriðja fjölmennasta borg Evrópu á eftirMoskvu ogIstanbúl. Í London búa um 8,8 milljónir (2021). Allt að 14,8 milljónir manna búa ástórborgarsvæði London (2023) sem er það fjölmennasta íVestur-Evrópu. Borgin stendur við endann á 80 km löngumárósum á bökkum árinnarThames í suðausturhlutaEnglands áStóra-Bretlandi. Þar hefur verið byggð í meira en tvö þúsund ár.Lundúnaborg er heiti á hinni fornu miðborg London þar sem nú er miðjafjármálahverfisins. Lundúnaborg var stofnuð afRómverjum í kringum árið 50 og fékk nafniðLondinium. Ríkisstjórn og þing Bretlands (og áður Englands) hefur um aldir verið íWestminster, vestan við Lundúnaborg. Frá 19. öld hefur heitið „London“ vísað til stórborgarsvæðisins sem óx í kringum þessa tvo borgarkjarna og skiptist sögulega milli fimm sýslna:Middlesex,Essex,Surrey,Kent ogHertfordshire.
Í London er sannkallaðfjölmenningarsamfélag: yfir 300 mismunandi tungumál eru töluð þar.[18][19] Rétt innan við 10 milljónir búa innan markaStór-Lundúnasvæðisins sem gerir borgina þá þriðju stærstu í Evrópu miðað við íbúa innan borgarmarka.[20] Í borginni búa 13,4% íbúaBretlands og 16% íbúaEnglands.[21] SamkvæmtEurostat var London með stærstastórborgarsvæði (samanlögð samfelld byggð og atvinnusóknarsvæði) Evrópusambandsins fyrir útgöngu Breta árið 2019.[22]
Talið er aðRómverjar hafi sest að þar sem nú er London um43 e.Kr., í kjölfarinnrásarinnar í Bretland, og nefnt byggðinaLondinium. Þó er talið að uppruni nafnsins sé keltneskur, enKeltar voru fyrir í landinu þegar Rómverjar komu.[26]
Árið61 réðist keltneski ættbálkurinnÍkenar, undir stjórnBóadíkeu drottningar, á borgina og brenndi hana til kaldra kola. Upp úr árinu100 hafði borgin vaxið töluvert og var London þá orðin stærri enColchester, annað helsta vígi Rómverja á Englandi. Næstu aldirnar stækkaði London og náði 60 þúsund manna íbúatölu áður en borginni tók að hnigna samfara hnignun Rómaveldis. Á5. öld var hún nánast yfirgefin.
Um 600 höfðuEngilsaxar stofnað þar nýtt aðsetur sem þeir nefnduLundenwic, í um það bil 1km fjarlægð frá gamla rómverska virkinu, á svipuðum slóðum og þar sem nú erCovent Garden. Þar var líklegast höfn við mynniFleet-árinnar fyrirfiskveiðar ogverslun. Verslun blómstraði þar til hrikalegt bakslag kom árið851. Það ár brugðust varnir nýju borgarinnar algerlega gegnvíkingum sem rændu byggðina og brenndu hana svo til grunna. Víkingatíminn stóð stutt. Tuttugu árum síðar samdiAlfreð mikli, nýrEnglandskonungur, um frið við víkinga og færði borgina aftur á sinn upprunalega stað, inn fyrir rómversku virkisveggina. Hann kallaði borgina „Lundúnaborg“ (Lundenburgh). Upprunalega borgin fékk nafniðEaldwīc („gamla borg“), sem í dag erAldwych.
Eftir þetta dafnaði London undir stjórn ýmissa konunga og varð mikilvæg alþjóðleg verslunarborg og stjórnmálamiðstöð. Árásir víkinga hófust aftur seint á10. öldinni og náðu hámarki um1013 þegar þeir settust um borgina undir stjórndanska konungsinsKnúts ríka. Víkingar neyddu enska konunginnAðalráð til að flýja. Í annarri árás skömmu síðar, náði her Aðalráðs að vinna sigur á víkingum með því að rífa niðurTower-brú með danska setuliðinu á henni. Enn einu sinni var London komið á réttan kjöl.
Knútur tók við ensku krúnunni árið1017 og stjórnaði borg og landi allt til1042. Við lát hans komst krúnan aftur í hendur Engilsaxa þegar stjúpsonur hans,Játvarður góði, tók við völdum. Játvarður endurreistiWestminster Abbey og stækkaði höllina í Westminster. Á þessum tíma var London stærsta og auðugasta borgin á öllu Englandi, en þrátt fyrir það var aðalaðsetur stjórnarinnar íWinchester.
Í kjölfar sigursNormanna íorrustunni við Hastings varVilhjálmur bastarður, þáverandi hertogi af Normandy, krýndur konungur Englands. Krýningin fór fram í nýbyggðuWestminster-klaustri, ájóladag árið1066. Vilhjálmur veitti borgurum London ákveðin forréttindi á meðan á byggingu kastala í suðvesturhorni borgarinnar stóð, til að halda þeim góðum. Þessi kastali var síðar stækkaður af öðrum konungum semLundúnaturn og gegndi fyrst hlutverki konungshallar, en varð síðar fangelsi.
Árið1097 hófVilhjálmur 2. að byggjaWestminster-salinn, nálægt klaustri með sama nafni. Salurinn varð grunnurinn að nýrri höll í Westminster, sem var aðalaðsetur konungshirðarinnar á miðöldum. Westminster varð fljótlega aðsetur hirðdómsstólsins og stjórnvalda og er það enn þann dag í dag. Á meðan var nágrannaborgin, Lundúnaborg, miðstöð viðskipta og verslunar og dafnaði undir eigin stjórn. Á endanum uxu borgirnar saman og mynduðu London nútímans. London tók við af Winchester sem höfuðborg Englands á12. öld.
Hörmungar riðu yfir þegarsvarti dauði geisaði um miðja14. öldina, en þriðjungur borgarbúa lét lífið í farsóttinni.[27] London slapp að mestu við innrásir og borgarastríð á miðöldum, ef frá er skilinenska bændabyltingin árið1381.
Lundúnaplágan mikla sem stóð frá1665 til1666 olli miklum usla í London á17. öldinni. Þetta var síðasta stóra plágan af völdumkýlapestar íEvrópu. Strax í kjölfarið komLundúnabruninn mikli þar sem stór hluti borgarinnar brann. Líklega hefur bruninn valdið dauða smitberandi rotta og þannig átt þátt í að binda enda á pláguna. Endurreisn borgarinnar tók yfir tíu ár.
Á 18. öld einkenndist líf í borginni af glæpum og fátækt.Löggæsla var efld og refsingar voru þungar; Yfir 200 brot vörðuðudauðarefsingu. Frá 1835 til 1925 var London stærsta borg heims og jafnframt stærsta fjármálamiðstöðin. Borgin varð fyrirsprengjuárásum Þjóðverja í fyrri og seinni heimsstyrjöld þar sem 30.000 létu lífið. Stuttu eftir stríð voru þósumarólympíuleikarnir haldnir í borginni. Innflytjendum fráBreska samveldinu fjölgaði.
Á 7. og 8. áratugnum varð borgin miðstöð fyrir ýmsar menningarbyltingar ungmenna.Pönkið varð til þar um miðjan 8. áratuginn. Í tilefni af aldamótunum 2000 voru reistar ýmsar stórbyggingar eins ogÞúsaldarhvelfingin ogLondon Eye.
Sumarólympíuleikarnir voru á ný haldnir í borginni árið 2012. Borgarbúum hefur fjölgað frá 9. áratugnum þegar þeir voru um 6,8 milljónir. Árið 2021 voru þeir tæplega 9 milljónir.
Afmörkun London er óljós vegna þess hvernig borgin hefur vaxið. Miðborgin í London er nefndLundúnaborg (City of London) sem í daglegu tali er oft nefnd „the City“ („borgin“) eða „the Square Mile“ („fermílan“). Borgin margfaldaðist að stærð áViktoríutímabilinu og aftur ámillistríðsárunum, en stöðvaðist áfimmta áratugnum vegnaseinni heimsstyrjaldarinnar. Seinna stöðvaðist uppbygging borgarinnar vegna takmarkana sem borgarstjórnin setti á útþenslu hennar út í nærliggjandi sveitir.
Fjörutíu prósent Stór-Lundúnasvæðisins eru ípóstumdæmi London þar sem orðið „London“ kemur fyrir í heimilisföngum.Símanúmerasvæði London nær yfir svipað svæði, enda þótt sumir hlutar Stór-Lundúnasvæðisins noti ekki London-númer. Stundum er M25-hraðbrautin notuð til að afmarka Lundúnasvæðið og formleg landamæri Stór-Lundúnasvæðisins fara saman við hraðbrautina á nokkrum stöðum. Stór-Lundúnasvæðinu er skipt íInnri London ogYtri London fyrir utanumhald um tölfræði. Oft er líka talað um svæðinNorður-London,Suður-London,Austur-London ogVestur-London í almennu tali.
Mörg hefðbundin hverfi eru á Lundúnasvæðinu og ýmis heiti notuð yfir þau (til dæmisBloomsbury,Knightsbridge,Mayfair,Whitechapel ogFitzrovia). Þetta eru annaðhvort óformleg heiti eða gömlu heiti þorpanna og bæjanna sem eru núna orðin hluti af borginni. Þessi heiti hafa verið í notkun samkvæmt venju án formlegrar afmörkunar.
Margir skemmtistaðir í London eru staðsettir áWest End-svæðinu íWestminsterborg.Leicester Square er torg í West End sem mörg kvikmyndahús standa við og þar eru haldnar alþjóðlegar frumsýningar kvikmynda. Nálægt torginu erPiccadilly Circus sem er þekkt fyrir stórar neonljósaauglýsingar.[28] Þar eru mörgleikhús og barir, krár, næturklúbbar og veitingahús. Í grenndinni erChinatown, kínverska hverfið í London, og austan við það erCovent Garden, verslunarhverfi þar sem eru margarsérverslanir.
ÍIslington er gatan Upper Street, sem nær 1,6km norður fráAngel og er með fleiri bari og veitingahús en nokkur önnur gata í Bretlandi.[30] Eitt fjölsóttasta verslunarhverfi Evrópu er íOxford Street, verslunargötu sem er næstum 1,6 km að lengd og því lengsta verslunargata í heimi. Þar eru margar búðir og stórverslanir eins ogSelfridges.[31] StórversluninHarrods er íKnightsbridge sem liggur suðvestanmegin við Oxford Street. HönnuðirnirVivienne Westwood,Galliano,Stella McCartney,Manolo Blahnik,Jimmy Choo og fleiri hafa aðallega starfað í London. Lista- og tískuhönnunarskólar í London eru frægir um allan heim enda er London alþjóðleg tískumiðstöð eins ogParís,Mílanó ogNew York-borg.
London er með viðamikið samgöngukerfi og samgöngur eru eitt af fjórum sviðum stefnumótunar sem heyra undir borgarstjórn London.[32] Fjárhagsleg völd borgarstjórnarinnar yfir lestarkerfinu eru hins vegar takmörkuð. Til dæmis stjórnar hún ekki þunglestarkerfinu, en í nóvember 2007 tók hún yfir stjórnNorth London Railway ogLondon Overground.[33]Transport for London eropinbert fyrirtæki sem stjórnaralmenningssamgangnakerfinu. Almenningssamgöngur í London eru eitt af mest notuðu almenningssamgöngukerfunum í heimi, en á oft erfitt með stíflur og áreiðanleika á háannatímum. Samgöngukerfið í London hefur verið kallað það besta í heimi.[34]
Neðanjarðarlestakerfi Lundúnaborgar er hjarta samgöngukerfisins. Það rekur ellefu leiðir sem tengjast saman á ýmsum stöðum. Það var stofnað árið1863 og er elsta, lengsta og mest notaðaneðanjarðarlestakerfi heims. Kerfið var með fyrsturafdrifnu brautarlínu í heimi sem hétCity & South London Railway og var tekin í notkun árið1890. Um það bil 3 milljónir manna ferðast daglega í neðanjarðarlestkerfinu, sem gera um milljarð ferða árlega. Neðanjarðarlestakerfið þjónar miðborg Lundúna og mörgum úthverfum í norðurhluta borgarinnar, en í suðurhlutanum er víðtækt úthverfalestakerfi ofanjarðar.
Annað lestakerfi, sem heitirDocklands Light Railway (eða DLR) og notar minni og léttari lestir, var tekið í notkun árið1987. Þetta kerfi nær yfirAustur-London ogGreenwich, báðum megin viðThames-ána. Vöruflutninga- og langferðalestar fara ekki í gegnum miðju borgarinnar heldur ná að einni affjórtán endastöðvum í kringum sögulega miðju borgarinnar. Á þessu er ein undantekning:Thameslink-lestin semFirst Capital Connect stjórnar, og hefur endastöðvar íBedford,Brighton ogMoorgate. Frá tíunda áratugnum gerði aukið álag á léttlestarkerfið og neðanjarðarlestkerfið að verkum að kröfur urðu háværari, sérstaklega frá viðskiptalífinu ogbæjarstjórn Lundúnaborgar, um aðCrossrail-verkefninu yrði hrint í framkvæmd, en það er hátíðnilestarkerfi sem liggur frá austri til vesturs (að hluta neðanjarðar) og átti að kosta um 10 milljarða breskra punda. Leyfi fékkst fyrir verkefninu í október árið 2007 og nýja lestarlínan,Elísabetarlínan, hóf starfsemi í maí 2022. Kostnaður við verkefnið stóð þá í rúmlega 18 milljörðum punda.[35]
Strætisvagnakerfi Lundúna er eitt hið stærsta í heimi. Það starfar allan sólarhringinn, með 9.300 strætisvagna, 675 leiðir og um 5 milljónir farþega daglega.[36]
London er stór alþjóðleg flugmiðstöð og hefur stærstuborgarlofthelgi heimsins. Átta flugvellir hafa „London“ í nafni sínu, en megnið af umferðinni fer um fimm flugvelli.London Heathrow-flugvöllur er einn fjölsóttasti flugvöllur í heimi og þar eru höfuðstöðvarBritish Airways.London Gatwick-flugvöllur hefur ámóta mikla umferð og þangað fljúga nokkur lággjaldaflugfélög. BæðiLondon Stansted-flugvöllur ogLondon Luton-flugvöllur þjóna lággjaldaflugfélögum á skemmri leiðum.London City-flugvöllur er minnsti flugvöllurinn í London og er aðallega fyrir viðskiptaferðir. Stækkun flugvallanna í London er mikið ágreiningsmál.
↑„Revealed: The most crowded skies on the planet“.The Telegraph. Sótt 2. desember 2023. „London: Our capital's collective airport system is the busiest in the whole world. A total of 170,980,680 passengers.“