
Ljóðhús (skosk gelíska:Leòdhas,enska:Lewis) eru norðurhluti eyjunnarLjóðhúsa og Héraðs íYtri Suðureyjum. Flatarmál Ljóðhúsa er 1.700 km². Ljóðhús eru lægri og sléttari en suðurhluti eyjunnar,Hérað, sem er tiltölulega fjöllótt. Landið á Ljóðhúsum er frjósamt og því búa um þrír af hverjum fjórum íbúa eyjunnar þar. Stærsti bærinn í Suðureyjum,Stornoway, er á Ljóðhúsum.
Ljóðhús hafa að geyma marga ólíka vaxtarstaði þar sem fjölbreytt gróður- og dýralíf, svo semgullernir,krónhirtir oghreifadýr, lifir. Þessar tegundir njóta verndar á nokkrum náttúruverndarsvæðum sem er að finna á eyjarhlutanum.
Öldungakirkjan hefur haft mikil áhrif á sögu Ljóðhúsa. Eyjarhlutinn var einu sinni undir stjórn Norðmanna. Lifnaður á Ljóðhúsum er frábrugðinn þeim sem er að finna annars staðar áSkotlandi. Ljóðhýsingar haldasabbatsdaginn hátíðlegan, tala margirgelísku og stunda ennmógröft. Rík saga Ljóðhúsa er varðveitt í þjóðsögum og tónlistarhefð eyjarhlutans.