Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Listaverk

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
The Visitors, myndbandsinnsetning eftirRagnar Kjartansson.

Listaverk,listmunur eðalistgripur erverk sem er afurðlistsköpunar þar semfagurfræði hlutarins er í fyrirrúmi. Dæmi um listaverk erutónverk,leikverk,skáldsögur,höggmyndir,arkitektúr,ljósmyndir,kvikmyndir eðadans. Listaverkið getur verið tímabundið eða varanlegt, efnislegt eða að mestu huglægt.Listasöfn varðveita listaverk eftir tiltekna listamenn. Orðspor listamanna hefur áhrif á gildi verka þeirra. Um listaverk sem gerð eru af atvinnulistamönnum gildir oftasthöfundaréttur listamanns, enalþýðulist ognytjalist getur fallið utan við gildissvið höfundalaga. Listaverk þarf líka að uppfylla þau skilyrði að hafaefnislegt form og vera verulegt að vöxtum til að njóta höfundaréttar. Höfundaréttur gefur listamönnum einkarétt á að hagnast af eintakagerð verka sinna.Listaverkafölsun felst í því að eigna frægum listamönnum verk eftir óþekkta eða minna þekkta listamenn til aðsvíkja út fé.[1]

Algengt er að gera greinarmun á efnislegum og listrænum eiginleikum listaverka.[2] Í sumum tilvikum er gerður greinarmunur á frumriti og eftirmynd; til dæmis fyrstu prentun ljóðabókar eða fyrsta húsi af tiltekinni gerð, sem fá aukið gildi vegna þeirrar stöðu. Eftirmyndir listaverka sem gerðar eru í fáum eintökum með þátttöku eða samþykki listamannsins sjálfs eru oft jafn verðmætar og frumverkið. Til dæmis eru til 16 endurgerðir af pissuskálMarcel Duchamp frá 1917, gerðar með samþykki listamannsins mörgum árum eftir að upprunalega verkið týndist.[3]

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Listaverk&oldid=1913503
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp