Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Lichfield

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Efst til vinstri: dómkirkjan; efst til hægri: fæðingarstaður Samuel Johnsons, mitt til vinstri: Quonians Lane, mitt til hægri: Garrick-leikhúsið; neðst: séð yfir borgina.

Lichfield er borg og sókn íStaffordshire íEnglandi. Borgin liggur um það bil 26 km norðan viðBirmingham, 14 km fráWalsall og 21 km fráBurton upon Trent. Árið 2011 voru íbúar borgarinnar 32.219 en íbúar sveitarfélagsins voru 100.700.

Miðaldadómkirkja með þremur turnspírum einkennir borgina.Samuel Johnson, höfundur fyrstu ensku orðabókarinnar, fæddist í borginni. Sögu Lichfield má rekja til ársins 669, þegarChad af Mersíu stofnaði sókn á svæðinu. Sóknin varð kirkulegi miðpunkturMersíu. Árið 2009 fannstStaffordskírissjóðurinn, stærsti sjóður engilsaxneskra gull- og silfurgripa sem fundist hefur, nálægt borginni.

Þróun borgarinnar hélt áfram á 12. öld.Roger de Clinton víggirti dómkirkjuna og dróg upp götuskipulag að miðbænum sem lifir af ennþá daginn í dag. Blómaskeið Lichfield var á 18. öld þegar hún varð vinsæll áningarstaður meðal vagnstjóra. Á þessum tíma blómstraði menning í borginni, en þar bjuggu fræðimenn svo sem Samuel Johnson,David Garrick,Erasmus Darwin ogAnna Seward. Í orðum Johnsons var Lichfield „borg heimspekinga“.

Heimild

[breyta |breyta frumkóða]
 England
 Skotland
 Wales
Norður-Írland
  Þessi Englandsgrein sem tengistlandafræði erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Lichfield&oldid=1630891
Flokkar:
Faldir flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp