Li Qiang (kínverska: 李强;pinyin: Lǐ Qiáng; f. 23. júlí 1959) erkínverskur stjórnmálamaður og áttundi og núverandi forsætisráðherraAlþýðulýðveldisins Kína frá mars 2023. Hann hefur verið næstæðsti meðlimurinn í fastanefnd stjórnmálanefndarkínverska kommúnistaflokksins frá október 2022. Hann var áður flokksritari Kommúnistaflokksins íSjanghæ frá 2017 til 2022, flokksritari íJiangsu-héraði frá 2016 til 2017 og héraðsstjóriZhejiang frá 2012 til 2016.
Li gekk í Kommúnistaflokkinn árið 1983 og varð ritari ungliðahreyfingar flokksins íRui'an,Zhejiang. Hann vann síðar hjá borgaramáladeild héraðsins og varð flokksritari í Yong Kang íWenzhou, ritari stjórnmála- og lagamálefna í Zhejiang og síðan aðstoðarflokksritari héraðsins. Hann varð héraðsstjóri Zhejiang árið 2012, flokksritari Jiangsu-héraðs árið 2016 og loksins flokksritari í Sjanghæ árið 2017. Sama ár hlaut Li sæti ístjórnmálanefnd kommúnistaflokksins.
Á stjórnartíð sinni í Sjanghæ lét Li opnaSTAR Market-kauphöllina, hafði umsjón með erlendum fjárfestingum í borginni eins og byggingurisaverksmiðjuTesla, Inc., auðveldaði innlendum innflytjendum að öðlast dvalarleyfi í borginni og lét byggja fimm nýja bæi til að bæta úr skorti á byggðarlandi. Hann skipaði jafnframt tveggja mánaða útgöngubann í Sjanghæ árið 2022 vegnakórónuveirufaraldursins, sem hafði mjög neikvæð áhrif á efnahag borgarinnar og hefur sætt gagnrýni.[1] Li hlaut engu að síður stöðuhækkun til fastanefndar stjórnmálanefndarinnar síðar á árinu 2022 og varð forsætisráðherra Kína árið 2023. Li hlaut nánast öll 2.900 atkvæðin á flokksþingi Kommúnistaflokksins.[2]
Li hefur unnið ásamt núverandi aðalritara Kommúnistaflokksins,Xi Jinping, í Zhejiang og er álitinn náinn bandamaður Xis.[3] Þrátt fyrir að vera náinn Xi er Li almennt talinn hlynntur viðskiptafrelsi.