Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Leicester Square

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Leicester Square um kvöldin.

Leicester Square (borið fram[/ˈlɛstər skwɛər/]) ertorg eingöngu fyrir fótgangendur íWest End íLondon, áEnglandi. Torgið liggur íWestminsterborg vestan viðCharing Cross Road, norðanTrafalgar Square og austan viðPiccadilly Circus. Nú á dögum er svæðið umkringt afkvikmyndahúsum,veitingahúsum,kráum,næturklúbbum og er yfirleitt mjög fjölsótt, sérstaklega um helgar. Leicester Square er miðpunktur kvikmyndahúsanna í London og það er eitt götumerki á torginu með nafninu „Theatreland“. Talið er að kvikmyndahúsið með flestum sætum (yfir 1600) og stærsta tjaldið sé við torgið. Torgið er aðalstaðurinn í London þar sem stórar frumsýningar eiga sér stað.London Film Festival er haldin árlega á torginu.

Í miðju torgsins liggur lítill garður þar sem er stytta frá19. öldinni afWilliam Shakespeare, umlukin afhöfrungum. Á hverju horni garðsins er brjóstmynd, þessar brjóstmyndir sýna vísindamanninnIsaac Newton;Joshua Reynolds, fyrsta forsetaRoyal Academy; skurðlækninnJohn Hunter og málarannWilliam Hogarth.

  ÞessiLundúnagrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Leicester_Square&oldid=1739809
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp