Lax (fræðiheiti: Salmo) er ættkvísl fiska af laxaætt (Salmonidae) og telur um fimmtíu tegundir. Á íslensku orðið lax er samheiti nokkurra fisktegunda af ættlaxfiska, sem einnig inniheldursilunga. Heimkynni laxa er íAtlantshafi ogKyrrahafi, og einnig í ýmsumstöðuvötnum.
Smáir eða miðlungsstórir fiskar, all-þéttvaxnir og nokkuð þunnvaxnir, með mjög sterka stirtlu, en þó vel vaxnir og rennilegir. Höfuðið er miðlungstórt, frammjótt og munnurinn nokkuð stór, með sterkum hvössum tönnum á miðskolts- og efraskoltsbeinum, gómbeinum, plógbeini, tungu og neðra skolti. Gelgjur 9-13, þunnar og breiðar (sem bjúgsverð), tálknbogatindarnir stuttir og digrir. Uggar eru allir smáir, nema spoðurinn; kviðuggarnir eru undir bakugga og dálítil húðtota aftan við rót þeirra. Hreistrið er fremur smátt, slétt; rákin heil. Skúflangar margir. Liturinn er meira eða minna dröfnóttur og seiðin með þverrákir (bröndótt) eða bletti á hliðum. Tíðast fá þær hrygningarbúning og hængarnir eru að jafnaði stærri en hrygnurnar. Annars er litur og margt annað mjög breytilegt á sömu tegundum eftir aldri, dvalarstað, árstíð o. fl[2].
Ættkvíslin á heima viða í tempruðum og köldum hlutum norðurhvelsins, bæði í Evrópu, Asíu og Ameríku, einkum í kaldtempruðum löndum og sumar tegindir hafa verið fluttar frá Ameríku til Evrópu eða til suðurhvelsins[2].
Laxar eru göngufiskar. Þeirklekjast út í ferskvatni og þar alastseiðin upp, oftast í þrjú ár, en ganga þá til sjávar, þar sem laxinn er svo þangað til hann verður kynþroska. Það tekur oftast 1-3 ár. Þá gengur hann aftur upp í ána sem hann ólst upp í og hrygnir þar. Yfirleitt gengur hann í árnar á sumrin, frá maí fram í október, en þó langmest um mitt sumar.
Allar tegundir hrygna aðeins í ósöltu vatni, en margir lifa langdvölum í sjó; ýmsir náttúrufræðingar líta svo á, að þær séu að uppruna í raun og veru sjófiskar, sem hafi smámsaman leitað upp í ósalt vatn til hrygningar og hafi sumar orðið innlyksa þar[2].
Hér á landi eru aðeins tvær tegundir af þessari ættkvísl:atlantshafslax (Salmo salar) ogurriði (Salmo trutta)[3].
Laxveiði hefur verið stunduð á Íslandi frálandnámsöld[heimild vantar]. Alls veiðist lax í um 80 íslenskum ám. Laxveiðiár eru flestar á svæðinu fráÞjórsá vestur og norður um land aðLaxá í Aðaldal. Fyrr á öldum var laxinn veiddur í net og laxakistur en nú er aðeins leyft að veiða hann í net á örfáum stöðum, annars er hann veiddur á stöng. Nú er lax einnig alinn íeldisstöðvum og er þar þá frá því að seiðin klekjast út þar til fullvöxnum laxinum er slátrað.
Lax er vinsæll matfiskur og er talinn hollur vegna þess að hann inniheldur mikið afOmega-3-fitusýrum. Hann er soðinn, steiktur og grillaður en einnig reyktur eðagrafinn. Einnig er hann mjög vinsæll ísashimi ogsushi.