Langafasta, einnig kölluðsjöviknafasta, hefst áÖskudegi,miðvikudegi í 7. viku fyrirpáska.Föstuinngangur stendur frá sunnudeginum á undan og getur borið upp á1. febrúar til7. mars og fara þeir víðast hvar í hinni vestrænu kirkju fram með fögnuði fyrir föstutímann. Á Íslandi er í dag er ekki haldið upp á sunnudaginn lengur en hann hefur þó verið tengdurÆskulýðsdegi þjóðkirkjunnar, haldið er aftur á móti upp á mánudaginn meðBolludegi, þriðjudaginn meðSprengidegi og svo hefst Langafasta á miðvikudeginum meðÖskudegi.
Siður er á Íslandi að á lönguföstu séuPassíusálmarHallgríms Péturssonar lesnir íRíkisútvarpinu.
Lönguföstu kristinna má rekja til 40 daga föstuGyðinga fyrir páska. Heilbrigðissjónarmið virðast hafa ráðið miklu um föstusiði eftir landsvæðum og síðar gildi þess meðalhirðingja að fella ekki lambfylltar ær sem áttu að bera á páskunum. Gyðingar skipuðu því bann við kjötáti sjö vikurnar fyrir Páska og er það frumgerð Lönguföstu eins og hún er tímasett í dag. Páskarnir voru þvíuppskeruhátíð og nýfæddum lömbum slátrað við mikil hátíðarhöld. Páskalambið semtrúartákn er frá þessum tíma runnið. Á dögum Krists voru gyðingar ekki lengur hirðingjar en páskalambið lifði áfram sem trúartákn en í stað þess voru þeir orðin akuryrkjuþjóð og því var hátíð ósýrðabrauðsins búin að bætast við tákn Páskanna.
Páskafasta kristinna manna var upphaflega ekki lengri enföstudagurinn langi og laugardagurinn eftir eða sá tími semJesús hvíldi í gröf sinni. Um miðja3. öld var þó víða orðið siður meðal kristinna safnaða að fast eina til tvær vikur fyrir Páska. En á fyrri hluta4. aldar varð 40 daga fastan ráðandi. Með því var föstutími gyðinga tekin upp að nýju en þá undir þeim formerkjum að Jesús hafi fastað 40 daga í eyðimörkinni ogMóses dvalist jafnlengi áSínaífjalli. Um miðja5. öld útskýrðiLeó páfi 1. tilgang lönguföstu sem að hún ætti að undirbúa sálina fyrir páskaundrið með innri hreinsun og helgun. Hún var því tími iðrunar fyrir drýgðar syndir. Sjálf fastan var mikilvægasti þáttur þessa undirbúnings.
Föstuhald var misstrangt íkaþólskum sið.Kjöt var efst á bannlistanum, þáegg ogsmjör, svofiskur, næstgrænmeti ogmjólkurvörur en ströngust var fasta upp ávatn og brauð. Mismunandi var hve mikið eða hve oft mátti neyta þessa matar en fasta er ekki megrun né svelti heldur aðhald og agi í mataræði.
Föstuinngangur er upphaf langaföstu sem stendur yfir þrjá daga fyriröskudag, frá sunnudegi til þriðjudags. Hann fer víðast fram með fögnuði fyrir föstutímann. Gleðskapur við upphaf föstunnar á sér fornar rætur og hefur runnið saman viðvorhátíðir íSuður-Evrópu. Algengt var að stéttir samfélagsins hæfu föstu hver sinn dag í föstuinngang og gat því orðið samfeldkjötkveðjuhátíð í nokkra daga. Viðsiðaskiptin var gerð hörð hríð að þessum siðum og til dæmis bannaði Danakonungur föstugangshlaup í löndum sínum á17. öld en ekkert er vitað um slíka skemmtun á Íslandi fyrr en á18. öld. Heimildir geta um matarveislur á þriðjudaginn, sprengidagskvöld, og telja má víst að saga þeirra nái aftur til kaþólskra tíma. Ekki var haldið upp á mánudaginn fyrr en á19. öld með Bolludeginum en miðvikudagurinn hafi breyst úr iðrunardegi í skemmtidag eftir siðaskiptin á16. öld.