LTE (enska:Long Term Evolution) eða4G LTE er staðall fyrir þráðlausagagnasendingu. Staðallinn er byggður áGSM/EDGE ogUMTS/HSPA nettæknum, en bæðibandbreiddin og hraðinn eru aukin. Samtökin3GPP þróaði staðalinn.
Heimsins fyrsta opinbera LTE-þjónusta fór í loftið14. desember2009 íÓsló ogStokkhólmi en hún er rekin afTeliaSonera. Mörg farsímafyrirtæki sem reka GSM/UMTS ogCDMA þjónustur ætla eða eru að uppfæra netin sín fyrir LTE. Ætlast er til þess að LTE verði heimsins fyrsta staðalfarsímaþjónusta, en LTE-þjónustur eru sendar út á mismunanditíðnum á mismunandi svæðum. Þetta þýðir að farsímar þurfi að geta móttekið mismunandi tíðnir til að virka um allan heim.
Þó að LTE-staðallinn sé auglýst sem4G-þjónusta uppfyllti hann ekki kröfurnar fyrir 4G semITU-R hafði sett fram í upphafi. Vegna þrýstings frá farsímafyrirtækjum og framfara í 3G-staðlinum semWIMAX,HSPA+ og LTE hafa í för með sér ákvað ITU að LTE-þjónustur mætti kalla „4G“.