Lúxemborg lék stórt hlutverk í söguLoftleiða þegar ríkið var næstum hið eina sem leyfði Loftleiðavélum að lenda á flugvelli sínum en í landinu var ekkert ríkisflugfélag starfandi sem hefði getað tapað á samkeppni við Loftleiðir í Ameríkufluginu. Loftleiðir settu aftur á móti stórt strik í reikning flugfélaga á borð viðSAS,Lufthansa og önnur ríkisrekinflugfélög í Evrópu með því að bjóða flugferðir til Norður-Ameríku á mun lægra verði en áður hafði þekkst.
Elsta heimild um heitið er orðiðLucilinburhuc („lítið virki“, úrlützel „lítil“ ogburg „borg“, „virki“) sem kemur fram á landakorti frá 963. Orðið vísar til lítils virkis frá tímum Rómverja sem var reist við gatnamót vega milliArlon,Trier ogThionville. Árið 1056 kemur það fyrir semLucelenburc og árið 1261 semLucembour. Árið 1244 kemur orðiðLuxemburgum fyrir í latínutexta. Þýska orðmyndinLuxemburg kemur fyrst fyrir 1377 og sú franskaLuxembourg árið 1446. Lúxemborgska orðmyndinLëtzebuerg sem kemur fyrir í móselfrankversku kemur fyrir semLützenburg eðaLützelburg í eldri heimildum.Luxemburg er þýsk umritun á frankverska heitinu.
Greifadæmið Lúxemborg varðhertogadæmi árið1354 og áVínarþinginu1815 var það gert aðstórhertogadæmi ásamt sjö öðrum héruðum í Evrópu. Lúxemborg er nú eina stórhertogadæmið sem eftir er.
Íbúar Lúxemborgar tóku þátt íBelgísku uppreisninni sem leiddi til stofnunarBelgíu árið1830. MeðLundúnasamningnum1839 urðu tveir þriðju hlutar stórhertogadæmisins að belgísku sýslunniLuxembourg en afgangurinn var enn í konungssambandi við Holland. Um helmingur íbúa hertogadæmisins bjó í þessum þriðjungi. Landið fékk sína fyrstustjórnarskrá árið 1841 og varð hluti af þýska tollabandalaginu 1842.
Hugmyndir voru áfram uppi um að Lúxemborg gengi til Frakka, Belga eða Þjóðverja, en þegarVilhjálmur 3. Hollandskonungur tók tilboðiNapóleons 3. í landið árið1867 hafnaði þýski kanslarinnOtto von Bismarck því og hratt þannigLúxemborgardeilunni af stað. Napóleon krafðist þess að Prússar drægju herlið sitt frá Lúxemborg og hótaði stríði. Deiluaðilar mættust á ráðstefnu í Lundúnum og meðLundúnasamningnum var deilan leyst þannig að Prússar drógu herlið sitt frá Lúxemborg sem skyldi verafullvaldahlutlaust ríki en áfram innan þýska tollabandalagsins. Samningurinn fól líka í sér að stærstur hluti Lúxemborgarvirkis var rifinn og hernaðarlegt mikilvægi þess þannig gert að engu.
Stórhertogadæmið gekk til næsta karlkyns erfingja Vilhjálms 3. við lát hans en dóttir hans tók við konungdómi í Hollandi. Þjóðverjar hernámu landið ífyrri heimsstyrjöld en ríkisstjórnin kaus að halda sig við hlutleysi. Eftir stríð voru uppi háværar kröfur meðal belgískra stjórnmálamanna um að Lúxemborg yrði innlimuð í Belgíu. Árið 1921 gerðu löndin með sér efnahagsbandalag. Árið 1920 varð Lúxemborg hluti afÞjóðabandalaginu.
Lúxemborg lýsti áfram yfir hlutleysi þegarsíðari heimsstyrjöld braust út en10. maí1940 lagði þýski herinn landið undir sig. StórhertogaynjanKarlotta og ríkisstjórnin flúðu land, fyrst til Frakklands og síðan tilLondon. Landið var hernumið til1942 þegar þýska stjórnin gerði það að þýska héraðinuMoselland. Íbúar voru gerðir að þýskum þegnum og 13.000 voru kvaddir til herþjónustu. Íbúarnir mótmæltu og þar sem franska var bönnuð tóku margir upp á því að tala lúxemborgsku til að forðast þýskuna. Allsherjarverkfall 1. til 3. september 1942 var viðbragð við herkvaðningunni en þýski herinn barði það niður af hörku, tók 21 af lífi og sendi hundruð í fangabúðir.
Eftir lok síðari heimsstyrjaldar hvarf Lúxemborg frá hlutleysisstefnunni og varð stofnaðiliNATO árið1949. Landið gekk ímyntbandalag með Belgíu og stofnaði efnahagsbandalagiðBeNeLux með Belgíu og Hollandi 1944. Árið1951 tók landið þátt í stofnunEvrópubandalagsins með undirritunRómarsáttmálans. Landið hefur oft gegnt hlutverki milligönguaðila og hlutlauss svæðis í deilum milli nágranna sinna.Evrópudómstóllinn var stofnaður þar árið 1952. Lúxemborg erlágskattaríki og fjármálastarfsemi hefur vaxið frá lokum7. áratugarins. EftirLúxemborgarlekann 2014 hefur það legið undir ámæli um að vera miðstöð alþjóðlegraskattaundanskota.
Í Lúxemborg erþingbundin konungsstjórn. Samkvæmt stjórnarskránni frá 1868 liggur framkvæmdavaldið hjástórhertoganum ogríkisstjórn. Stórhertoginn geturrofið þing og verður þá að boða til nýrra kosninga innan þriggja mánaða. Frá 1919 liggur fullveldið hjáþjóðinni og stórhertoginn fer með það í samræmi við stjórnarskrána og lögin.
Löggjafarvaldið er hjáþinginu sem situr í einni deild. Þingmenn eru 60 talsins og eru kosnir í fjórum kjördæmum til 5 ára í senn. 21 mannsríkisráð, sem stórhertoginn skipar, hefur ráðgefandi hlutverk í lagasetningu þingsins.
Í stórhertogadæminu eru þrjú lægri dómstig (friðdómarar) íEsch-sur-Alzette, borginniLúxemborg ogDiekirch, tveir umdæmisdómstólar (í Lúxemborg og Diekirch) og hæstiréttur (í Lúxemborg) sem inniheldur bæði áfrýjunardómstól og stjórnlagadómstól.
Lúxemborg skiptist í þrjú umdæmi sem aftur skiptast í 12 kantónur og 105 sveitarfélög. Tólf sveitarfélög hafa stöðuborgar og af þeim erLúxemborg stærst.
Lúxemborg er eitt af minnstu löndum Evrópu og er að stærð í 179. sæti af 194 sjálfstæðum ríkjum heims. Landið er um 2.500 ferkílómetrar að flatarmáli, 82 km að lengd og 57 km að breidd. Það liggur á milli 49 og 51°N og 5 og 7°A. Í austri á Lúxemborg landamæri að þýsku sambandslöndunumRínarlandi-Pfalz ogSaarlandi. Í suðri liggur það að franska héraðinuLorraine. Í vestri og norðri liggur það að belgíska héraðinuVallóníu, einkum sýslunumLuxembourg ogLiége.
Þrátt fyrir smæð landsins er landslag í Lúxemborg fjölbreytt. Norðurhluti landsins nefnistOesling. Hann er hluti afArdennafjöllum og er hæðóttur og dreifbýll. Þar er hæsta hæð landsins,Kneiff, í 560 metra hæð. Stærsti bærinn erWiltz með um 6.000 íbúa. Mið- og suðurhluti landsins nefnistGutland. Sá hluti er mun þéttbýlli og skiptist í fjóra landshluta.Lúxemborgarhálendið er stór sandsteinsmyndun þar sem höfuðborgin stendur. Austan við hana erLitla Sviss með klettamyndanir og þétt skóglendi. Neðst liggurMóseldalurinn, við suðausturlandamæri landsins. Í suðri og suðvestri eruRauðu löndin meðjárnríkum jarðvegi og iðnaðarframleiðslu.
Þrjár ár mynda landamæri Lúxemborgar og Þýskalands:Móselá,Sauer ogOur. Aðrar helstu ár landsins eruAlzette,Attert,Clerve ogWiltz. Árdalir Sauer og Attert mynda mörkin milli Oesling og Gutland. SamkvæmtUmhverfisvísitölunni 2016 var Lúxemborg í 20. sæti yfir lönd með áhrifaríkustu umhverfisstefnuna[1]. Í rannsókn frá 2014 var borgin Lúxemborg auk þess í 6. sæti af 64 yfir lífvænlegustu borgir heims[2].
Í Lúxemborg er ríkjandiúthafsloftslag sem einkennist af mikilliúrkomu, sérstaklega síðsumars. Áhrif Atlantshafsins eru meiri í norðurhlutanum en suðurhlutanum. Sumur eru svöl og vetur mildir. Ársúrkoma er 782,2 mm. Meðalhiti er 0,8° í janúar og 17,5°í júlí.
Íbúar Lúxemborgar eru flestirrómversk-kaþólskir og talalúxemborgsku semmóðurmál. Í landinu búa auk þess stórir hópar innflytjenda með ríkisfang í öðrum Evrópulöndum. Flestir koma fráPortúgal. Margt í menningu landsins ber með sér að það er á mörkum tveggja menningarsvæða, þess frönskumælandi og þess þýskumælandi.
Í Lúxemborg eru þrjú opinber tungumál:lúxemborgska,franska ogþýska. Lúxemborgska ermiðháþýskt mál með mörgum tökuorðum úr frönsku. Hún ermóðurmál meirihluta íbúa landsins og hefur sérstöðu semþjóðtunga en er lítið notuð semritmál. Kennt er á lúxemborgsku fyrstu árin í barnaskóla en síðan skipt yfir í þýsku. Í framhaldsskóla er kennt á frönsku, sem er líka algengasta viðskiptamál og stjórnsýslumál landsins. Auk þessara þriggja tungumála erenskunám skylda og flestir íbúar geta talað ensku.
Engin opinber tölfræði er til yfir aðild að trúfélögum þar sem stjórninni er óheimilt að safna upplýsingum um slíkt. Samkvæmt könnunEvrópuráðsins frá 2012 töldu tæplega 70% svarenda sig vera rómversk-kaþólska og um 20%guðleysingja eðatrúleysingja. Um 7% sögðust aðhyllast önnur kristin trúarbrögð og 4% önnur trúarbrögð en kristin[3].
↑Giap et al. (2014). A new approach to measuring the liveability of cities: the Global Liveable Cities Index.World Review of Science, Technology and Sustainable Development 11(2): 176-196.PDFGeymt 9 janúar 2016 íWayback Machine