Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Kristni

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ýmsar Kristsmyndir.

Kristni ereingyðistrú afabrahamískum stofni. Upphafsmaður trúarbragðanna og sá sem þau eru kennd við varJesú frá Nasaret sem meðal kristinna manna er kallaður JesúsKristur. Kristni er stærstu trúarbrögð heims, með um 2,5 milljarða fylgjenda.[1] Kristnir eru í meirihluta í 157 löndum heims.[2] Kristnir trúa því að Jesús hafi verið sámessías semHebreska biblían (sem þeir kallaGamla testamentið) boðar að muni koma. Flestir kristnir söfnuðir trúa því að hann hafi verið sonurguðs og risið upp frá dauðum, svo að þeir sem á hann trúi öðlisteilíft líf. Sagt er frá lífi hans og boðskap íNýja testamentinu, sem er síðari hlutiBiblíunnar, trúarrits kristinna manna.[3]

Kristni er fjölbreytt trúarbrögð með mörg afbrigði. Henni er gjarnan skipt ívesturkirkju ogausturkirkju, en hún skiptist líka eftir afstöðu söfnuða gagnvart guðfræðilegum atriðum eins ogréttlætingu og eðli frelsunarinnar,kirkjufræði,prestvígslum ogkristsfræði.Trúarjátningar flestrakristinna söfnuða ganga út frá því að Jesús hafi veriðsonur Guðs semboðaði trú,þoldi píslir og varkrossfestur, enreis upp frá dauðum til aðfrelsa mannkynið, sem er kallaðfagnaðarerindið. Viðurkennduguðspjöllin fjögur;Matteusarguðspjall,Markúsarguðspjall,Lúkasarguðspjall ogJóhannesarguðspjall, segja frá lífi og boðskap Jesú, en Gamla testamentið myndar bakgrunn þeirra.

Upphaf kristinnar trúar má rekja til sértrúarsafnaðar gyðinga á tímumannars musterisins í Jerúsalem, í rómverska skattlandinuJúdeu á1. öld.Lærisveinar Jesú og fylgismenn þeirra breiddu trúna út umMið-Austurlönd og tilEvrópu,Anatólíu,Mesópótamíu,Suður-Kákasus,Egyptalands ogEþíópíu. Þrátt fyrir ofsóknir á hendur kristnum mönnum fyrstu aldirnar íRómaveldi dró trúin að sér fólk utan gyðingdómsins sem varð til þess að hún fjarlægðist hefðirgyðinga. Eftirfall Jerúsalem árið70, sem markar endalok tímabils annars musterisins, greindist kristni enn frekar frágyðingdómi.Konstantínus mikli gerði kristni löglega í Rómaveldi meðMílanótilskipuninni árið 313. Hann boðaði líkakirkjuþingið í Níkeu árið 325 þar sem kristnin mótaðist í þá mynd sem varðríkiskirkja Rómaveldis árið 380. Fram til 313 er talað um „stórkirkjuna“, áður en stóru klofningarnir áttu sér stað. Ífrumkristni voru samt til kristnir klofningshópar eins oggnostíkerar ogkristnir gyðingar. Eftirkirkjuþingið í Efesos 431 klofnaði kirkjan í austur- og vesturkirkju og eftirkirkjuþingið í Kalkedónos 451 klaufaustræni rétttrúnaðurinn sig frá vegna deilna umkristsfræði. Íkirkjusundrunginni árið 1054 klofnaði kirkjan írétttrúnaðarkirkjuna ogkaþólsku kirkjuna vegna deilna um valdpáfans í Róm. Á 16. öld klufu margirmótmælendasöfnuðir sig frá kaþólsku kirkjunni í kjölfarsiðaskiptanna vegna ýmissa guðfræðilegra og kirkjufræðilegra álitamála. Kristni lék stórt hlutverk við mótunvestrænnar menningar frásíðfornöld og fram ámiðaldir.[4][5][6][7] Í kjölfarlandafundanna breiddist kristni út tilAmeríku,Eyjaálfu,Afríku ogAsíu með markvissutrúboði.[8][9][10]

Fjórar stærstu greinar kristni eru rómversk-kaþólsk trú (1,3 milljarðar/50,1%), mótmælendatrú (920 milljónir/36,7%), rétttrúnaðarkirkjan (230 milljónir) og kirkjur austræna réttrúnaðarins (62 milljónir). Rétttrúnaðarkirkjur eru samanlagt 11,9% kristinna.[11][12] Þúsundir minni safnaða eru til, þrátt fyrir tilraunir til sameiningar.[13] Þótt aðild að kristnum söfnuðum hafi minnkað á Vesturlöndum er kristni enn ríkjandi trúarbrögð í heimshlutanum þar sem um 70% telja sig kristna.[14] Auk þess fer fjöldi kristinna vaxandi í Asíu og Afríku.[15] Kristnir menn sæta ofsóknum sum staðar í heiminum, einkum íMið-Austurlöndum,Norður-Afríku,Suður-Asíu ogAustur-Asíu.[16][17]

Saga

[breyta |breyta frumkóða]

Kristni er upprunnin fyrir botniMiðjarðarhafs, þaðan sem Jesús var, en fljótlega færðist þungamiðja trúarbragðanna tilRómar, sem var á þeim tíma langöflugasta miðstöð menningar við Miðjarðarhafið. Til að byrja með voru kristnir fáir og litið niður á þá, og voru þeir ofsóttir íRómaveldi vegna þess að þeir neituðu að dýrkakeisarann sem guð. En árið313 veittiKonstantín keisari kristnum mönnum trúfrelsi og hætti ofsóknum í Róm þar með. Árið391 gerðiTheodosius I kristni að ríkistrú í rómaveldi. Kristni breiddist einnig út í nágrannalöndum, árið301 varð kristni gerð að ríkistrú íArmeníu og var það fyrsta kristna ríkiskirkjan í heiminum. Til að byrja með var lítil miðstjórn meðal kristinna og miklar deilur um ýmis trúaratriði, til dæmis eðli Jesú ogHeilaga þrenningu. Keisarinn var yfir kirkjunni, en það var aðeins að nafninu til. Af og til voru haldin kirkjuþing, þar sem saman komu helstu trúspekingar samtímans og embættismenn hinna ýmsu kirkjudeilda, til að taka ákvarðanir um stefnur og strauma er fylgja skyldi. Smám saman fór þóbiskupinn í Róm að auka völd sín og varð embætti hans smám saman að því, sem við í dag köllumpáfa. Þetta sættipatríarkinn íKonstantínópel (nú:Istanbúl) sig ekki við, þannig að kirkjanklofnaði írómversk-kaþólsku kirkjuna (sem einnig var nefnd Vesturkirkjan) ogrétttrúnaðarkirkjuna (sem einnig var nefnd Austurkirkjan). Á16. öld varð svo enn klofningur, þegar þeir, sem eru enn í dag kallaðirmótmælendur, mótmæltu valdi páfa og spillingu innan kirkjunnar og klufu sig frá henni í ýmsar deildir, svo semlúterstrú ogkalvínista.

Kristni í dag

[breyta |breyta frumkóða]

Nú er kristin trú fjölmennustu trúarbrögð heimsins, með um 2 milljarða fylgjenda. Rúmur helmingur þeirra telst til rómversk-kaþólsku kirkjunnar, 367 milljónir eru mótmælendur og 216 milljónir tilheyra grísku/rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni. Kristnir búa flestir íNorður- ogSuður-Ameríku,Evrópu ogÁstralíu. Hlutfallslega eru kristnir mun færri íAsíu ogAfríku en í hinum álfunum en þar eru þó margir kristnir, meðal annars íEþíópíu, þar sem kristni hefur verið við lýði frá 330.

Kristni á Íslandi

[breyta |breyta frumkóða]

Kristni varlögtekin á Íslandi annaðhvort árið999 eða1000.[18] Margir Íslendingar höfðu tekið kristna trú fyrr og breiddist kristnin hratt út í landinu.

Siðaskiptin á Íslandi urðu á16. öld þegar danakonungur setti ámótmælendatrú í staðkaþólskunnar. Nokkur átök urðu og varJón Arason, síðasti kaþólski biskupinn, hálshöggvinn.

Upp úr því varðÞjóðkirkjan. Hún er ríkisstyrkt trúarstofnun á Íslandi og eru um 60% landsmanna meðlimir hennar (2021).

Neðanmálsgreinar

[breyta |breyta frumkóða]
  1. „World's largest religion by population is still Christianity“.Countrymeters (bandarísk enska). Sótt 1 janúar 2020.
  2. The Pew Forum on Religion and Public Life. December 2012. "The Global Religious Landscape: A Report on the Size and Distribution of the World's Major Religious Groups as of 2010." DC: Pew Research Center.Article.
  3. Woodhead 2004, bls. n.p
  4. Religions in Global Society. p. 146, Peter Beyer, 2006
  5. Cambridge University Historical Series,An Essay on Western Civilization in Its Economic Aspects, p. 40: Hebraism, like Hellenism, has been an all-important factor in the development of Western Civilization; Judaism, as the precursor of Christianity, has indirectly had had much to do with shaping the ideals and morality of western nations since the christian era.
  6. Caltron J.H Hayas,Christianity and Western Civilization (1953), Stanford University Press, p. 2: "That certain distinctive features of our Western civilization—the civilization of western Europe and of America—have been shaped chiefly by Judaeo – Graeco – Christianity, Catholic and Protestant."
  7. Fred Reinhard Dallmayr,Dialogue Among Civilizations: Some Exemplary Voices (2004), p. 22: Western civilization is also sometimes described as "Christian" or "Judaeo- Christian" civilization.
  8. Muslim-Christian Relations. Amsterdam University Press. 2006.ISBN 978-90-5356-938-2. Sótt 18 október 2007. „The enthusiasm for evangelization among the Christians was also accompanied by the awareness that the most immediate problem to solve was how to serve the huge number of new converts. Simatupang said, if the number of the Christians were double or triple, then the number of the ministers should also be doubled or tripled and the role of the laity should be maximized and Christian service to society through schools, universities, hospitals and orphanages, should be increased. In addition, for him the Christian mission should be involved in the struggle for justice amid the process of modernization.“
  9. Fred Kammer (1 maí 2004).Doing Faith Justice.Paulist Press. bls. 77.ISBN 978-0-8091-4227-9. Sótt 18 október 2007. „Theologians, bishops, and preachers urged the Christian community to be as compassionate as their God was, reiterating that creation was for all of humanity. They also accepted and developed the identification of Christ with the poor and the requisite Christian duty to the poor. Religious congregations and individual charismatic leaders promoted the development of a number of helping institutions-hospitals, hospices forpilgrims, orphanages, shelters for unwed mothers-that laid the foundation for the modern "large network of hospitals, orphanages and schools, to serve the poor and society at large."
  10. Christian Church Women: Shapers of a Movement. Chalice Press. mars 1994.ISBN 978-0-8272-0463-8. Sótt 18 október 2007. „In the central provinces of India they established schools, orphanages, hospitals, and churches, and spread the gospel message in zenanas.“
  11. „Christian Traditions“.Pew Research Center's Religion & Public Life Project. 19. desember 2011. „About half of all Christians worldwide are Catholic (50%), while more than a third are Protestant (37%). Orthodox communions comprise 12% of the world's Christians.“
  12. „Status of Global Christianity, 2019, in the Context of 1900–2050“(PDF). Center for the Study of Global Christianity.
  13. Peter, Laurence (17 október 2018).„Orthodox Church split: Five reasons why it matters“. BBC. Sótt 17 október 2018.
  14. Analysis (19. desember 2011).„Global Christianity“. Pew Research Center. Afrit afupprunalegu geymt þann 26. desember 2018. Sótt 17 ágúst 2012.
  15. Pew Research Center
  16. "Christian persecution 'at near genocide levels'".BBC News. 3 May 2019. Retrieved 7 October 2019.
  17. Wintour, Patrick. "Persecution of Christians coming close to genocide' in Middle East – report".The Guardian. 2 May 2019. Retrieved 7 October 2019.
  18. Lengi var talið að kristnitakan hefði verið árið 1000 eins og segir íÍslendingabókAra fróða Þorgilssonar.Ólafía Einarsdóttir færði rök fyrir því 1967 að ártalið væri rangt. Sjá Gunnar Karlsson. „Hvaða mánaðar- og vikudaga, nákvæmlega, var Alþingi Íslendinga sett árin 999, 1000 og 1001?“. Vísindavefurinn 3.5.2000.http://visindavefur.is/?id=390. (Skoðað 2.2.2011).

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Kristni&oldid=1860404
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp