Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Koxinga

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Koxinga

Koxinga (kínverska: 國姓爺;pinyin:Guóxìngyé; bókstaflega: „lávarður eftirnafns keisarans“) er titillZheng Chenggong (kínverska: 鄭成功; pinyin:Zhèng Chénggōng;27. ágúst162723. júní1662) sem var herforingiMingveldisins ogsjóræningi eftir að Mingveldið beið lægri hlut fyrirTjingveldinu árið 1646. Hann fæddist íJapan en faðir hans var kínverski kaupmaðurinn og sjóræninginnZheng Zhilong. Þegar hann var sjö ára fluttist fjölskylda hans tilFujian í Kína. Þar tók hann embættispróf við hirð keisarans 1638. Árið 1644 tók herMansjúmanna höfuðborginaBeijing og sótti hratt suður á bóginn. Árið 1645 varðZhu Yujian keisari og setti upp hirð íFuzhou í Fujian. Þar hélt Mingveldið út um skeið vegna herstyrks Zheng-fjölskyldunnar og náttúrulegra varna héraðsins. Árið 1646 gekk faðir Koxinga Tjingveldinu á hönd gegn því að gerast landstjóri yfir Fujian ogGuangdong. Við það varð Koxinga foringi herja Zheng Zhilongs sem héldu baráttunni gegn Tjingveldinu áfram. Koxinga nýtti sér yfirburði á sjó til að ráðast á strendur Fujian en hann hafði ekki hernaðarlega getu til að halda héruðum í landi. Um 1650 var hann orðinn höfuð Zheng-fjölskyldunnar og lýsti yfir hollustu við eina eftirlifandi Mingkeisarann,Zhu Youlang. Árið 1661 réðist hann áTaívan sem þá hafði verið undir hollenskri stjórn í 38 ár. Frumbyggjar eyjarinnar gengu í lið með honum og þann 1. febrúar 1662 gafst hollenski landstjórinnFrederik Coyett upp fyrir honum. Koxinga lést síðar sama ár úrmalaríu. Sonur hans,Zheng Jing, tók við af honum sem herstjóri Mingveldisins í Tungtu sem hann nefndi síðarTungning.

  Þessi grein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Koxinga&oldid=1508075
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp