Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Konungsríkið Kastilía

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skjaldarmerki Konungsríkisins Kastilíu.

Konungsríkið Kastilía var sjálfstætt ríki áPýreneaskaga ámiðöldum og er nú hluti afSpáni. Nafnið kemur fyrst fram í heimildum um árið800 og er dregið af því að þá var þetta svæði austurhluti konungsríkisinsAstúríu og þar reis fjöldi kastala til að verja landamærin gegnMárum.

Greifadæmið Kastilía

[breyta |breyta frumkóða]

Svæðið var þá greifadæmi og fyrsti greifinn sem vitað er um varRodrigo, um 850, og var hann lénsmaður Astúríukonunganna Ordoño 1. og Alfons 3. Eftir daga hans skiptist greifadæmið niður í minni lén en var sameinað að nýju 931 af Fernán Gonzalez greifa, sem gerði uppreisn gegn konungsríkinuLeón, sem hafði tekið við af Astúríu. Honum tókst að ná fram sjálfstæði og hann og afkomendur hans í karllegg stýrðu greifadæminu næstu öldina.

Jiménez-ætt

[breyta |breyta frumkóða]

En þegar García Sanchez tók við árið1017 var hann barn að aldri og Kastilíumenn samþykktu að gangast undir yfirráðSanchos 3., konung Navarra, sem kvæntur var systur García. Þegar García var ráðinn af dögum1028 gerði SanchoFerdínand, yngri son sinn, að greifa í Kastilíu. Kona hans varSancha af León, systirBermudos 3. konungs þar. Eftir dauða Sanchos hófu Ferdínand og bróðir hans,García Sanchez 3., konungur Navarra, stríð við Bermudo og felldu hann. Ferdínand tók þá við völdum í León í nafni konu sinnar og kallaði sig konung León og Kastilíu. Var það í fyrsta sinn sem Kastilía kallaðist konungsríki.

Þegar Ferdínand 1. dó1065 skiptu synir hans með sér ríkinu og varðSancho 2. konungur Kastilíu,Alfons 6. konungur León og García konungurGalisíu, en systur þeirra fengu borgir í sinn hlut. Bræðurnir Sancho og Alfons gerðu seinna bandalag gegn García bróður sínum og skiptu Galisíu á milli sín. Varla var því lokið þegar Sancho snerist gegn Alfons og rak hann í útlegð með aðstoðEl Cid og sameinaði ríkin þrjú að nýju. Urraca systir hans veitti meginhluta hers León skjól í borginniZamora, sem hún réði. Sancho settist um borgina árið1072 en var myrtur meðan á umsátrinu stóð og kastilíski herinn hvarf frá. Alfons 6. sneri þá aftur, settist í hásæti í León að nýju og varð nú einnig konungur Kastilíu og Galisíu.

Búrgundarætt

[breyta |breyta frumkóða]
Ríkin á Pýreneaskaga árið 1210.

Á valdatíma Alfons 6. jukust samskipti Kastilíumanna við önnur evrópsk konungsríki og hann gifti þrjár dætur sínar frönskum aðalsmönnum. Ein þeirra,Urraca, sem gifst hafðiRaymond af Búrgund en var orðin ekkja, settist í hásætið þegar faðir hennar lést og síðan tók sonur hennar,Alfons 7., sem hafði verið krýndur konungur Galisíu árið1111, við ríkjum í Kastilíu og León árið 1126 og hófst þá valdaskeið Búrgundarættar. Hann skipti ríkinu milli sona sinna tveggja og varðSancho 3. konungur Kastilíu árið 1157 enFerdínand 2. varð konungur León og Galisíu.

Aðskilnaðurinn stóð þó ekki nema hálfa öld, Kastilía, León og Galisía sameinuðust aftur undir stjórnFerdínands 3., sem var sonurBerengaríu Kastilíudrottningar ogAlfons 9., konungs León, og voru undir einni stjórn eftir það. León og Galisía voru áfram sérstök konungsríki að nafninu til en konungshirðin og miðstöð valdanna var í Kastilíu frá1230.

Á 12. öld var Kastilía ein helsta menningarmiðstöð Evrópu og má rekja það til ársins1085, þegar Kastilíumenn náðu borginniToledo, einni helstu menningarmiðstöð Mára, á sitt vald og kynntust þar mörgum stórmerkum bókmenntaverkum, fræðiritum og vísindaritum og gátu kynnt sér störf og fræði múslimskra vísindamanna. Þar var fjöldi íslamskra og grískra rita þýddur á latínu á næstu áratugum og fræðimenn komu víða að úr Evrópu til að læra og stunda rannsóknir í Toledo.

Jakobsvegurinn, pílagrímaleiðin tilSantiago de Compostela lá líka um Kastilíu og León. Hann var fjölfarinn og því voru samskipti við Evrópu mikil.

Trastámara-ætt

[breyta |breyta frumkóða]

Búrgundarættin er talin ríkja til1369, þegarPétur grimmi var drepinn af óskilgetnum hálfbróður sínum,Hinrik, eftir þriggja ára borgarastyrjöld. Hinrik varð þá konungur, hinn fyrsti afTrastámara-ætt, enJohn af Gaunt, sonurJátvarðar 3. Englandskonungs, gerði einnig kröfu til ríkis í nafniKonstönsu konu sinnar, sem var dóttir Péturs. Hinrik hélt þó krúnunni og erfðadeilunni lauk1388 þegarHinrik 3. sonarsonur hans gekk að eigaKatrínu af Lancaster, dóttur Johns og Konstönsu. Trastámara-ætt stýrði Kastilíu 1369-1504, Aragóníu 1369-1516, Navarra 1425-1479 og Napólí 1442-1501.

Árið 1469 giftust þauÍsabella 1. af Kastilíu ogFerdínand 2. af Aragóníu og sameinuðust ríkin tvö þegar faðir Ferdínands lést árið1479 og hann erfði ríkið. Þar með má segja að Spánn hafi orðið til og dóttursonur þeirra,Karl 5., varð fyrsti eiginlegi konungur Spánar.

Tengt efni

[breyta |breyta frumkóða]

Heimild

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Konungsríkið_Kastilía&oldid=1389878
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp