Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Klaustur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Munkur við skriftir

Klaustur er félagsskapurmunka eðanunna sem lifa að miklu leyti aflokuð frá samfélaginu og helga sig leit að eigin fullkomnun og eða þjónustu viðGuð og lifa eftir sameiginlegum reglum. Að nokkrum búddistaklaustrum undanteknum einkennist allt klausturlíf af afneitunkynlífs. Oftast eru klaustur karla og kvenna aðskilin þó undantekningar séu til. Hugtakið klaustur er einnig notað yfir húsakynni klausturreglnanna.Klaustur eru snar þáttur íbúddisma og stórum hlutakristni, sérlegakaþólsku ogrétttrúnaðarkirknanna. Hins vegar er klausturlíf óþekkt ííslam oggyðingdómi.

Orðsifjar

[breyta |breyta frumkóða]

Orðið klaustur er komið úrlatneska orðinuclaustrum sem þýðirlás,lokað rými,læst herbergi. Claustrum kemur afclaudo,loka,læsa,inniloka.

Kristin klaustur

[breyta |breyta frumkóða]

Uppruna klausturstarfs í kristni er að finna í hefðeinsetumanna í gyðingdómi. ErJóhannes skírari oft nefndur sem fyrirmynd kristinna einsetumanna. Í upphafi kristni leituðu margir heittrúaðir eftir einangrun til að geta helgað sig Guði og einnig til að leita undan ofsóknum. Upp úr aldamótunum 300 tóku kristnir einsetumenn íEgyptalandi að safnast saman og hefst þar með klausturhefðin. Það var EgyptinnPakhomios sem um árið 320 skapaði hugmyndina um sameiginlegt trúarlíf þar sem einstaklingarnir lifðu saman og játuðust undir sameiginlegar reglr undir stjórnábóta í munkaklaustrum ogabbadísa í nunnuklaustrum. Klausturreglur Pakhomios voru þrjár og eru enn undirstaða alls kristins klausturlífs:Fátækt, hlýðni og skírlífi.

Basilius hinn mikli skrifaði um 370 íRegulae nýjar reglur fyrir klausturlíf. Höfuðþættir eru áhersla á jafnvægi líkamlegs starfs og bænar, undirgefni einstaklingsins undir heildina, og möguleika starfs út á við eins og rekstur sjúkrahúsa og gistihúsa. Vegna reglna Basiliusar er hann talinn vera faðir klausturlífs rétttrúnaðarkirkjunnar og eru þær enn grundvöllur þess.

Í vesturkirkjunni urðu klaustrin þekkt ekki síst í gegnum verkÁgústínusar (354 til430)sem skapaði fyrstu vestrænu klausturregluna,Ágústínusarregluna.

Það var þóBenedikt frá Núrsíu (480 -547) sem hafði mest áhrif á þróun klausturlífs í Vestur-Evrópu meðBenediktsreglunni. Starf klausturbúa var tvíþætt samkvæmt Benedikt, að biðja og iðja (ora et labora).

Þriðja megin klausturhreyfingin, sem kennd er viðCistercium, varð til um1090. Meginþættir í starfi reglunnar er jafnvægi milliOpus Dei (Verk Guðs, það er guðþjónustur og bænir),Lectio Divina (Heilagur lestur, það er Biblíulestur og lestur annarra trúarrita) ogLabor manuum (Störf handanna, það er líkamleg vinna).

Íkaþólskum sið störfuðu mörgklaustur á Íslandi.

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Klaustur&oldid=1703279
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp