Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Kirgistan

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lýðveldið Kirgistan
Кыргыз Республикасы
Qırğız Respublikası
Fáni KirgistansSkjaldarmerki Kirgistans
FániSkjaldarmerki
Þjóðsöngur:
Þjóðsöngur Kirgistan
Staðsetning Kirgistans
HöfuðborgBishkek
Opinbert tungumálKirgisíska,rússneska
StjórnarfarLýðveldi
ForsetiSadyr Japarov
ForsætisráðherraAkylbek Japarov
Sjálfstæði
  frá Rússlandi27. nóvember 1917 
  Sovétlýðveldi5. desember 1936 
  frá Sovétríkjunum31. ágúst 1991 
Flatarmál
  Samtals
  Vatn (%)
85. sæti
199.951 km²
3,6
Mannfjöldi
  Samtals (2020)
  Þéttleiki byggðar
110. sæti
6.586.600
28/km²
VLF (KMJ)áætl.2019
  Samtals35,324 millj.dala (127. sæti)
  Á mann5.470 dalir (158. sæti)
VÞL (2019)Hækkun 0.697 (120. sæti)
GjaldmiðillSom (KGS)
TímabeltiUTC+6
Þjóðarlén.kg
Landsnúmer+996

Kirgistan er landlukt ríki íMið-Asíu með landamæri aðKína í austri,Kasakstan í norðri,Tadsíkistan í suðri ogÚsbekistan í vestri. Höfuðborg landsins og stærsta borgin erBishkek.Kirgisar eru meirihluti íbúa landsins en þar búa líka stórir hóparRússa ogÚsbeka.Kirgisíska ertyrkískt mál og er opinbert mál landsins ásamtrússnesku. 90% íbúa Kirgistans erumúslimar og meirihlutinn aðhyllistsúnní íslam. Menning Kirgistans ber merki um áhrif Rússa, Mongóla og Írana.

Kirgistan hefur verið hluti af ýmsum menningarsvæðum og stórveldum. Landið var hluti afSilkiveginum og öðrum verslunarleiðum um Mið-Asíu. Landið hefur verið undir stjórnGöktyrkja,Úígúraveldisins ogKitana, þar tilMongólar lögðu það undir sig á 13. öld. Landið varð aftur sjálfstætt en varð fyrir innrásumKalmyka,Mansjúmanna og Úsbeka. Árið 1876 varð landið hluti afRússneska keisaradæminu. Kirgistan varSovétlýðveldi til1991 þegar landið fékk sjálfstæði. Forseti landsins,Askar Akajev, sagði af sér4. apríl2005 í kjölfarTúlípanabyltingarinnar. Eftirmaður hans,Kurmanbek Bakiyev, neyddist einnig til að segja af sér og flýja land í kjölfar blóðugra uppþota árið 2010. Eins fór með forsetannSooronbay Jeenbekov, sem sagði af sér eftir fjöldamótmæli árið 2020.[1]

Kirgistan er aðili aðSamveldi sjálfstæðra ríkja,Evrasíska efnahagssambandinu,Sameiginlegu öryggissáttmálastofnuninni,Samvinnustofnun Sjanghæ,Samtökum um íslamska samvinnu,Tyrkíska ráðinu,Türksoy ogSameinuðu þjóðunum. Kirgistan erþróunarland og situr í 120. sætiVísitölu um þróun lífsgæða. Landið er það annað fátækasta í Asíu. Efnahagur landsins reiðir sig áolíu ogjarðgas, ásamt vinnslugulls,úrans ogsteinkola.

Heiti

[breyta |breyta frumkóða]

OrðiðKyrgyz er dregið af tyrkíska orðinu yfir „fjörutíu“ og vísar til ættbálkanna 40 sem sagnahetjanManas sameinaði gegnÚígúrum.Kyrgyz merkir bókstaflega „við erum fjörutíu“. Á 9. öld réðu Úígúrar yfir stórum hluta þess sem í dag eru Mið-Asía, Mongólía, Rússland og Kína. Viðskeytið-stan kemur úrpersnesku og merkir „staður“ eða „land“.

Sólin ífána Kirgistans er með fjörutíu geisla sem vísar til ættbálkanna fjörutíu, og hringurinn í miðjunni er lykilhringurinn,tunduk, efst ájúrt, tjaldhýsi sem hirðingjar Mið-Asíu bjuggu í.

Opinbert heiti landsins er „Kyrgyz-lýðveldið“ en í flestum málum er landið kallað einhverju afbrigði af Kirgistan. Eldra heiti þess, Kirgisía, er notað í nokkrum málum, til dæmis rússnesku og grísku.

Landfræði

[breyta |breyta frumkóða]
Hæðakort af Kirgistan.

Kirgistan erlandlukt land íMið-Asíu með landamæri aðKasakstan,Kína,Tadsíkistan ogÚsbekistan. Það liggur milli 39. og 44. breiddargráðu norður og 69. og 81. lengdargráðu austur. Það er lengra frá sjó en nokkurt annað land og öll vatnsföll í landinu renna í lokuðvatnasvið sem ekki tengjast neinum úthöfum. FjallahéraðiðTian Shan nær yfir 80% landsins og Kirgistan er stundum kallað „Sviss Asíu“ vegna þess.[2]

StöðuvatniðYsyk-Köl er annað stærsta fjallavatn heims, á eftirTitikaka. Lægsti punktur Kirgistans erKara-Daryya í 132 metra hæð yfir sjávarmáli, og hæstu fjöll landsins eruKakshaal-Too-fjallgarðurinn sem myndar landamærin við Kína. Hæsti tindur Kirgistans erJengish Chokusu í 7.439 metra hæð, sem er líka talið nyrsta fjall heims sem nær yfir 7.000 metra. Mikil snjókoma á vetrum leiðir oft til skyndiflóða á vorin sem geta valdið miklu tjóni. Kirgistan framleiðir mikið rafmagn meðvatnsaflsvirkjunum.

Í Kirgistan er að finna mikið afgulli oglantaníðum. Þar sem landið er mjög fjalllent eru innan við 8% þess ræktarland, mest á láglendinu í norðurhlutanum og á jaðriFerganadals. Höfuðborgin og stærsta borg Kirgistans erBishkek í norðurhlutanum með um milljón íbúa. Önnur stærsta borgin erOsh í Ferganadal við landamærin að Úsbekistan. Stærsta fljót Kirgistans erKara Darja sem rennur í vestur gegnum Ferganadal inn í Úsbekistan þar sem það mætirNaryn og verður aðSyr Darja sem áður rann íAralvatn. Eftir 2010 hefur áin ekki náð þangað þar sem vatnið er nýtt í áveitur á bómullarakra ofar í árfarveginum, í Tadsíkistan, Úsbekistan og Kasakstan.Chu-fljót rennur líka um Kirgistan áður en það rennur inn í Kasakstan.

Stjórnmál

[breyta |breyta frumkóða]

Héruð í Kirgistan

[breyta |breyta frumkóða]

Kirgistan skiptist í sjö héruð sem héraðsstjórar stjórna. Höfuðborgin,Bishkek, og önnur stærsta borgin,Osh, eru sjálfstæðar með sömu stjórnsýslulegu stöðu og héruðin.

Héruð Kirgisistan
Héruð Kirgisistan

Héruðin og sjálfstjórnarborgirnar eru:

  1. Borgin Bishkek
  2. Batken
  3. Chuy
  4. Jalal-Abad
  5. Naryn
  6. Osh
  7. Talas
  8. Issyk-Kul
  9. Borgin Osh

Hvert hérað skiptist í nokkur umdæmi (raion) með umdæmisstjórum sem ríkisstjórnin skipar. Sveitahéruð (ayıl ökmötü) með allt að 20 smáþorpum hafa sinn eigin kjörna sveitarstjóra og sveitarstjórn.

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. „For­seti Kirg­ist­an seg­ir af sér“. mbl.is. 15. október 2020. Sótt 16. október 2020.
  2. Escobar, Pepe (26. mars 2005).„The Tulip Revolution takes root“. Asia Times Online. Afritað af uppruna á 27. mars 2005.
  Þessilandafræðigrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Lönd íAsíu
Austur-Asía
Suðaustur-Asía
Suður-Asía
Suðvestur-Asía
Mið-Asía
Norður-Asía
1 Venjulega talin til Asíu landfræðilega, en oft talin tilEvrópulanda af menningarlegum og sögulegum ástæðum.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Kirgistan&oldid=1911386
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp