Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Kassel

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kassel
Skjaldarmerki Kassel
Skjaldarmerki
Staðsetning Kassel
SambandslandHessen
Flatarmál
  Samtals106,8 km2
Hæð yfir sjávarmáli
167 m
Mannfjöldi
 (2019)
  Samtals202.000
  Þéttleiki1.817/km2
Vefsíðawww.stadt-kassel.de
Herkúlesmannvirkið er einkennisbygging Kassel. Fossarnir eru manngerðir.

Kassel er þriðja stærsta borgin í þýska sambandslandinuHessen með 202 þúsund íbúa (2019). Kassel var í hartnær 600 ár höfuðborg hertogadæmisins Hessen (og Hessen-Kassel), allt þar til hertogadæmið var innlimað íPrússland1866.

Lega

[breyta |breyta frumkóða]

Kassel liggur við ánaFulda nær nyrst í Hessen, steinsnar fyrir sunnan sambandslandiðNeðra-Saxland. Næstu borgir eruGöttingen til norðausturs (40 km),Paderborn til norðvesturs (70 km) ogFrankfurt am Main til suðurs (150 km).

Skjaldarmerki

[breyta |breyta frumkóða]

Skjaldarmerki Kassel er með 13 hvíta smára á bláum fleti. Hvít rönd fer skáhallt niður merkið. Röndin merkir ána Fulda. Smárarnir eru upprunnir á14. öld, en merking þeirra er óviss.

Orðsifjar

[breyta |breyta frumkóða]

Kassel hét upphaflega Chassalla eða Chassella. Það er dregið af latneska orðinucastellum, sem merkirvirki. Upphaf byggðar þar var í kringum kastalavirki konungs.[1] Síðan1999 er borgin með auknefniðDocumenta-Stadt en Documenta er stór listasýning í borginni á fjögurra eða fimm ára fresti.

Saga Kassel

[breyta |breyta frumkóða]

913 kemur borgin fyrst við skjöl hjáKonráði I konungiþýska ríkisins. Þar kom fram að konungur átti sér kastala sem borgin er seinna kennd við. Um miðja12. öld var stofnað nunnuklaustur á staðnum og myndaðist nokkur byggð í kringum það.1189 kemur fram á skjölum að Kassel hafi þegar hlotið borgarréttindi. Reyndar var um þrjár byggðir að ræða: Altstadt, Neustadt og Freiheit. Bæirnir sameinuðust ekki fyrr en1378. Árið1277 varð Kassel aðsetur landgreifans Heinrich I. eftir að Hessen var splittað frá Þýringalandi. Þar með verður Kassel að höfuðborg og er hún það í hartnær 600 ár til ársins 1866.

Kassel um árið 1600. Borgin er beggja megin við ána Fulda. Mannvirkið til vinstri er klaustrið.

1527 tók borginsiðaskipti, enda var landgreifinn Filippus einn mestur forvígismanna þeirra. Þetta varð til þess að klaustrið var lagt niður og kaþólsku kirkjurnar urðu lúterskar. Filippus gekk í herbandalag með siðaskiptamönnum (Schmalkaldischer Bund) um miðja16. öld og varð Kassel að einu mesta vígi þeirra manna. Herinn beið hins vegar mikinn ósigur gegn keisarahernum, sem hertók Kassel1547. Filippusi var varpað í dýflissu þar sem hann þurfti að dúsa í fimm ár.1567 dó Filippus. Þá var Hessen splittað upp í nokkur greifadæmi. Við það myndaðist landgreifadæmið Hessen-Kassel með Kassel að höfuðborg. Landgreifinn Vilhjálmur IV hafði mikinn áhuga ástjörnufræði. Hann lét reisa sér stjörnuathugunarstöð, en hún er fyrsta stjörnustöðEvrópu eftir siðaskiptin.1685 tók landgreifinn Karl við 1.700húgenottum sem flúið höfðu trúarofsóknir íFrakklandi.

Napoleonstíminn og iðnbylting

[breyta |breyta frumkóða]
Jérôme Bonaparte ríkti sem konungur í Kassel

1807 réðust Frakkar inn í Hessen og leystu furstadæmið Hessen-Kassel upp. Frakkar stofnuðu konungsríkið Vestfalíu og varð Kassel höfuðborg þess.Napoleon gerði bróður sinn,Jérôme, að konungi í hinu nýstofnaða ríki. Það stóð þó stutt. Eftir ófarir Napoleons íRússlandi1813 voru Frakkar hraktir úr héraðinu og furstadæmið var endurreist. Á þessum tíma voruGrimmsbræðurnir í borginni og mynduðu nokkurs konar bókmenntafélag með þekktum skáldum og rithöfundum. Í iðnskólanum störfuðu nokkrir nafntogaðir vísindamenn, þar á meðal efnafræðingurinnRobert Bunsen sem fann upp gasgrímuna.1848 fékk borginjárnbrautartengingu.1850 urðu nokkur innanlandsátök í Rínarsambandinu, sem endaði með því að herir fráBæjaralandi ogAusturríki hertóku Kassel til skamms tíma. 1866 átti sér staðþýska stríðið. Prússar og Austurríkismenn áttust við og gekk Hessen-Kassel til liðs við Austurríki. En Prússar sigruðu og ákvaðBismarck kanslari að innlima Hessen-Kassel íPrússland. Þetta var endalok Kassels sem höfuðborg.1870-71 sigruðu Prússar í stríði við Frakka og varð Prússland í kjölfarið að keisararíki. Þeir handtóku FrakkakeisarannNapoleon III eftir orrustuna viðSedan og fluttu hann til Kassel. Þar þurfti hann að dúsa í stofufangelsi í heilt ár, reyndar í sama kastala og föðurbróðir hans, Jérôme Bonaparte, ríkti sem konungur til skamms tíma. Hann var látin laus eftir keisarakrýninguVilhjálms I Þýskalandskeisara og fór í útlegð tilBretlands.

Nýrri tímar

[breyta |breyta frumkóða]

Nóttina23. október1943 varð Kassel fyrir gríðarlegum loftárásum Breta. 80% borgarinnar eyðilagðist og 10 þús manns biðu bana. Nær öll miðborgin brann niður.4. apríl1945 gáfustnasistar í borginni upp og hertóku þá bandarískir hermenn borgina, sem eftir stríð varð hluti af hernámssvæði þeirra.1949 sótti Kassel um þann heiður að verða höfuðborg nýs Þýskalands. Þrjár aðrar borgir sóttu einnig um þann heiður: Frankfurt am Main,Stuttgart ogBonn. Bonn varð fyrir valinu en hún fékk 200 atkvæði þingmanna en Kassel 176. Fyrir vikið var ákveðið að Kassel fengi atvinnudómstólinn og félagsmáladómstólinn. Hið fyrrnefnda var þó flutt tilErfurt árið1999.1970 hittustWilly Brandt kanslari ogWilli Stoph fulltrúiAustur-Þýskalands í Kassel til að ræða um sjálfstæði landanna.1971 var háskólinn Universität Kassel stofnaður.

Viðburðir

[breyta |breyta frumkóða]
  • Documenta er mesta listasýning heims og fer fram á fjögurra eða fimm ára fresti í Kassel og stendur í 100 daga, yfirleitt frájúní tilseptember. Documenta fór fyrsta fram1955 og varð strax gífurlega vinsælt. Hér er bæði um að ræða listaviðburði innanhúss og utanhúss. Síðasta sýning fór fram2007. Þá fóru rúmlega 500 listviðburðir fram. Rúmlega 750 þúsund manns komu gagngert til borgarinnar til að fylgjast með. Næsta sýning verður 2012.
Síldin er einkennismerki hátíðarinnar Zissel
  • Zissel er heiti á þjóðhátíð borgarinnar. Hún er haldin árlega fyrstu helgina íágúst. Upphaf hátíðarinnar má rekja til kappræðara á ánni Fulda. Hugmyndin fæddist er nokkrir ræðarar átusíld í veitingahúsi og ákváðu að gera sér dagamun. Hátíðin fer fram víða um borg, en hápunkturinn er skrúðsigling á hinum ýmsum bátum og fleytum á ánni Fulda. Þar má sjá ýmsar skrýtnar og skrautlegar fleytur. Einkennismerki hátíðarinnar er stórt plastmódel af síld sem hengd er niður úr brú einni.
  • Connichi er sýning á japönskumanga oganime í borginni Kassel. Hún fer árlega fram í september og stendur í þrjá daga. Þetta er stærsta slíka sýningin í þýskumælandi landi og dregur til sín fjölda gesta. Heiðursgestir eru yfirleitt teiknarar og tónlistarmenn fráJapan. Auk sýningarinnar geta gestir tekið námskeið í pappírskúnst (Origami), japanskri tehúsamenningu, fagurskrift ogjapönsku. Á aðalsviðinu koma þýskir og japanskir listamenn fram.

Vinabæir

[breyta |breyta frumkóða]

Dresden viðheldur vinabæjatengslum við eftirfarandi borgir:

Frægustu börn borgarinnar

[breyta |breyta frumkóða]

Byggingar og kennileiti

[breyta |breyta frumkóða]
  • Marteinskirkjan er helsta lúterska kirkjan í borginni. Þetta er grafarkirkja landgreifanna frá Hessen. Hér liggja tugir greifar og ættingjar þeirra, en einnig einhverjir heldri menn úr Kassel á öldum áður. Byrjað var að reisa hana fyrir 1364 og var hún vígð 1462 heilögum Marteini í kaþólskum sið. Kirkjan var þá turnlaus. Suðurturninn var reistur 1487. Við siðaskiptin 1524 varð kirkjan lútersk og svo er enn. Það var svo ekki fyrr en 1889-1892 að norðurturninn var reistur. Eftir skemmdir loftárásanna 1943 var kirkjunni breytt nokkuð og hlaut hún þá núverandi mynd.
  • Drusel-turninn er hluti af gamla borgarmúrunum. Turninn var reistur 1415 á veikum bletti í múrnum, þar sem vatnið í læknum Druselbach rann inn í borgina. Af læknum dregur turninn heiti sitt. Hann þjónaði einnig sem dýflissa, en fangana þurfti að láta síga niður um holu í gólfinu. Þegar landgreifinn Filippus þurfti sjálfur að dúsa í dýflissunni í 5 ár (1547-52), lét hann hita hana upp. Hún var svo seinna notuð til að reykja mat og enn seinna sem lager. Múrinn var rifinn niður 1767-74, en turninn fékk að standa. 1905 brann hann þó niður. Ári seinna fékk hann þá nýtt þak, sem aftur eyðilagðist í loftárásum 1943. Turninn er ónotaður í dag og ekki aðgengilegur.
  • Ottoneum er heiti á leikhúsi í borginni, en það er elsta fasta leikhús Þýskalands. Það var reist 1603-1606 og nefnt Ottoneum eftir syni þáverandi Landgreifa (sem hét Otto). Leiksýningar í húsinu fóru þó ekki fram nema til 1690. Þá var því umbreytt í listasafn. Seinna varð það skólabygging, en þar fór fram kennsla í náttúruvísindum. Húsið skemmdist talsvert í loftárásum 1943 og eyðilögðust margir sjaldgæfir sýningargripir í náttúrufræðum. Húsið er náttúrufræðisafn í dag.
  • Wilhelmshöhe-kastalinn var reistur 1786-1798 og átti að þjóna sem aðsetur greifanna í Hessen-Kassel. En skömmu síðar hertóku Frakkar greifadæmið og ríkti þá Jérôme Bonaparte yfir nýstofnað konungsríki Vestfalíu í þessum kastala. 1870-71 sat Napoleon III í stofufangelsi í kastalanum. Hann skemmdist nokkuð í loftárásum 1943 og var endurreistur í áföngum. 1970 hittust Willy Brandt og Willi Stoph í kastalanum og ræddu um framtíð þýsku ríkjanna. Í dag er í honum lista- og málverkasafn.
  • Herkúles er heiti á styttu og gríðmiklum stalli sem er einkennisbygging borgarinnar. Niður af stallinum eru manngerðir fossar, þeir lengstu (250 m) og fegurstu í Þýskalandi.

Gallerí

[breyta |breyta frumkóða]
  • Marteinskirkjan
    Marteinskirkjan
  • Drusel-turninn
    Drusel-turninn
  • Ottoneum
    Ottoneum
  • Wilhelmshöhe-kastalinn
    Wilhelmshöhe-kastalinn

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. Geographische Namen in Deutschland. Duden. 1993. Bls. 148.

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]

Fyrirmynd greinarinnar var „Kassel“ áþýsku útgáfuWikipedia. Sótt febrúar 2010.

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengistKassel.
ÞýskalandBorgir í Þýskalandi eftir mannfjölda
1.000.000+
500.000+
200.000+
100.000+
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Kassel&oldid=1874101
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp