Karma (úrsanskrít: कर्मkármaⓘ, einnig ápalí: कम्मkamma)er andlegt hugtak sem þýðir að allar gjörðir, líkamlegar jafnt sem huglægar, valdi afleiðingum. Þessar afleiðingar birtast í næstkomandi tilverustigum. Þetta er grundvallarkenning í öllum trúarbrögðum afindverskum uppruna, svo sembúddisma,hindúisma,jaínisma ogsíkisma. Samkvæmt búddisma, hindúisma og jaínisma er karma lögmál orsaka og verkana. Allar gjörðir, allar hugsanir, öll viðbrögð orsaka verkanir. Verkanir karma fylgja lögmáli og eru á engan veginn bundnar yfirvegun alheimsdómara eðaguða. Í karma finnst engin refsing eða náð og fyrirfinnst því í raun hvorki gott né slæmt karma. Allar gjörðir valda karma. Takmarkið er því ekki að ná góðu karma heldur að losna frá því að skapa karma.
Í hindúisma er karma séð sem óumbreytanlegt lögmál þar sem meðvitaðar jafnt sem ómeðvitaðar gjörðir eru hluti af flóknu kerfi orsaka og afleiðinga, kerfi sem er í raun óskiljanlegt fyrir þá sem eru bundnir í karma. Markmið hindúa, eins og það er sett fram í helgiritinuBhagavad Gita, er að tileinka sér þannig lífsmáta að hann hætti að skapa karma (karma er hvorki gott né slæmt). Með því að takmarka sköpun nýs karma má nálgast jiva-atma, það ersál einstaklingsins, lokatakmarkið að námoksha eða frelsun.
Búddistar leggja áherslu á að karma skapist einungis af meðvituðum gjörðum. Lögmál orsaka og afleiðinga er því í höndum einstaklingsins og með réttum gjörðum og réttum hugsunum getur einstaklingurinn að lokum losnað úr hringrássamsara,endurholdgun í nýja þjáningu lífsins.