Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Kamerún

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lýðveld­ið Kamerún
Republic of Cameroon
République du Cameroun
Fáni KamerúnSkjaldarmerki Kamerún
FániSkjaldarmerki
Kjörorð:
Paix, Travail, Patrie
Peace, Work, Fatherland
(franska og enska:Friður, vinna, föðurland)
Þjóðsöngur:
Ô Cameroun, Berceau de nos Ancêtres
Staðsetning Kamerún
HöfuðborgJánde
Opinbert tungumálfranska ogenska
StjórnarfarLýðveldi
ForsetiPaul Biya
ForsætisráðherraJoseph Ngute
SjálfstæðifráFrakklandi ogStóra-Bretland
  Yfirlýst1. janúar 1960 
  Sameining viðBresku Kamerún1. október 1961 
Flatarmál
  Samtals
  Vatn (%)
53. sæti
475.442 km²
0,57
Mannfjöldi
  Samtals (2020)
  Þéttleiki byggðar
51. sæti
26.545.864
39,7/km²
VLF (KMJ)áætl.2021
  Samtals101,950 millj.dala (94. sæti)
  Á mann3.745 dalir (151. sæti)
VÞL (2019)Stöðugt 0.563 (153. sæti)
GjaldmiðillCFA-franki (XFA)
TímabeltiUTC+1
Þjóðarlén.cd
Landsnúmer+237

Kamerún er land íMið-Afríku með landamæri aðNígeríu í vestri,Tjad í norðaustri,Mið-Afríkulýðveldinu í austri,Lýðveldinu Kongó,Gabon ogMiðbaugs-Gíneu í suðri. Landið á strönd aðGíneuflóa í vestri. Kamerún er ýmist flokkað meðVestur-Afríkuríkjum eðaMið-Afríkuríkjum. Kamerún er stundum lýst sem smækkaðri mynd af Afríku vegna þess hve fjölbreytt lífríki og menning landsins er. Þar er að finna strendur, fjalllendi, gresjur og eyðimerkur. Í Kamerún eru töluð yfir 250 tungumál. Landið er þekkt fyriralþýðutónlist, einkummakossa ogbikutsi, og fyrir öflugt knattspyrnulið.

Meðal elstu íbúa landsins voruSaomenningin við Tsjadvatn ogBakóar í regnskógunum.Portúgalskir landkönnuðir komu að strönd landsins á15. öld og nefndu svæðiðRio dos Camarões („Rækjufljót“) sem varðCameroon á ensku ogCameroun og frönsku.Fúlanar stofnuðuAdamawa-emíratið í norðurhluta landsins á19. öld og ýmis þjóðarbrot stofnuðu öflug ættbálkaveldi í vestri og norðvestri. Árið1884 varð landiðþýska nýlendanKamerun. Eftir ósigur Þýskalands íFyrri heimsstyrjöld var landinu skipt milliBreta ogFrakka.Union des Populations du Cameroun barðist fyrir sjálfstæði í en var bannaður af Frökkum. Árið1955 hófstBamileke-stríðið gegn stjórn Frakka. Landið sameinaðist árið1960 semsambandslýðveldi Frönsku Kamerún og hluta Bresku Kamerún árið1961. Sambandslýðveldið var lagt niður og landið sameinað í eitt ríki árið1972 þegar það var nefnt Sameinaða lýðveldið Kamerún sem varð einfaldlega Lýðveldið Kamerún 1984.Paul Biya hefur ríkt sem forseti frá1982 en hann var áður forsætisráðherra frá 1975. Kamerún erforsetaræði.

Franska ogenska eru opinber tungumál í Kamerún, en þau voru áður opinber tungumálFrönsku Kamerún ogBresku Kamerún. Íbúar eru flestirkristnir, en um fjórðungur aðhyllistíslam og nokkur hluti aðhyllisthefðbundin afrísk trúarbrögð. Enskumælandi hlutar landsins hafa kallað eftir aukinni valddreifingu og jafnvel aðskilnaði. FlokkurinnSouthern Cameroons National Council berst fyrir fullu sjálfstæði enska hlutans. Árið 2017 braustAmbasóníustríðið út í enskumælandi hlutanum vegna stofnunar aðskilnaðarríkisinsAmbasóníu.

Saga Kamerún eftir sjálfstæði hefur einkennst af tiltölulega miklum pólitískum stöðugleika og innviðir landsins eru þróaðir. Þar eru stór iðnfyrirtæki íolíu- ogtimburvinnslu. Helstu útflutningsafurðir landsins eruhráolía,kakó,kaffi ogbómull. Stór hluti íbúa lifir ásjálfsþurftarbúskap. Þrátt fyrir að verg landsframleiðsla á mann sé með því hæsta sem gerist íAfríku sunnan Sahara lifa margir landsmenn við fátækt. Kamerún er aðili aðAfríkusambandinu,Sameinuðu þjóðunum,Breska samveldinu,Samtökum hlutlausra ríkja ogSamtökum um íslamska samvinnu.

Heiti

[breyta |breyta frumkóða]

Nafnið Kamerún er dregið af heitiWouri-ár semPortúgalar nefnduRio dos CamarõesRækjuá“ og vísar til krabbadýra af tegundinniLepidophthalmus turneranus sem áður voru þar í miklu magni.[1][2] Enn í dag er heiti landsinsCamarões á portúgölsku.

Landfræði

[breyta |breyta frumkóða]
Gígtappar einkenna landslagið viðRhumsiki í norðurhéraðinu.

Kamerún er 475.442 km² að stærð og 53. stærsta land heims.[3] Landið er bæði íMið- ogVestur-Afríku viðBonny-bugt sem er hluti afGíneuflóa ogAtlantshafi.[4] Kamerún er milli 1. og 13. breiddargráðu norður og 8. og 17. lengdargráðu austur.

Kamerún er stundum lýst í ferðamannabæklingum sem „smáútgáfu af Afríku“ af því þar er að finna flestar tegundir loftslags og gróðurs sem einkenna álfuna: strendur, eyðimörk, fjöll, regnskóga og gresjur.[5] Kamerún á landamæri að Nígeríu og Atlantshafi í vestri, Tjad í norðaustri, Mið-Afríkulýðveldinu í austri, og Miðbaugs-Gíneu, Gabon og Lýðveldinu Kongó í suðri.[6]

Kamerún skiptist í fimm landfræðileg svæði sem hvert hefur sín séreinkenni. Strandsléttan nær 15 til 150 km inn í landið frá Gíneuflóa[7] og er að jafnaði 90 metrar á hæð.[8] Þessi landræma er mjög heit og rök með stuttuþurrkatímabili, og er með blautustu svæðum jarðar. Þar eruCross-Sanaga-Bioko-skógarnir.[9][10]

Háslétta Suður-Kamerún rís upp af strandsléttunni í 650 metra meðalhæð.[11] Regnskógar einkenna þetta svæði, þótt munur áregntímabili og þurrkatímabili geri það að verkum að þar er minni raki en við ströndina.

Fílar íWaza-þjóðgarðinum.

Kamerúnfjöll eru óreglulegur garður af fjöllum, hæðum og hásléttum sem nær fráKamerúnfjalli við ströndina, hæsta fjalli Kamerún í 4.095 metra hæð,[12] næstum aðTjadvatni við norðurlandamæri landsins. Loftslag á þessu svæði er milt, sérstaklega áVesturhálendinu, þótt úrkoma sé mikil. Þar er að finna einn frjósamasta jarðveg landsins, sérstaklega í kringum eldfjallið Kamerúnfjall.[12] Þar er hægt að finnagígvötn. Þann 21. ágúst 1986 gaus mikið af koltvísýringi upp úr einu slíku,Nyosvatni, með þeim afleiðingum að um 1.700 manns létu lífið.

Hásléttan í suðri rís í norður upp að graslendriAdamawa-sléttunni. Hún nær frá fjöllunum í vestri og myndar landamæri milli norður- og suðurhluta landsins. Meðalhæð sléttunnar er 1.100 metrar,[11] og meðalhitinn er frá 22 að 25°C með mikilli úrkomu milli apríl og október, sem nær hámarki í júlí og ágúst.[13][14] Láglendið í norðri nær frá brún Adamawa að Tjadvatni með 300 til 350 metra meðalhæð.[12] Einkennandi gróður þar er kjarrlendi og grös. Þetta er þurrt landsvæði með lítilli úrkomu og háum meðalhita.[15]

Kamerún er með fjögur vatnakerfi. Í suðri eru helstu árnarNtem-á,Nyong-á,Sanagaá og Wouri. Þær renna í suðvestur eða vestur beint út í Gíneuflóa.Dja-á ogKadéï-á renna í suðvestur þar sem þær sameinastKongófljóti. Í norðurhluta Kamerún rennurBenue-á í norður og vestur og sameinastNígerfljóti.Logon-á rennur í norður í Tjadvatn sem liggur á mörkum Kamerún og þriggja nágrannaríkja.[16]

Stjórnmál

[breyta |breyta frumkóða]
Forsetahöllin í Kamerún.

Forseti Kamerún er kjörinn í beinum kosningum og er æðsti ráðamaður landsins. Hann ber ábyrgð á stefnu stjórarinnar, stjórn ríkisstofnana, er yfirmaðurheraflans, staðfestir alþjóðasamninga og getur lýst yfir neyðarástandi.[17] Forsetinn skipar opinbera fulltrúa á öllum stigum, allt fráforsætisráðherra (sem er stjórnarleiðtogi) að héraðsstjórum og umdæmisstjórum.[18] Forsetinn er kosinn til sjö ára í senn.[6] Aðeins tveir menn hafa gegnt embætti forseta Kamerún frá því landið fékk sjálfstæði.

Þing Kamerún er löggjafi landsins sem kemur saman þrisvar á ári.[18] 180 þingmenn sitja á þinginu, kosnir til 5 ára í senn. Lög eru sett með meirihlutaatkvæði þingmanna.[6] Stjórnarskráin frá 1996 gerir ráð fyrir efri deild þingsins,öldungadeild Kamerún, með 100 þingmönnum. Ríkisstjórnin viðurkennir vald hefðbundinna ættbálkahöfðingja til að stjórna í héraði og leysa úr deiluefnum, svo lengi sem það vald sé ekki í andstöðu við landslög.[19][20]

Lagakerfið í Kamerún er blanda afmeginlandsrétti,fordæmisrétti oghefðarrétti.[6] Þótt dómsvaldið sé sjálfstætt að nafninu til heyrir það undirdómsmálaráðuneyti Kamerún[19] Forsetinn skipar dómara á öllum stigum.[18] Dómsvaldið skiptist í héraðsdómstóla,áfrýjunardómstól oghæstarétt. Þingið kýs dómara ílandsrétt sem dæmir háttsetta embættismenn ef þeir eru kærðir fyrir landráð eða fyrir að skaða þjóðaröryggi.[21][22]

Stjórnsýslueiningar

[breyta |breyta frumkóða]
Kamerún skiptist í 10 héruð.

ÍStjórnarskrá Kamerún er landinu skipt í 10 héruð með nokkra sjálfstjórn, sem hvert heyrir undir kjöriðhéraðsráð. Fyrir hverju héraði fer landstjóri sem skipaður er af forseta.[23]

Héraðsleiðtogar hafa það hlutverk að framkvæma fyrirskipanir forsetans og veita upplýsingar um ástandið í héruðunum, stjórna opinberri þjónustu, varðveita frið og hafa yfirumsjón með yfirmönnum minni stjórnsýslueininga. Landstjórar hafa þannig víðtæk völd: þeir geta haft uppi áróður í sínum héruðum, og kallað inn herinn, herlögreglu og lögreglu.[23] Allir opinberir embættismenn eru starfsmenn ráðuneytis svæðisstjórnunar, og þaðan fá héraðs- og sveitarstjórnir líka mest af tekjum sínum.[24]

Héruðin skiptast í 58 sýslur (départements). Fyrir þeim fara skipaðir sýslumenn (préfets). Sýslurnar skiptast síðan í hverfi (arrondissements) sem aðstoðarsýslumenn (sous-prefets) fara fyrir. Umdæmin, sem heyra undir umdæmisforseta (chefs de district), eru minnstu stjórnsýslueiningarnar.[25]

Nyrstu héruðin þrjú eruNyrsta hérað (enska: Far North; franska: Extrême Nord),Norðurhérað (enska: North; franska: Nord) ogAdamawa-hérað (enska: Adamawa; franska: Adamaoua). Sunnan við þau eruMiðhérað (enska: Centre; franska: Centre) ogAusturhérað (enska: East; franska: Est).Suðurhérað (enska: South; franska: Sud) er við Gíneuflóa og suðurlandamærin. Vesturhluti Kamerún skiptist í fjögur héruð:Strandhérað (enska: Littoral; franska: Littoral) ogSuðvesturhérað (enska: Southwest; franska: Sud-Ouest) eru við ströndina, enNorðvesturhérað (enska: Northwest; franska: Nord-Ouest) ogVesturhérað (enska: West; franska: Ouest) ná yfir gresjurnar í vestri.[25]

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. Cameroon (adj.) nation in West Africa, its name is taken from the Anglicized form of the former name of the River Wouri, which was called by the Portuguese Rio dos Camarões "river of prawns" (16c.) for the abundance of these they found in its broad estuary. camarões is from Latin cammarus "a crawfish, prawn."
  2. „Camarões: o que os crustáceos têm a ver com o país? ("Cameroon: what do the crustaceans have to do with the country?")“.Veja. Sótt 21 nóvember 2020.
  3. Demographic Yearbook 2004Geymt 14 nóvember 2012 íWayback Machine. United Nations Statistics Division.
  4. „Country Profiles“. UCLA African Studies Center. Afrit afupprunalegu geymt þann 3. mars 2013. Sótt 12 apríl 2013.
  5. DeLancey and DeLancey 16.
  6. 1234„Cameroon“.World Factbook. CIA. Sótt 3 ágúst 2020.
  7. Fomensky, R., M. Gwanfogbe, and F. Tsala, editorial advisers (1985)Macmillan School Atlas for Cameroon. Malaysia: Macmillan Education, p. 6
  8. Neba 14.
  9. Neba 28.
  10. "Highest Average Annual Precipitation ExtremesGeymt 25 maí 2012 íArchive.today". Global Measured Extremes of Temperature and Precipitation,National Climatic Data Center, 9 August 2004. Retrieved 6 April 2007.
  11. 12Neba 16.
  12. 123Neba 17.
  13. Gwanfogbe, Mathew; Meligui, Ambrose; Moukam, Jean and Nguoghia, Jeanette (1983).Geography of Cameroon. Hong Kong: Macmillan Education, p. 20,ISBN 0333366905.
  14. Neba 29.
  15. Green, RH (1969). "The Economy of Cameroon Federal Republic". In Robson, Peter, and DA Lury (eds).The Economies of Africa, p. 239. Allen and Unwin.
  16. „Country Files: Cameroon“. UN Food and Agriculture Organization. Afrit afupprunalegu geymt þann 11 júní 2013. Sótt 3. mars 2013.
  17. Neba 250.
  18. 123„Cameroon: Government“. Michigan State University: Broad College of Business. Afrit afupprunalegu geymt þann 7 maí 2013. Sótt 12 apríl 2013.
  19. 12"U.S. Relations With Cameroon ". United States Department of State. Retrieved 6 April 2007.
  20. Neba 252.
  21. Abdourhamane, Boubacar Issa.„Cameroon: Institutional Situation“. Montesquieu University of Bordeaux. Afrit afupprunalegu geymt þann 21. september 2010. Sótt 12 apríl 2013.
  22. „Government in Cameroon“. Commonwealth of Nations. Afrit afupprunalegu geymt þann 28. mars 2014. Sótt 12 apríl 2013.
  23. 12Neba, Aaron (1999).Modern Geography of the Republic of Cameroon (3rd. útgáfa). Bamenda: Neba Publishers.
  24. „Cameroon“. US Department of State. 25. ágúst 2011. Sótt 24. september 2011.
  25. 12„Core document forming part of the reports of States Parties: Cameroon“. UNHCHR. Afrit afupprunalegu geymt þann 23. október 2015. Sótt 12. apríl 2013.

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
Lönd íAfríku
Norður-Afríka
Vestur-Afríka
Mið-Afríka
Austur-Afríka
Sunnanverð Afríka
  ÞessiAfríkugrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Kamerún&oldid=1849342
Flokkur:
Faldir flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp