Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Kalda stríðið

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Berlínarmúrinn.

Kalda stríðið erhugtak notað umtímabilið um það bil á milli áranna1947-1991 sem einkenndist af efnahagslegri,vísindalegri,listrænni oghernaðarlegrisamkeppni á milliBandaríkjanna ogSovétríkjanna og bandamanna þeirra. Bæði stórveldin stóðu fyrir stofnunhernaðarbandalaga.Hugmyndafræði sitt hvors var stillt upp sem andstæðum. Bæði stórveldin stunduðunjósnir um hitt; hernaðaruppbyggingu,iðnaðar- ogtækniþróun, þar á meðalgeimkapphlaupið. Miklum fjármunum var varið til varnarmála, sem leiddi tilvígbúnaðarkapphlaups ogkjarnorkuvæðingar.[1] Ekki kom til beinnahernaðarátaka milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, þó stundum skylli hurð nærri hælum, en bæði ríkin tóku beint og óbeint þátt í styrjöldum bandamanna sinna um allan heim sem urðu þá eins konarleppstríð milli þeirra.

Eftir loksíðari heimsstyrjaldar 1945, þar sem Bandaríkin og Sovétríkin voru bandamenn, komu Sovétríkin uppleppstjórnum á hernámssvæðum sínum í Evrópu ogNorður-Kóreu. Þetta varð til þess að Evrópu var skipt með „járntjaldi“ milli austurs og vesturs. Árið 1949 gerðu Sovétríkin sína fyrstukjarnorkutilraun, fjórum árum eftir að Bandaríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengju áHiroshima ogNagasaki. Sovétríkin gerðust auk þess bandamennAlþýðulýðveldisins Kína við stofnun þess 1949. Bandaríkjamenn brugðust við meðTruman-kenningunni uminnilokunarstefnu gegn kommúnisma, árið 1947. Bandaríkjamenn buðu ríkjum EvrópuMarshall-aðstoðina til að byggja ríki álfunnar aftur upp eftir eyðileggingu stríðsins, og stofnuðuAtlantshafsbandalagið árið 1949 (Varsjárbandalagið undir forystu Sovétríkjanna var stofnað 1955). Meðal fyrstu átaka stórveldanna á tímum kalda stríðsins voru í tengslum viðherkví Berlínar 1948-1949, ogKóreustríðið sem stóð frá 1950 til 1953 og lauk með þrátefli.

Uppruni hugtaksins

[breyta |breyta frumkóða]

Breski rithöfundurinnGeorge Orwell notaði hugtakið „kalt stríð“ í ritgerð í breska dagblaðinuTribune árið 1945.[2] Í Bandaríkjunum var það fyrst notað árið1947 afBernard Baruch ogWalter Lippmann til þess að lýsa aukinni spennu milli stórveldanna tveggja í kjölfarseinni heimsstyrjaldarinnar.[3] Hugmyndin var sú að „sigurvegarinn“ myndi sýna fram á yfirburði síns pólitísks kerfis, annars vegarkommúnisma Sovétríkjanna og hins vegar frjáls markaðsbúskaps Bandaríkjanna.

Saga

[breyta |breyta frumkóða]

Enda þótt Bandaríkin og Sovétríkin hafi verið bandamenn undir lok seinni heimsstyrjaldarinnar voru uppi afar ólíkar hugmyndir um skipan mála eftir stríðið. Dagana 4.-11. febrúar1945 hittust þjóðhöfðingjar Bandaríkjanna, Sovétríkjanna og Bretlands;Franklin D. Roosevelt,Jósef Stalín ogWinston Churchill áJaltaráðstefnunni og réðu ráðum sínum. Niðurstaðan varð sú að Þýskalandi yrði skipt á milli stórveldanna í þrjú svæði og Berlín, sem var staðsett á yfirráðasvæði Sovétríkjanna, var einnig skipt þannig (seinna urðu þau fjögur þegar Frakklandi var úthlutað landsvæði í Suðvestur-Þýskalandi).

Austur-Evrópa var á áhrifasvæði Sovétríkjanna. Í frægri ræðu í mars 1946 komst Winston Churchill þannig að orði að „Járntjald“ skipti Evrópu í tvennt. Vegna bágs efnahagsástands í Bretlandi sáu þarlend stjórnvöld ekki fram á að geta veitt Grikkjum og Tyrkjum áframhaldandi efnahagsaðstoð. Af þeim völdum setti þáverandi forseti Bandaríkjanna fram nýja utanríkisstefnu ári 1947 kennda við hann,Truman-kenninguna. Með henni skuldbatt hann Bandaríkin til þess að veita Tyrklandi og Grikklandi fjárhagsaðstoð til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu kommúnisma.

Á næstu áratugum breiddist spennan út fráEvrópu til allra heimshorna. Bandaríkin leituðust við að halda útbreiðslukommúnisma í skefjum. Sú utanríkisstefna Bandaríkjanna var nefndTruman-kenningin, kennd viðHarry S. Truman, forseta Bandaríkjanna, og fólst hún í því að Bandaríkin stofnuðu til stjórnmálasambands og bandalaga íVestur-Evrópu,Mið-Austurlöndum ogSuðaustur-Asíu.[4] Bandaríkjamenn áttu frumkvæðið aðMarshallaðstoðinni, sem hófst árið1948 og stóð í um fimm ár. Sú áætlun var í formi efnahagslegrar aðstoðar handa stríðshrjáðum löndum Vestur-Evrópu svo þau mættu skjótar vinna sig upp úr örbirgð og tryggja þannig stöðugleika í álfunni. Að sama skapi komu þau að stofnunAtlantshafsbandalagsins (NATO), hernaðarbandalags sem var stofnað1949. Hinum megin Járntjaldsins varVarsjárbandalagið stofnað1955.

Oft lá við styrjöld milli heimsveldanna tveggja, til dæmis íKóreustríðinu (1950-1953),Kúbudeilunni (1962)[5] ogVíetnamstríðinu (1964-1975). Ógninni umgagnkvæma gereyðingu af völdumkjarnorkuvopna var beitt til að fæla andstæðinginn frá því að gera árás, samanberógnarjafnvægi. Einnig komu tímabil þar sem spennan minnkaði og báðir aðilar leituðust við að draga frekar úr henni, til dæmis meðSALT-samningum um fækkunkjarnaodda ívopnabúrum stórveldanna.

Kalda stríðið fjaraði út áníunda áratugnum í kjölfar baráttu fyrir auknum borgaralegum réttindum íPóllandi og umbótastefnuMikhaíls Gorbatsjev,perestroika ogglasnost. Sovétríkin slökuðu á haldi sínu áAustur-Evrópu og Sovétríkin sjálf liðuðust í sundur árið1991.

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. Valur Ingimundarson (20.11.2000).„Hverjir aðrir en Bandaríkjaforseti höfðu vald yfir kjarnorkuvopnum Bandaríkjanna á fyrri hluta kalda stríðsins?“.Vísindavefurinn.
  2. Katherine Connor Martin (24. október 2015).„George Orwell and the origin of the term 'cold war'.OUPblog.
  3. Fred Halliday, „Cold War“, hjá Joel Krieger (ritstj.),The Oxford Companion to the Politics of the World 2. útg. (Oxford: Oxford University Press, 2001).
  4. Valur Freyr Steinarsson (4.3.2004).„Hver var ástæðan fyrir kalda stríðinu? Var það nauðsynlegt eða hefði verið hægt að sleppa því?“.Vísindavefurinn.
  5. Róbert F. Sigurðsson (16.9.2009).„Um hvað snerist Kúbudeilan?“.Vísindavefurinn.
5. áratugurinn
6. áratugurinn
7. áratugurinn
8. áratugurinn
9. áratugurinn
10. áratugurinn
Samtök og stofnanir
Kapphlaup
Hugmyndakerfi
Áróður
Utanríkisstefna
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Kalda_stríðið&oldid=1942488
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp