Kóralrifið mikla er stærstakóralrif heims. Það er yfir 2000km að lengd og sést utan úrgeimnum. Það er íKóralhafi utan við austurströndÁstralíu. Rifið er samfelld lína um 900eyja og 3000 kóralrifja sem liggja skáhallt út frá ströndQueensland þannig að fjarlægð þess frá ströndinni eykst eftir því sem sunnar dregur. Rifið er í dag að mestu leyti friðað.
Rifið var uppgötvað afJames Cook þegar eitt af skipum hans,barkskipiðHMS Endeavour, strandaði á því árið1770. Með því að létta skipið mikið tókst að bjarga því þrátt fyrir að kórallinn ylli gríðarlegum skemmdum á skipsskrokknum. Frægasta slysið sem orðið hefur á rifinu er strandfreigátunnarHMS Pandora sem sökk þar29. ágúst1791. Yfir þrjátíu manns týndust í slysinu, þar á meðal fjórir uppreisnarmenn af skipinuHMS Bounty sem áhöfnPandora hafði tekið höndum áTahítí.