Juan Atkins (fæddur9. desember1962) erbandarískurtónlistarmaður. Honum er einkum eignað að vera upphafsmaðurraftónlistar, nánar tiltekiðtechno tónlistar íBandaríkjunum, sem stundum er nefndDetroit techno enda ólust þeir Atkins og félagar hansDerrick May ogKevin Saunderson, sem einnig höfðu mikil áhrif á þróun raftónlistar í Bandaríkjunum, upp íDetroit íMichigan fylki.
Atkins hefur sjálfur sagt að útvarpsþáttur Charles „Electrifyin' Mojo“ Johnson hafi haft mikil áhrif á hann. Electrifyin' Mojo, sem varplötusnúður í Detroit, spilaði einkum raftónlist eftir þýsku hljómsveitinaKraftwerk, hljómsveitinaParliament ogPrince. Atkins og vinur hansDerrick May settu saman hljóðblöndu sem þeir báðu Electrifyin' Mojo að útvarpa en hófu síðar að semja eigin tónlist.
ÍWashtenaw Community College kynntist AtkinsRick Davis en þeir tóku upp plötu saman undir nafninuCybotron. Atkins bjó til hugtakið „techno tónlist“ til að lýsa tónlist þeirra. Hann var þá undir áhrifum frá verkum framtíðarsinnans og rithöfundarinsAlvins Toffler, en frá honum þáði hann lánuð nöfnin „cybotron“ og „metroplex“ (sem varð heiti útgáfufyrirtækis sem Atkins stofnaði).
Atkins hefur notað orðið ‚techno‘ til að lýsa eldri hljómsveitum sem reiddu sig mjög áhljóðgerfla, svo semKraftwerk, enda þótt margir myndu telja bæði tónlist Kraftwerk og fyrstu plötur Atkins, undir nafninuCybotron, semElectro tónlist. Í dag er techno talin sérstök tónlistargrein innan rafrænnar danstónlistar.
Atkins hóf að gef út undir nafninuModel 500 árið1985. Þekktustu lög hans frá þeim tíma eru „No UFO's“, „Night drive“, „Future“ og „Clear“. Hann er enn að gefa út tónlist jafnt eigin tónlist sem annarra hjá útgáfufyrirtæki sínuMetroplex Records.