Josh Dun | |
---|---|
![]() Dun með Twenty One Pilots árið 2022 | |
Upplýsingar | |
Fæddur | Joshua William Dun 18. júní1988 (1988-06-18) (36 ára) Columbus,Ohio,BNA |
Störf | Tónlistarmaður |
Ár virkur | 2010–í dag |
Maki | Debby Ryan(g. 2019) |
Stefnur | |
Hljóðfæri |
|
Meðlimur í | Twenty One Pilots |
Áðurmeðlimur í | House of Heroes |
Joshua William Dun (f. 18. júní 1988) erbandarískur tónlistarmaður. Hann er best þekktur fyrir að vera trommuleikari hljómsveitarinnarTwenty One Pilots þar sem hann spilar meðTyler Joseph. Einnig spilar hann á önnur ásláttarhljóðfæri, trompet og hljómborð.
Dun var fæddur íColumbus,Ohio. Hann á tvær systur og einn bróður. Hann byrjaði að æfa á trompet áður en hann ákvað að kenna sjálfum sér á trommur. Ein aðferð sem hann notaði við æfingar var að endurtaka takta sem hann heyrði í lögum.[1] Hann vann hjáGuitar Center í þrjú ár þar sem hann vann með fyrrverandi meðlimTwenty One Pilots, Chris Salih, sem seinna kynnti hann fyrirTyler Joseph.[2]
Í mars 2010 byrjaði Dun í hljómsveitinni House of Heroes eftir að trommarinn, Colin Rigsby, tók sér hlé. Í stað Rigsby spilaði Dun undir mörgum lögum breiðskífunnarSuburba. Hann tók þátt í tónleikaferðalagi hljómsveitarinnar þangað til að Rigsby snéri aftur.[3]
Dun planaði upprunalega að flytja tilNashville,Tennessee til að sækjast eftir feril í trommuleik, en var stoppaður af þáverandi trommara Twenty One Pilots, Chris Salih, sem bauð honum plássið sitt. Hann spilaði undir á einum tónleikum meðTyler Joseph eftir að Salih og bassaleikarinn Nick Thomas yfirgáfu sveitina. Þeir spiluðu eitt lag áður en lögreglan aflýsti sýningunni. Eftir það varð Dun varanlegur meðlimur hljómsveitarinnar. Hann hefur unnið í öllum breiðskífum hennar frá árinu 2011. Dun og Joseph skrifuðu undirplötusamning hjáFueled By Ramen árið 2012. Þeir hlutuGrammy verðlaun árið 2017 í flokknumbesti poppflutningur tvíeykis/hóps.[4]
Bæði Dun og Tyler Joseph eru með „X“húðflúr sem þeir létu tattóvera á sig á sviði. Merkið táknar tileinkun þeirra til aðdáenda þeirra í Columbus, Ohio.[5] Dun byrjaði í sambandi með leikkonunniDebby Ryan árið 2013 og voru þau gift þann 31. desember 2019.[6]