Jean Tabary (15. mars1930 –18. ágúst2011) varfranskurmyndasöguteiknari. Hann er kunnastur fyrir samstarf sitt viðRené Goscinny við gerðÆvintýra Harúns hins milda um fúlmenniðFláráð stórvesír.
Jean Tabary fæddist íStokkhólmi íSvíþjóð. Hann hóf feril sinn sem myndasöguhöfundur og -teiknari á síðum franska myndasögublaðsinsVaillant árið 1956. Þar samdi hann vinsælar sögur um uppátækjasömParísarbörn sem nutu mikilla vinsælda.
Árið 1960 hófst samstarf hans við René Goscinny. Þeir unnu saman sögur um fákænan þjóðarleiðtoga,Harún hinn milda fyrir myndasögublaðiðRecord. Fljótlega varð aukapersóna í sögunum, hinn undirförliFláráður stórvesír að aðalsöguhetjunni. Eftir að Coscinny lést árið 1977 tók Tabary einn við gerð sagnaflokksins. Í kjölfar hjartaáfalls árið 2004 fól hann börnum sínum að halda áfram verki sínu.
Sama ár og Tabary og Coscinny sköpuðu Fláráð og Harún hinn milda, kynntu þeir til sögunnar aðra persónu: einfeldninginn og flækinginnValentin. Alls gerði Tabary sjö bækur um ævintýri hans.