Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Jan Mayen

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jan Mayen er líka nafn á íslenskrihljómsveit.
Staðsetning Jan Mayen sýnd á korti.
Hæðarkort.
Beerenberg á Jan Mayen

Jan Mayen ernorsk eldvirkeyja íNorður-Íshafi, um 550km norðaustur afÍslandi. Eyjan er um 380 km² að flatarmáli, 53,6 km löng, með strandlengju upp á 124 km og breidd hennar er á bilinu 2,5 – 15,8 km. Jan Mayen teygir sig frá suðvestri til norðausturs og á norðausturhluta eyjarinnar er hið risavaxna eldfjallBeerenberg sem er 2277 m hátt. Jan Mayen teygir sig frá 70°50'N og 9°03'W í suðri til 71°10'N og 7°57'W í norður.

Eyjan er á heitum reit og hafa eldgos verið tíð í Beerenberg síðustu aldir, það síðasta árið 1985. Þar áður urðu eldgos árin 1973 og 1970. Allt voru þetta tiltölulega lítil sprungugos í hlíðum fjallsins. Sögulegar heimildir eru til um gos árin 1732, 1818 og 1851.

Aðeins einn bær er á eynni,Olonkinbyen og búa þar 18 íbúar. Eyjunni er stjórnað af norska fylkinuNordland.

Fundur og nafngift

[breyta |breyta frumkóða]

Ekki er óhugsandi að það hafi einmitt verið Jan Mayen semBeda prestur fann á 6. öld e.Kr. þegar hann segir frá eldi spúandi eyju í norðri þar sem dagur var allan sólarhringinn. Einnig má vel vera að sæfarar víkingaaldar hafi vitað um eyjuna. En Henry Hudson fann síðan eyjuna árið 1607 á einni fjögurra ferða sinna umNorður-Íshafið er hann var að leita að siglingaleið tilKína. Hvalveiðimenn sigldu í kjölfarið til eyjarinnar og árið 1614 var henni gefið nafnið Jan Mayen eftirhollenska hvalveiðiskipstjóranumJan Jacobs May van Schellinkhout.

Flóra og dýralíf

[breyta |breyta frumkóða]

Plöntutegundir eru fáar og eldfjallasandur víða á yfirborði en finna má meðal annarssteinbrjóta,sóleyjar (t.d.jöklasóley),músareyra oggrasvíði. Mosar, grös og fléttur eru til staðar.

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
erlendir
  Þessi landafræðigrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Jan_Mayen&oldid=1906818
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp