James Philip Milner (f. 4. janúar 1986 íLeeds,Englandi) er enskurknattspyrnumaður sem spilar fyrirBrighton & Hove Albion. Milner er fjölhæfur og getur spilað margar stöður á vellinum.
Hann var alinn upp íLeeds United, spilaði með aðalliðinu og varð yngsti maður til að skora mark í ensku úrvalsdeildinni, 16 ára og 356 daga gamall. Hann hefur spilað með ýmsum liðum á Englandi og meðManchester City vann hann deildartitla 2011–12 og 2013–14 með liðinu ásamt deildarbikurum; 2010–11 FA Cup og 2013–14 League Cup. Frá 2015 hefur hann spilað með Liverpool og vann hannMeistaradeild Evrópu með félaginu árið 2019 og ensku deildina 2020.
Milner hætti með landsliðinu árið 2016 en hann spilaði 61 leik og skoraði 1 mark. Hann er 3. leikjahæsti leikmaðurEnsku úrvalsdeildarinnar með yfir 600 leiki og sá 8. hæsti í stoðsendingum. Hann á flestar stoðsendingar í Meistaradeildinni á einu tímabili eða 9. Milner hefur spilað um 1.000 leiki á ferlinum.